Skessuhorn


Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 46

Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 46
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 201646 Fjórir Vestlend- ingar valdir í úrtökumót Nú nýverið var tilkynntur rúm- lega 60 drengja hópur fædd- ur árið 2001 sem valinn hefur verið til þess að taka þátt í úr- tökumóti KSÍ. Úrtökumótið fer fram dagana 19. – 21. ágúst og leikmennirnir munu dvelja á Laugarvatni þar sem þeir munu verja helginni að mestu í að spila fótbolta og sýna sig fyrir þjálf- urum KSÍ. Vestlendingar eiga fjóra fulltrúa í hópnum en það eru þeir Benjamín Mehic, Gísli Laxdal Unnarsson og Marteinn Theodórsson frá ÍA og Brynjar Snær Pálsson hjá Skallagrími. -bþb Kári sigraði Dalvík/Reyni Laugardaginn 13. ágúst fór fram leikur Kára og Dalvíkur/Reynis í þrettándu umferð þriðju deild- ar karla í knattspyrnu á Dalvík- urvelli. Káramenn héldu á brott af Norðurlandi með þrjú stig í farteskinu eftir góðan 3-2 sig- ur. Mörk Kára skoruðu þeir Atli Albertsson, Ragnar Már Lárus- son og Arnar Freyr Sigurðsson. Kári er í þriðja sæti eftir leikinn með 22 stig, níu stigum á eftir Víði Garði sem situr í öðru sæti. Næsti leikur Kára er í kvöld klukkan 18:30 gegn liði Þróttar frá Vogum á Akranesvelli. -bþb Víkingur Ó. tapaði baráttunni um annað sætið Það var mikil spenna sem ríkti þegar leikur Víkings Ó. og HK/ Víkings var flautaður á í tólftu umferð A-riðils fyrstu deildar kvenna í knattspyrnu síðastlið- inn miðvikudag. Mikið var í húfi en liðin voru jöfn að stigum fyr- ir leikinn í öðru og þriðja sæti. Annað sætið gefur sæti í umspili um að komast upp í Pepsi deild- ina. HK/Víkingur vann bar- áttuna um annað sætið naum- lega 2-1. Mark Víkings skoraði Sigrún Gunndís Harðardóttir á 71. mínútu. Nagela Oliveira De Andrade leikmaður Víkings fékk síðan að líta rauða spjald- ið á spennuþrungnum mínútum uppbótartíma síðari hálfleiks. Eftir leikinn eru Víkingar sem fyrr í þriðja sæti með 25 stig, þremur stigum á eftir HK/Vík- ing. Víkingur á enn möguleika á að ná öðru sætinu en tveir leikir eru eftir af mótinu. Næsti leikur Víkings er gegn Skínanda á úti- velli á morgun. -bþb Skallagrímur vann nágrannaslag Miðvikudaginn 10. ágúst síð- astliðinn mættust lið Snæfells og Skallagríms í tólftu umferð B-riðils fjórðu deildar karla í knattspyrnu. Skallagrímur vann leikinn ákaflega sannfærandi 9-0. Mörk Skallagríms skor- uðu Steinar Haraldsson, Sölvi G Gylfason (2 mörk), Viktor Ingi Jakobsson (2 mörk), Enok Ing- þórsson, Birgir Theodór Ás- mundsson og Daníel Þór Rún- arsson (2 mörk). -bþb Púttmót með þátttöku eldri golf- spilara frá Hvammstanga, Borg- arfirði, Ísafirði og Reykjavík var haldið á púttvellinum við Heilsu- gæslustöðina á Hvammstanga síðla í júlí. Spilaðar voru tvisvar sinnum 18 holur. Mótsstjóri var Flemming Jessen, en um skráningu, útreikn- ing, ræsingu og verðlaunaafhend- ingu sáu Elín Jóna Rósinberg og Þórdís Benediktsdóttir. Að sögn Flemmings gekk mótið vel, en veður var gott og völlurinn í fínu ástandi. Helstu úrslit urðu þau að Margrét Guðmundsdóttir frá Hvammstanga sigraði í kvenna- flokki á 77 höggum, en fast á hæla hennar komu þrjár konur úr Borg- arbyggð, þær Lilja Ólafsdótt- ir, Jytta Jull og Anna Ólafsdótt- ir. Í karlaflokki sigraði Guðmund- ur Bachmann úr Borgarnesi á 70 höggum en Norðlendingar komu í næstu sætum. Indriði Björnsson úr Borgarnesi varð fimmti og Þór- hallur Teitsson í sjöunda sæti. aoj/ Ljósm. Norðanátt.is Tóku þátt í púttmóti á Hvammstanga Guðmundur Bachmann sigraði í karlaflokki og er hér á mynd með Hvamms- tangakörlunum Ragnari Páli og K Frá vinstri Lilja, Margrét og Jytta en þær urðu efstar í kvennaflokki. Lilja og Jytte urðu jafnar í 2. til 3. sæti en Lilja hafði silfrið eftir bráðabana. Síðasta púttkeppni eldri borgara á Akranesi og úr Borgarbyggð fór fram fimmtudaginn 11. ágúst að Nesi í Reykholtsdal. Þar öttu 37 púttarar kappi í ágætis veðri. Var þetta þriðja viðureign þeirra í ár og lokaslagurinn um Húsasmiðju- bikarinn. Mótin fóru fram á þrem- ur stöðum í sumar: Hamri í Borg- arnesi, á