Skessuhorn


Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 41

Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 41
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016 41 Þó að, með því að gefa kost á mér í eitt af efstu sætunum í komandi prófkjöri VG, sé ég í raun að sækja um innivinnu í miðbæ Reykjavíkur, þá eru það málefni landsbyggðar- innar sem mest brenna á mér. Betri samgöngur, betra heilbrigðiskerfi og ljósleiðari hringinn í kringum landið eru þau mál sem ég vil setja í algjöran forgang. Þetta eru mál- efni landsbyggðarinnar ekki síður en höfuðborgarsvæðisins. Í umræðunni um nýtt hátækni- sjúkrahús í Reykjavík gleymist stundum að það eitt og sér leysir ekki allan vanda. Fólk heldur áfram að veikjast á landsbyggðinni og sama hversu hátæknilegt hátækni- sjúkrahúsið er þá þarf að vera hægt að veita fólki lágmarks aðhlynningu í hverju byggðarlagi. Að sjálfsögðu verður nýja sjúkrahúsið kærkom- ið fyrir alla landsmenn og verður sjúkrahús allra Íslendinga. Fólk á hins vegar ekki eftir að fara þangað frá Fáskrúðsfirði vegna fingurbrots eða frá Tálknafirði vegna tábrots. Það má ekki gleyma nærþjónust- unni sem er alveg jafn nauðsynleg. Í mínum heimabæ er staðan þann- ig núna að loks þegar maður kemst að hjá lækni þá eru miklar líkur á að maður sé búinn að gleyma hvað var að manni. Hér er úrbóta þörf. Það er líka verulegra úrbóta þörf í vegamálum í Norðvesturkjör- dæmi sérstaklega. Slystatíðni er há á vegum á Vestfjörðum og Vest- urlandi, sérstaklega og sums stað- ar standa lélegir vegir atvínnulífinu fyrir þrifum hreinlega, sérstaklega á sunnanverðum Vestfjörðum. Varðandi uppbyggingu í vega- málum á kerfið að vera einfalt og leiðinlegt! Einfalt að því leyti að forgangsröðun á ráðast af þörf og nauðsyn en ekki af því að maður þekki mann. (Þingmann). Leiðin- legt fyrir pólitíkusana að því leyti að þeir fái ekki að ráðskast með malbiksmetra eftir því hvar ber best í atkvæðaveiði. Í allri umræðunni um að það þurfi með einhverjum ráðum að fá unga fólkið aftur heim í hinar dreifðu byggðir þá gleymist stund- um að þar er bara fullt af ungu fólki nú þegar. Fólk sem er á fullu að byggja upp sína framtíð. Ungt fólk sem hefur tekið við af næstu kyn- slóð eða er að búa sér til sín eig- in tækifæri bara með sínum hæfi- leikum og þekkingu. Almennilegar vegasamgöngur eru meðal þess sem þarf til að ungt fólk vilji áfram búa á landsbyggðinni. Líka það sem þarf til að ungt fólk vilji flytja út á land. Rafrænar sam- göngur skipta ekki minna máli. Ekki síst fyrir ungt fólk. Góðar nettenginar skipta orð- ið máli í nánast hverju sem þú tek- ur þér fyrir hendur. Í ferðaþjón- ustu, fiskvinnslu, landbúnaði, iðn- aði hverskonar, menntastofnun- um og skapandi greinum, svo dæmi séu tekin er nauðsynlegt að hafa að- geng að góðri nettengingu. Það eru bullandi sóknarfæri núna fyrir landsbyggðina. Víðast hvar á landsbyggðinni er næg atvinna og jafnvel ríflega það. Fjölskylduvænt umhverfi, nálægð við náttúruna, allt (allavega flest) við hendina og minna stress og læti eru meðal bú- setukosta sem landsbyggðin get- ur boðið upp á. En til að lands- byggðin sé samkeppnisfær við höf- uðborgarsvæðið um íbúa þá þarf að vera hægt að bjóða upp á góða heilbrigðisþjónustu, akfæra vegi og ljósleiðara. Rúnar Gíslason Höf. býður sig fram í 1.