Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 47
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016 47
Mánudaginn 15. ágúst mættust lið
ÍA og Víkings frá Ólafsvík á Akra-
nesvelli í fimmtándu umferð Pepsi
deildar karla í knattspyrnu. Fyr-
ir leikinn voru Skagamenn í átt-
unda sæti með nítján stig en Vík-
ingur sæti neðar með átján stig. Það
hefur verið sannkölluð Ólafsvíkur-
grýla á Akranesi í efstu deild. Lið-
in höfðu þrisvar sinnum áður mæst
í efstu deild fyrir leikinn og höfðu
Víkingar unnið alla leikina. Síðast
þegar Víkingur heimsótti Akranes-
völl í efstu deild lauk leik með 5-0
sigri Víkings. Skagamenn náðu loks
að vinna bug á Ólafsvíkurgrýlunni
á mánudaginn og sigruðu leikinn
sannfærandi 3-0.
Nokkuð jafnræði var með lið-
unum í fyrri hálfleik en það voru
Skagamenn sem skoruðu fyrsta
mark leiksins á 36. mínútu. Skaga-
menn sendu langan háan bolta fram
völlinn sem Arnar Már Guðjónsson
náði að flikka áfram á Þórð Þorstein
Þórðarson hægra megin á vellinum.
Þórður tók vel á móti og tók fáeinar
snertingar inn í teig áður en hann
skaut boltanum í stöngina og inn,
frábært mark hjá Þórði. Markið var
það eina sem skorað var í fyrri hálf-
leik og staðan því 1-0 að loknum 45
mínútum.
Síðari hálfleikur fór rólega af
stað en Víkingar mættu þó örlítið
grimmari til leiks. Skagamenn náðu
þó að vinna sig betur inn í leikinn
og á 66. mínútu átti Tryggvi Hrafn
Haraldsson, nýkominn inn á sem
varamaður, góða sendingu inn-
fyrir vörn Víkinga þar sem Garð-
ar Gunnlaugsson slapp einn í gegn
og lék á Cristian Martinez í marki
Ólafsvíkur og renndi boltanum
í markið. Tólfta mark Garðars í
sumar sem er langmarkahæstur í
deildinni en í öðru sæti er Hrvoje
Tokic í Víkingi með átta mörk.
Eftir annað markið virtist
slokkna á piltunum frá Ólafsvík og
það voru Skagamenn sem skoruðu
þriðja og síðasta mark kvöldsins. Á
85. mínútu gaf Albert Hafsteinsson
góða sendingu á kantinn á Tryggva
Hrafn sem átti frábæra sendingu
inn í teiginn á Arnar Má sem stang-
aði boltann af miklum krafti í mark-
ið. Staðan orðin 3-0 sem jafnframt
urðu lokatölur leiksins.
Mínútu eftir síðasta mark Skaga-
manna var gerð skipting í liði ÍA
sem er ekki í frásögu færandi nema
fyrir þær sakir að leikmaðurinn sem
kom inn á var að spila sínar fyrstu
mínútur fyrir ÍA á Íslandsmóti. Af
velli fór Þórður Þorsteinn og inn
á í hans stað kom litli bróðir hans,
Stefán Teitur Þórðarson.
Með sigrinum fóru Skagamenn
upp í fimmta sætið, í það minnsta
tímabundið, með 22 stig en Vík-
ingur situr enn í því níunda með
átján stig. Næsti leikur Víkings
er næstkomandi sunnudag gegn
Fjölni á heimavelli en Skagamenn
eiga útileik gegn Fylki næstkom-
andi mánudag. bþb
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
NORÐURÁLSVÖLLUR
Allir á völlinn
ÍA – Fylkir
Miðvikudagur 24. ágúst kl. 18:00
Mætum öll gul og glöð
Aðalstyrktaraðili leiksins er:
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
ÚRVALSDEILD KVENNA:
Sorphirða og rekstur móttökustöðva
á Akranesi og í Borgarbyggð 2016-2021
Akraneskaupstaðar og Borgarbyggð óska eftir tilboðum í sorphirðu fyrir
heimili í þéttbýli og dreifbýli, umsjón grenndarstöðva, rekstur móttöku-
stöðva, og flutning sorps. Útboð þetta er auglýst á EES svæðinu.
