Skessuhorn


Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 40

Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 40
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 201640 Margrét Egilsdóttir er þrítug Skagamær, fimm barna móðir og eiginkona Guðjóns Birgis Tómas- sonar. Þegar Margrét var einung- is tvítug, árið 2006, fæddist Vignir Gauti, fyrsta barn hennar og Guð- jóns. „Þegar ég horfi til baka skil ég ekki alveg af hverju ég á fimm börn, eða öllu heldur af hverju ég eignaðist barn númer tvö,“ seg- ir Margrét og hlær. „Vignir Gauti grét nefnilega mjög mikið fyrsta árið. Það er líka mesti aldursmun- urinn á honum og Dagnýju Báru sem kom næst, árið 2009,“ bætir hún við. Fyrir utan fyrsta árið hans Vignis segir Margrét það vera lítið mál að eiga fimm börn. „Mér finnst bara alveg eins gott að klára þetta snemma fyrst ég byrjaði snemma. Fimm er ekkert svo mikið, ekki í okkar tilfelli allavega. Börnin hafa öll verið misjöfn með svefn og svo- leiðis en í raun hefur það skánað með hverju barninu. Þau hafa al- veg reynt á þolinmæðina en það er ekkert sem maður kemst ekki yfir. Vignir Gauti byrjaði, eins og svo mörg börn, með ungbarnakveisu en svo var hann bara óvær. En sá yngsti er algjört draumabarn. Það er svo dýrmætt að eiga svona falleg- an og yndislegan barnafjölda og við erum rosalega þakklát fyrir þau,“ segir Margrét og brosir. Hefur gaman að móðurhlutverkinu „Ég held að okkar heimili sé ekk- ert frábrugðið öðrum. Við eigum kannski fleiri ung börn en flestir, en hér eru dagarnir bara eins og á öðrum heimilum held ég,“ seg- ir Margrét. Hún segist hafa gaman að móðurhlutverkefninu og flestu sem því fylgir. Enda mikli hún það ekki fyrir sér, jafnvel þó öll börnin fái vini í heimsókn á sama tíma og hún sé jafnvel með allt að fimm- tán börn á heimilinu í einu. „Hér er alltaf líf og fjör og þannig vil ég hafa það. Við höfum gott hús og góða aðstöðu og hér er oft al- veg fullt af börnum. Það að börn- in mín eigi mörg systkini á ekki að koma niður á þeim þannig að þau geti ekki boðið nokkrum vinum í heimsókn. Ég hef líka oft verið með nokkur auka börn í gistingu og það er ekkert mál.“ Auk þess að ala upp fimm ung börn hef- ur Margrét lokið stúdentsprófi og er langt komin með bakaranám- ið. „Ég hef alltaf tekið fæðingaror- lof en þau hafa verið mislöng, og þess á milli hef ég verið í námi eða að vinna. Kannski klára ég bakar- ann einn daginn en vinnutími bak- ara heillar mig ekki meðan börn- in eru svona ung svo ég bíð með það,“ segir hún. Guðjón vinnur hjá Borgarverki og þessa dagana er hann fjarri heimilinu í tíu daga í senn og kemur heim í fjóra daga. „Hann hefur verið á þessum törn- um frá því í maí en það breytist væntanlega í vetur, þetta fer allt- af eftir því hvernig vinnustaðan er hjá honum í hvert skipti. Á veturna er hann til dæmis oft að moka snjó hér í nágrenninu og er þá meira heima. Auðvitað getur það verið krefjandi að vera ein með börnin, eins og hjá öðrum foreldrum. En þó það sé stutt á milli barna eru eldri börnin samt orðin það stór að þau hjálpa mikið til. Ég bý líka svo vel að hafa marga í kringum mig sem geta hjálpað ef þess þarf. Ná- grannar okkar eru til dæmis mjög hjálpsamir og börnin okkar fara oft yfir að leika eða börnin þeirra koma yfir til okkar, það er mikill samgangur,“ segir Margrét. Útilokar ekkert fleiri börn Margrét segist ekki hugsa um þau Guðjón sem sérstaklega unga for- eldra eða með mörg börn og úti- lokar ekki að bæta við barnahóp- inn, þó þau fái reglulega athuga- semdir um fjölda barna. „Fólk hefur alveg sagt við okkur að nú sé þetta komið gott og fleira í þeim dúr. Ég bara skil ekki alveg af hverju þetta skiptir annað fólk svona miklu máli,“ segir Margrét og hlær. „Fólk meinar eflaust ekk- ert illt með þessu en það er samt oft leiðinlegt að heyra þessar at- hugasemdir en þær