Skessuhorn - 17.08.2016, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 201622
SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS
Menntaskóli Borgarfjarðar verður
settur formlega í tíunda sinn í dag,
miðvikudaginn 17. ágúst, og mun
kennsla hefjast samkvæmt stunda-
skrá á morgun, fimmtudaginn 18.
ágúst. Menntaskólinn skapaði sér
snemma sérstöðu og var leiðandi
í því að framhaldsskólanám yrði
þrjú ár í stað fjögurra, en nú hafa
flestir skólar landsins tekið upp
það fyrirkomulag.
Í ár er í vinnslu stefnumótun-
arvinna hjá skólanum. „Við höf-
um lagt mikla vinnu í stefnumótun
fyrir komandi ár. Við erum alltaf
að leitast eftir því að fá fleiri nem-
endur inn í skólann og það er klárt
markmið hjá okkur. Við viljum
einnig halda áfram að bjóða upp
á framúrskarandi nám. Við höfum
verið að útskrifa flotta nemend-
ur í gegnum tíðina sem hafa flest-
ir haldið áfram að mennta sig eftir
að hafa verið hér. Við megum alls
ekki sofna á verðinum og þurfum
sífellt að vera með augun opin og
reyna að bæta starfið okkar eins og
kostur er. Við erum mjög nýjunga-
gjörn og viljum gera góðan skóla
enn betri,“ segir Guðrún Björg
Aðalsteinsdóttir, skólameistari
Menntaskóla Borgarfjarðar í sam-
tali við Skessuhorn.
Gott samband nemenda
og kennara
„Nemendafjöldinn fer lítillega
niður á við frá því í fyrra. Við
fáum inn svipaðan fjölda nýnema
og í fyrra, um 55 nemendur, en
færri en undanfarin ár. Það er hátt
hlutfall þeirra sem útskrifast hér í
Borgarnesi og sveitunum í kring
sem hefja nám í MB. En við fáum
einnig fólk frá Akranesi, Hvamms-
tanga og allt til Hólmavíkur,“ seg-
ir Guðrún.
Starfsfólk skólans er nánast það
sama og í fyrra. Í skólanum starfa
tuttugu og af þeim eru þrett-
án kennarar. „Við erum ekki stór
skóli en það sem við höfum fram
yfir marga skóla að við erum mjög
persónulegur skóli og samband
kennara og nemenda er mjög gott.
Í ár hefur verið ráðinn inn félags-
málafulltrúi sem hefur reynslu af
slíkum störfum. Hann mun einn-
ig kenna tölvu- og upplýsinga-
tækni. Félagsmálafulltrúinn mun
vera tengiliður skólans við nem-
endafélagið. Þetta er mjög jákvæð
þróun í að efla félagslífið í skólan-
um en það skiptir ekki síður máli
fyrir nemendur að vera með gott,
heilbrigt og skemmtilegt félagslíf í
skólanum,“ segir Guðrún.
Áhersla á verkefnavinnu
Menntaskólinn Borgarfjarðar er
nokkuð framsækinn framhaldsskóli
og notar aðrar kennsluaðferð-
ir en flestir aðrir skólar. Skólinn
hefur alla tíð lagt áherslu á verk-
efnavinnu fremur en fyrirlestra og
ekki eru lokapróf í skólanum. „Við
leggjum upp með verkefnavinnu
þar sem nemendur vinna jafnt og
þétt yfir önnina frekar en að taka
eitt stórt lokapróf. Við reynum
líka að undirbúa nemendur okk-
ar betur fyrir háskólanám. Allir
sem útskrifast héðan þurfa að skila
inn lokaritgerð í anda lokaritgerða
sem þekkjast í háskólum. Í lokarit-
gerðinni sem útskriftarnemendur
þurfa að gera fá þeir leiðbeinend-
ur og þurfa að vinna að rannsókn
og koma niðurstöðu sinni á blað í
ritgerðinni. Þetta er virkilega góð-
ur grunnur fyrir háskólanám þar
sem nemendur þar þurfa að þekkja
þessi vinnubrögð,“ segir Guðrún.
Guðrún segir að komandi skóla-
ár leggist vel í hana sem og starfs-
fólkið. „Við erum ánægð með skól-
ann okkar og tökum við nýnem-
um, sem og öðrum nemum, með
opnum örmum í dag. Hingað eru
allir velkomnir,“ segir Guðrún að
endingu.
bþb
Menntaskóli Borgarfjarðar:
Persónulegur og góður
skóli í Borgarnesi
MB fékk gesti frá Svíþjóð í vor. Hér er hópurinn í skoðunarferð í Reykholti.