Helstu magntölur fyrir Akranes eru:
Sorpílát í þéttbýli 3.964 stk
Sorp frá heimilum 1.300 tonn/ári
Sorp frá móttökustöð 3.000 tonn/ári
Helstu magntölur fyrir Borgarbyggð eru:
Sorpílát í þéttbýli 1.587 stk
Sorpílát í dreifbýli 602 stk
Grenndarstöðvar 14 stk
Sorp frá heimilum 700 tonn/ári
Sorp frá grenndarstöðvum 1.000 tonn/ári
Sorp frá móttökustöð 900 tonn/ári
Verktími er 1. desember 2016 til 30. nóvember 2021.
Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda
tölvupóst með ósk þar um, þar sem fram kemur nafn, netfang
og símanúmer, á netfangið akranes.utbod@mannvit.is.
Tilboð verða opnuð í ráðhúsi Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18,
Akranesi, þriðjudaginn 11. október 2016 kl. 11.00.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
COOL - LITE
SÓLVARNARGLER
ispan@ispan.is • ispan.is
M
ynd: Josefine Unterhauser
Skagamenn unnu sannfærandi
í Vesturlandsslagnum
Skagamenn fagna fyrsta marki kvöldsins sem Þórður Þorsteinn Þórðarson
skoraði.
Tokic komst nálægt því að skora í fyrri hálfleik en Skagamenn náðu að bjarga á
síðustu stundu.
Þeir Albert Hafsteinsson, Tryggvi
Hrafn Haraldsson og Þórður Þor-
steinn Þórðarson hafa allir framlengt
samninga sína við ÍA út leiktímabilið
2018. Þessir ungu leikmenn hafa sýnt
það og sannað að þeir eru tilbúnir í
að spila í efstu deild og eiga framtíð-
ina fyrir sér. „Það er mikið ánægju-
efni að búið sé að framlengja samn-
inga við þessa efnilegu leikmenn sem
ætlunin er að byggja á í framtíðinni,“
segir Gunnlaugur Jónsson þjálf-
ari meistaraflokks karla. Hann segir
að félagið hafi stigið risastór skref á
undanförnum árum í að byggja upp
lið þar sem að traust er veitt ungum
leikmönnum. „Þessir leikmenn hafa
staðið undir því trausti og eru þess
reiðubúnir að verða lykilleikmenn
hjá félaginu á komandi árum,“ segir
Gunnlaugur.
Albert er 20 ára miðjumaður og
hefur leikið 30 leiki í Pepsi deild
þrátt fyrir ungan aldur og það sama
má segja um bakvörðinn Þórð sem er
21 árs og hefur leikið 33 leiki í Pepsi
deildinni. Báðir stigu þeir sín fyrstu
skref í Pepsi deildinni á síðasta ári
með gríðarlega góðri frammistöðu.
Báðir léku þeir lykilhlutverk í lið-
inu sem hafnaði í sjöunda sæti á sínu
fyrsta ári í Pepsi deild. Tryggvi er tví-
tugur sóknarleikmaður og lék sína
fyrstu leiki í Pepsi deildinni undir
lok síðasta keppnistímabils eftir erf-
itt meiðslatímabil. Hann hefur spil-
að tólf leiki í Pepsi deildinni. Tryggvi
sem var í láni hjá Kára í upphafi tíma-
bils kom til baka í júní og hefur átt
stóran þátt í velgengni liðsins síðan.
mm
Þrír framlengja samninga
við meistaraflokk ÍA
Albert, Tryggvi og Þórður. Ljósm. KFÍA.