hafa samt lít- il áhrif á okkur. Eins og staðan er núna stendur ekki til að bæta við börnum enda er Jóhannes Egill bara sex mánaða,“ bætir hún við. Aðspurð hver sé mesta breyt- ingin við að fara úr fjórum í fimm börn segir hún það helst vera að ferðast með alla fjölskylduna. „Við áttum sjö manna bíl með ágætu plássi fyrir farangur en þegar Jó- hannes Egill fæddist varð frek- ar þröngt um börnin í þeim bíl. Við fengum okkur því annan sjö manna bíl þar sem fer betur um börnin en í honum er lítið pláss fyrir farangur. Svo þegar við fór- um í bústað nú í sumar þurftum við að fara á báðum bílnum,“ seg- ir Margrét og hlær. „Það er samt eitthvað sem má alveg finna lausn á, t.d. með því að kaupa tengda- mömmubox eða kerru,“ bætir hún við. Hún segist ekki finna mikinn mun að öðru leyti. „Ætli mesta sjokkið hafi ekki verið þegar Er- lingur Orri fæddist en hann er þriðja barnið okkar. En eftir það er munurinn ekki svo mikill. Ég get ekki sagt að ég finni fyrir áber- andi meiri kostnaði með hverju barni. Fólk spyr oft út í bleiu- kostnaðinn en við höfum aldrei verið með tvö bleiubörn í einu svo við getum ekki sagt að það sé meiri kostnaður hjá okkur en öðr- um foreldrum. Við erum ekki að eyða svo miklu í mat heldur, ekki miða við aðrar fjölskyldur. Margir halda að maður þurfi að vera rosa- lega skipulagður með svona mörg börn, ég get ekki sagt að það þurfi meira skipulag með fimm börn heldur en tvö eða þrjú. Ég er nú líka bara ekkert sérstaklega skipu- lögð yfir höfuð. Þetta bara geng- ur bara hjá okkur eins og öðrum held ég,“ segir Margrét brosandi að lokum. arg/ Ljósm. úr einkasafni. Fimm börn á tæpum tíu árum Hin árlega kaffisala í sumarbúðum KFUM og KFUK í Ölveri í Mela- sveit verður núna á sunnudaginn milli klukkan 14:00 og 17.00. Kaffi- salan er rómuð fyrir vandað kaffi- hlaðborð þar sem borðin svigna undan krásum. Allur ágóði af kaffi- sölunni rennur til uppbyggingar sumarbúðastarfsins. Þetta árið verð- ur haldin guðsþjónusta fyrir kaffi- söluna kl. 13:00 og mun Sr. Guðni Már Harðarson þjóna og vígja nýtt vatnsból og vatnsleiðslu í Ölveri í kjölfarið. Verð á kaffisöluna er 2000 krónur og 1000 krónur fyrir börn 12 ára og yngri en frítt fyrir leikskóla- börn. Verið velkomin á kaffisöluna í Ölveri. -fréttatilkynning Árleg kaffisala framundan í Ölveri Viðamikil markhópagreining fyrir ferðaþjónustuna Þennan rétt má nota sem ídýfu eða jafnvel sem kvöldmat. Það fer eingöngu eftir því hversu mikið er sett út í, það eru nefnilega engin takmörk. Flestir vita hvað eðla er. Í þessar uppskrift er búið að uppfæra eðluna. Innihald: 1 dolla Philadelphia rjómaostur 1 krukka salsasósa Ostur Allt sem hugurinn girnist Aðferð Rjómaosturinn er smurður í eldfast mót og því næst er allt sem hugurinn girnist sett yfir. Á meðfylgjandi mynd eru rifn- ar kjúklingabringur, léttsteikt paprika og smá laukur. Það eru í raun engin takmörk fyrir því hvað er sett yfir rjómaostinn og er þetta því tilvalið þegar fólk á afgang sem það vill nýta. Því næst er salsasósunni hellt yfir. Þeir allra hörðustu nota sterka sósu en þá er líka hægt að fá miðlungs sterka eða milda sósu. Að lokum er osturinn settur yfir og hér er um að gera að leika sér smá líka. Á meðfylgjandi mynd er gróft rifinn Mexíkó ostur en hann er frekar sterkur og fyrir þá sem vilja það ekki er hægt að nota venjulegan ost. Þetta er sett inn í ofn þar til osturinn bráðnar smá. Það er gott að borða þetta með tortillaflögum en það er einnig hægt að borða þetta eintómt eða setja þetta inn í tortillaköku. Uppfærð eðla Freisting vikunnar Margrét Egilsdóttir og Guðjón Birgir Tómasson með börnin þeirra fimm, Erling Orra, Dagnýju Báru, Jóhannes Egil, Fanneyju Öldu og Vigni Gauta. Systkinin Fanney Alda, Erlingur Orri, Dagný Bára, Vignir Gauti og Jóhannes Egill.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.