-3. sæti í forvali á lista VG í Norðvesturkjör- dæmi. Þegar maður hefur ekki nóg að gera eru mestar líkur á að mað- ur geri einhverja bölvaða vitleysu. Eins og ýmsir hafa sjálfsagt tekið eftir hef ég ákveðið að gefa kost á mér í forvali Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi. Nú er það ekki svo að von mín um að hljóta þingsæti ráði þar för. Enda svo sem ekkert líklegt að svo muni fara, hreppi ég þriðja sæti listans. Ásetningur minn snýst miklu heldur um tækifæri til að taka þátt í umræðunni og geta sett mark mitt á hana. Það ríkir upplausn í íslenskum stjórnmálum og margt sem bend- ir til þess að mörg þeirra kerfa sem ríkt hafa séu að brotna upp. Og við megum ekki óttast breytingar heldur miklu heldur að reyna að taka þátt í þeim og leggja þar með breytingum lið. Allar þessar hrær- ingar verða með einhverjum hætti að gerast í sátt sem er grundvöll- uð á upplýstri umræðu. Eða með öðrum orðum, við verðum að tala saman, deila skoðunum og reyna að komast að sanngjarnri niður- stöðu. Margt er viðfangsefnið og víða mætti drepa niður fæti. Mér er þó efst í huga sú alvarlega staða sem blasir við eldra fólki. Þjóðin er að eldast og margir þeirra sem bætast munu í þann hóp á næstu árum verða mjög illa staddir við þær aðstæður sem nú eru. Verð- tryggða kynslóðin er að verulegu leiti eignalaus og við blasir að það félagslega kerfi sem nú er, mun ekki nægja og nægir ekki í dag. Þó hjón geti í dag hugsanlega skrimt við núverandi aðstæður má fátt út af bregða. Og getum við sætt okk- ur við það að við fráfall maka blasi nánast gjaldþrot við þeim sem eft- ir lifir? Þetta er eitt af þeim mál- efnum sem ég vil leggja áherslu á. Er það svona sem efndir kyn- slóðanna eru gagnvart kjörorðinu „Áhyggjulaust ævikvöld“? Ekki get ég neinu lofað um að gagn verði af minni þátttöku en ég mun láta rödd mína heyrast. Með kærri kveðju, Ingi Hans Jónsson „Veiðin gengur bara vel á vatna- svæðinu hjá okkur, mikið af sjóbirt- ingi í Hópinu og neðar á svæðinu,“ sagði Símon Sigurmonsson þegar við spurðum um Vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi. En veiðin hefur verið góð á svæðinu, sjóbirtingur, bleikja og lax. „Það er mikið af sjóbirtingi, mjög mikið. Einn og einn lax er líka að gefa sig, veiðimenn hafa verið ánægðir með veiðina hérna,“ sagði Símon enn fremur. Silungsveiðin gengur víða ágæt- lega. Í Hlíðarvatni veiddist vel um daginn, fallegar bleikjur og urrrið- ar. Vel vænir fiskar. gb Frábær gangur á Vatnasvæði Lýsu Veiðimenn með góða silunga á Vatnasvæði Lýsu. Landsbyggðin fyrir alla! Pennagrein Pennagrein Áhyggjulaust ævikvöld? Ég fór um Snæfellsnesið um daginn og heimsótti mágkonu mína í Grund- arfirði. Á meðan á þeirri för stóð mætti ég örugglega um 50 bílum sem voru annað hvort að hægja á sér til að leggja út í vegarkanti eða voru kyrrstæðir til að fólkið gæti tekið ljósmyndir. Ég get ímyndað mér hvernig ökumönn- um Group B rallýkappakstursins