„Við erum ekki stór skóli en það sem við höfum fram yfir marga skóla að við erum
mjög persónulegur skóli og samband kennara og nemenda er mjög gott,“ segir
skólameistari MB.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga verð-
ur settur eftir sumarfrí á morgun,
fimmtudaginn 18. ágúst, og hefst
kennsla samkvæmt stundaskrá sam-
dægurs. Í ár munu um 180 nemend-
ur stunda nám við skólann og þar af
rúmlega 50 nýnemar. „Við erum enn
að innrita svo það er ekki hægt að
gefa nákvæma tölu en eins og staðan
er núna eru 52 skráðir nýnemar. Það
er fjölgun á nýnemum frá því í fyrra.
Nemendur skólans sem eru í dag-
skóla koma flestir af Snæfellsnesi og
sunnanverðum Vestfjörðum en fjar-
nemendur búa víðsvegar um land-
ið og jafnvel erlendis,“ segir Hrafn-
hildur Hallvarðsdóttir skólameistari
FSN í samtali við blaðamann Skessu-
horns fyrir helgi.
Engin lokapróf
Hrafnhildur bendir á að allt starf
skólans byggi á hugmyndafræði þar
sem áherslan í kennsluháttum sé á að
nemendur sinni frekar verkefnvinnu
en að þeir séu óvirkir að hlusta á fyr-
irlestra. „Hér í FSN sitja nemend-
urnir ekki og hlusta á fyrirlestra held-
ur er frekar unnið í verkefnum. Hús-
næði skólans er hannað með þetta í
huga. Hér er opið rými en ekki hefð-
bundnar, lokaðar skólastofur.“
Hún segir að allt frá stofnun skól-
ans hafi verið lögð áherslu á þessa
hugmyndafræði í kennslu og í fram-
haldi af því var farið að nota svo-
kallað leiðsagnarmat í stað hefð-
bundins námsmats. „Við trúum ekki
á stór lokapróf í lok annar held-
ur frekar að nemendur vinni jafnt
og þétt alla önnina, taki próf reglu-
lega, skili verkefnum og fái einkunn-
ir í samræmi við þá vinnu sem þeir
hafa lagt í yfir önnina. Þegar skólinn
var stofnaður voru lokapróf en síðan
2007 höfum við verið leiðandi í mót-
un á námi sem byggir frekar á símati
eða leiðsagnarmati en lokaprófum.
Við höfum verið að taka skref í átt að
lokaprófslausu námi og þetta skóla-
ár mun verða átta daga verkefnavika
í stað prófdaga. Þessi verkefnavika er
ný hjá okkur en hún er mjög jákvæð
og eðlileg þróun. Við erum þrátt fyr-
ir þetta ekki prófalaus skóli því hér
eru tekin kaflapróf og önnur próf yfir
önnina,“ segir Hrafnhildur.
Í samstarfi
við aðra skóla
FSN hefur verið öflugur skóli í fjar-
kennslu undanfarin ár. Í ár eru 33
fjarnemendur skráðir en einnig er
framhaldsdeild á Patreksfirði þar
sem 25-30 nemendur stunda nám.
Það nám er kennt í fjarnámi og nem-
endurnir koma þrisvar til fjórum
sinnum á önn í staðarlotur í skól-
ann í Grundarfirði. „Fjarnámið hef-
ur gengið vel hjá okkur og töluverð-
ur fjöldi er skráður í það. Skólinn er
aðili að Fjarmenntaskólanum sem er
samstarfsvettvangur tólf framhalds-
skóla á landsbyggðinni. Fjarmennta-
skólinn auðgar námsframboðið okk-
ar til muna og býðst nemendum okk-
ar að sækja áfanga sem ekki eru í boði
hér og við fáum nemendur í áfanga
til okkar sem ekki eru í boði annars
staðar. Þetta er mikilvægt samstarf
fyrir minni skóla og eru til að mynda
nokkrir nemendur okkar í áföngum
í Menntaskólanum á Tröllaskaga og
öfugt. Það má eiginlega hugsa þetta
sem nokkurs konar skiptimarkað eða
lánssamning eins og í íþróttunum,“
segir Hrafnhildur.
Hrafnhildur segir að starfsfólkið sé
spennt fyrir komandi skólaári. „Það
er fínn andi í skólanum, það er ekk-
ert nýtt í starfsmannamálum og hér
þekkjast allir vel. Við erum bara glöð
og kát og spennt fyrir því að fá nem-
endurna í skólann,“ segir Hrafnhild-
ur að lokum. bþb
Fjölbrautaskóli Snæfellinga:
Verkefnavinna í stað prófdaga í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Í Fjölbrautaskóla Snæfellinga fer kennsla fram í opnum rýmum.
Mikil áhersla er lögð á hópa- og verkefnavinnu í skólanum.