Garðavelli á Akranesi og í Nesi. Sem fyrr hafa allir félagar í félögum eldri borgara á svæð- inu þátttökurétt, en sjö efstu hjá hvoru félagi telja til útreiknings. Keppnin í ár hefur verið jöfn og spennandi. Í Borgarnesi fóru leik- ar 495:496 fyrir Akurnesinga. Þeir juku forskotið á Akranesi og unnu 524:535. Á Nesi var keppnin enn jafnari og Borgarbyggðarfólk dró aðeins á og vann 489:494. Loka- tölur urðu því 1513 gegn 1520. Skagamenn unnu því annað árið í röð og náðu besta heildarskori til þessa. Bættu besta árangur Borg- firðinga frá 2014 um þrjú högg. Keppnin um einstaklingsbikar- inn var jafnvel meira spennandi. Eftir fyrsta mótið leiddu Guð- mundur Bachmann og Jytta Juul með 68 höggum en Edda Elías- dóttir var með 69 högg. Á öðru mótinu voru Þórhallur Björns- son og Ingimundur Ingimundar- son með besta skorið; 70 högg en Edda kom skammt á eftir með 72 högg. Edda hafði því tekið foryst- una eftir tvö mót með 141 högg. Ingimundur var annar með 143 högg og Þórhallur og Guðmundur Bachmann með 145 högg. Allt gat því gerst. Í lokamótinu var Hörð- ur Júlíusson efstur með 64 högg, Ingimundur með 67 högg og Ás- dís B. Geirdal með 68 högg. Edda og Guðmundur léku á 72 höggum og Þórhallur á 74 höggum. Nið- urstaðn varð því sú að Ingimund- ur bar sigur úr býtum á 210 högg- um. Hörður varð annað með 211 högg (en hann vann í fyrra á 216 höggum) og Edda þriðja með 213 högg. Framundar er Íslandsmót FÁÍA 60 ára og eldri í Reykjanesbæ fimmtudaginn 18. ágúst. Miðað við spilamennskuna að Nesi eiga bæði lið góða möguleika á því móti. mm/ii Akurnesingar unnu pútt- keppnina annað árið í röð Árlegt sumarmót SamVest í frjáls- um íþróttum var haldið á Völuvelli á Bíldudal laugardaginn 13. ágúst sl. Það var Héraðssambandið Hrafna- Flóki sem bauð til mótsins. Aðstæður á vellinum voru prýðilegar; atrennu- braut langstökks og svæði fyrir há- stökk og spjót eru lögð tartanefni og hlaupabrautin var mjög hörð og góð og merkt af HHF fyrir mótið. Við völlinn er nýtt vallarhús með salern- um, en gamla húsið fauk í óveðri síð- asta vetur. Þess má geta að árið 2000 var Unglingalandsmót UMFÍ hald- ið á Bíldudal en það var í fyrsta sinn sem ULM var haldið um verslunar- mannahelgi. Vesturbyggð bauð gest- um gistingu á tjaldsvæðum sínum án endurgjalds. Auk Vestlendinga komu flest- ir þátttakendur frá HHF og voru á aldrinum 6 til 18 ára, fimm fullorðn- ir voru meðal keppenda. Allt gekk vel fyrir sig og allar greinar vel mann- aðar starfsfólki HHF, auk nokkurra hjálparkokka frá öðrum sambönd- um. Grillaðar voru pylsur í mótslok og í lokin tilkynnt um úrslit. HHF stóð sig frábærlega við undirbúning og umsjón með mótinu. bá SamVest tók þátt í frjálsíþróttamóti á Bíldudal Á harðaspretti. Komið í mark í harðri keppni í 60 metra hlaupi. Ungir frjálsíþróttakappar stilltu sér upp rétt áður en þeir hófu keppni í boltakasti. Um síðastliðna helgi fóru fram bik- arúrslitaleikir í knattspyrnu karla og kvenna. Á föstudagskvöldið sigr- aði Breiðablik lið ÍBV 3-1 í kvenna- boltanum og á laugardaginn sigr- aði Valur lið ÍBV í karlaboltanum og varði þar með bikarmeistaratit- ilinn. Í báðum sigurliðunum áttu Vestlendingar sinn fulltrúa. Í sig- urliði Breiðabliks spilaði Hallbera Guðný Gísladóttir allan leikinn og vann þessi magnaða knattspyrnu- kona sinn fimmta bikarmeistaratit- il á ferlinum. Andri Adolphsson var síðan í byrjunarliði Vals en þetta var annar bikarmeistaratitill Andra á ferlinum en þann fyrri vann hann einnig með Val í fyrra. bþb Þórður Þórðarson hefur þjálfað U19 landslið kvenna í knattspyrnu undanfarin tvö ár. KSÍ og Þórður hafa nú náð samkomulagi um nýjan samning til 1. maí 2018 en ákvæði er í samningnum að hann gæti framlengst fram yfir lokakeppni EM 2018 ef liðið kemst þangað. Þórður er með KSÍ A-gráðu í þjálf- un og hefur bæði þjálfað meist- araflokk karla og kvenna hjá ÍA en hann lét nýverið af störfum hjá kvennaliði ÍA. bþb Breiðablik og Valur bikarmeistarar Hallbera Gísladóttir og Andri Adolphsson koma bæði af Skaganum. Þórður heldur áfram með U19

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.