Skessuhorn


Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 201610 Óhætt er að segja að hópur ungs listafólks hafi verið áberandi í Borgarnesi og nágrenni síðustu vikuna eða svo. Listahátíðin Plan-B artfestival hófst með listasmiðju í síðustu viku en lauk með sýningar- haldi og skemmtunum um helgina. Hátíðin er fjölþjóðleg, en um 20 listamenn af sjö mismunandi þjóð- ernum tóku þátt og komust færri að en vildu. Listafólkið stundaði fjöl- breytta listsköpun þar sem hljóð, mynd, grafík og allskyns listform var áberandi, margar útfærslur nú- tíma listar. Verkin spönnuðu allt frá olíumálverkum og innsetningum til vídeóverka. Mörg af helstu kennileitum Borgarness voru nýtt sem sýningar- rými á meðan hátíðinni stóð. Sjálf opnunarhátíðin var í gamla Mjólk- ursamlagshúsinu við Skúlagötu sem Pétur Geirsson eigandi hússins hafði léð listafólkinu. Þá var sýnt í fjósinu í Einarsnesi, Landnámssetr- inu og í Englendingavík. Loks var vinnuaðstaða listafólksins í félags- heimilinu Valfelli þar sem einn- ig var slegið upp partíi á Laugar- dagskvöldinu. Meðfylgjandi mynd- ir voru teknir við formlega opnun Plans-B á föstudagskvöldinu. mm Plan-B artfestival í Borgarnesi um helgina Verslunin Bresabúð verður opn- uð næstkomandi föstudag að Kal- mansvöllum 1A á Akranesi. Bresa- búð er verslun sem er hugsuð fyr- ir almenning en þó að stórum hluta fyrir iðnaðarmenn. Þar verður selt raflagnaefni, pípulagnaefni, hrein- lætistæki, málning og málningar- vörur en aðalbirgjar verslunarinnar eru þrír; Reykjafell, Tengi og Slipp- félagið. Bresabúð er stofnuð af þeim Kar- vel Karvelssyni og Márusi Líndal Hjartarsyni en einnig kemur Finn- ur Þórðarson að verkefninu með þeim og mun starfa í versluninni. „Við vonumst bara eftir góðum við- tökum þegar við förum af stað og hlökkum til að þjónusta Skagamenn og aðra Vestlendinga,“ segir Karvel í samtali við Skessuhorn. bþb Bresabúð opnuð á Akranesi á föstudaginn Á Stillholti 14 á Akranesi hafa miklar framkvæmdir staðið yfir í sumar. Ástæða framkvæmdanna er sú að húsnæði fataverslunarinnar Bjargs hefur verið tekið algjörlega í gegn. Verslunin hefur haft tíma- bundið aðsetur á Kalmansvöllum í sumar en mun á morgun flytjast aftur á Stillholt í nýtt, endurbætt og glæsilegt rými. bþb Verslunin Bjarg opnuð aftur á Stillholti á morgun Um þessar mundir er unnið að því að flytja Rauða kross búð- ina í Borgarnesi í nýtt húsnæði. Nýja staðsetningin er þó skammt frá þeirri gömlu, eða í næsta húsi, þar sem TK hárgreiðslustofa var nú síðast í gamla pósthúsinu. Að sögn Kjartans Sigurjónssonar for- manns Rauða krossins í Borgar- nesi eru framkvæmdir enn á byrj- unarstigi. „Hönnunarstofan Hvíta húsið kom hingað í byrjun mán- aðarins og skoðaði nýja húsnæðið, en starfsmenn hennar sjá um alla hönnunina. Þeir tóku myndir og vinna nú að því að teikna upp búð- ina áður en framkvæmdir geta haf- ist.“ Rauði krossinn er að vinna að breytingum í fleiri verslunum þar sem á að setja upp nýjar innrétt- ingar og gera verslanirnar fallegri. „Nýja húsnæðið er mikið bjartara og skemmtilegra en það gamla. Við vonum að með breyttu útliti muni verslunin höfða til fleiri, þá bæði að fleiri komi að versla og fleiri sjálf- boðaliðar bætist í hópinn. Við erum með fullt af flottum sjálfboðaliðum sem vinna í búðinni en við getum alltaf bætt við,“ segir Kjartan og bætir því við að stefnt sé að opna búðina í nýju húsnæði í septem- ber, þó nákvæm dagsetning sé ekki komin. arg Rauða kross búðin í Borgarnesi í nýtt húsnæði Það hefur verið mikill erill á Grund- arfjarðarhöfn í allt sumar en fjöldi skemmtiferðaskipa hefur átt við- komu í firðinum. Oft má sjá fjölda hópferðabíla í biðstöðu á höfninni, tilbúna til að ferja farþegana um- hverfis Snæfellsnesið. Farþegarnir sem stigu á land af skipinu Le Bo- real mánudaginn 15. ágúst hrepptu fallegt, íslenskt sumarveður en það skiptist á með rigningarúða og sól- arglætu með tilheyrandi sjónarspili regnboga og birtu. Þónokkrir far- þegar spókuðu sig um í bænum eins og venja er þó svo að flestir hafi þeir stigið upp í einhvern hópferðabílinn og fengið skemmtilega ferð um nes- ið undir dyggri leiðsögn. tfk Le Boreal leggur að í Grundarfirði Skipstjóri Le Boreal knýr hliðarskrúfur skipsins er hann leggur að hafnarkant- inum. Síðasti sveitamarkaður Framfara- félags Borgarfjarðar í sumar verð- ur í Nesi í Reykholtsdal laugardag- inn 20. ágúst. Til sölu verða nýupp- teknar kartöflur og grænmeti beint frá býli, jarðarber, kinda- og nauta- kjöt beint frá býli, gærur og dúnn, handverk úr skóginum, skemmti- legir límmiðar á vegg, kósýföt, nátt- úrusápur , sultur, ilmolíur, kvef- pinnar, handverk og margt fleira. -fréttatilkynning Sveitamarkaður í Nesi á laugardaginn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.