hlýt- ur að hafa liðið með alla áhorfend- urna ofan í sér á meðan á keppni stóð. Einn ökumaðurinn lýsti því þannig að þeir ímynduðu sér bara að áhorf- endur væru tré og það væru allir sam- mála um að best væri að sleppa því að keyra á tré. Á meðan ég liðaðist (bók- staflega) í gegnum Snæfellsnesveg þetta sólríka eftirmiðdegi með Sig- ur Rós streymandi í Spotify, ómaði í höfði mínu öskrandi mótorhljóðið í upptjúnuðum Audi Quattro group B rallýbílnum. Svo ég dragi þetta saman: Vegir landsins eru alltof þröngir og lé- legir fyrir svona mikla umferð. Í raun var gleði mín yfir því að fá mat hjá mágkonu minni samtvinnuð við ákveðinn létti, létti yfir því að hafa komist á áfangastað. Já, og líka að fá að sjá Kirkjufellið með eigin augum. Það er samt alltaf eins með þetta fræga fólk og náttúrufyrirbrigði að það er alltaf minna í eigin persónu, skrýtið hvern- ig það er. En hvað um það. Í fréttun- um var nefnilega frétt sem fór ekki hátt og er það stórfurðulegt að mínu mati, hún er um hákarlinn. Já, íslenska eða grænlenska hákarlinn, fer eftir því hvern þú spyrð. Þú veist hákarlinn sem við gefum grunlausum útlendingum til að hneyksla þá yfir því hversu mik- ið magn af bringuhári maður þarf að hafa eða skort á tilfinningu í tungunni til að kunna að meta slíka dásemd. Ég horfi framhjá öllu svoleiðis pjátri, mér finnst hann einfaldlega góður, fer í hálfgerða vímu þegar ég borða hann og finnst allt frábært sem allir segja. Kannski er það allt þetta ammóníak eða hitt eitrið sem er í honum, mér er svo sem sama – hver vill lifa að eilífu? En ég vissi ekki það að ég gæti farið aftur í tímann við að borða hann því nú hefur það komið upp úr krafsinu að vísindamenn segja að hann geti orðið allt að 400 ára gamall, 400 ára gam- all - og hann verður kynþroska þegar hann nær 150 ára aldri. Stöldrum að- eins og hugsum um það. Hugsum um það vel og vandlega því þetta er alveg magnað. Þetta þýðir að ég er mögulega með í frystinum lítið krúttlegt plastbox sem er með bita af hákarli sem byrjaði að svamla í Norð- ur-Íshafi árið 1616. Á sama tíma stóð ítalski stjörnufræðingurinn Galíleó Galilei fyrir framan hóp af mönn- um í Rómansk-kaþólsku kirkjunni og lofaði að segja aldrei aftur að jörð- in snerist í kringum sólina, því annars hefði farið illa fyrir honum (brennd- ur á báli jafnvel) og þjóðin var í torf- kofum. Er fólk svo hissa á því að há- karlinn sé svolítið sterkur á bragðið? Ég vissi að hann væri gamall en ekki svona gamall. Ég meina ég var alveg hugfanginn yfir því, þegar ég var há- seti um borð í togara með Jóni bróð- ir mínum eitt sumarið, að stórlúða sem við fengum um borð væri mögu- lega jafngömul og pabbi minn. Þessi nýtilkomna vitneskja mín smættar af- rek lúðunnar svo um munar. Allavega, næst þegar ég fæ mér í hákarl mun ég ekki bara fá mér bita af íslenskri mat- arhefð heldur líka mannkynssögunni. Jafnvel markaðssetja hann sem yng- ingarmeðal, ég meina hvers vegna lif- um við svona lengi? Ég held að það sé út af því að við borðum svona mikið af hákarli. Ég held að þetta sé vinkill sem Hildibrandur Bjarnason í Bjarn- arhöfn ætti að skoða, svona upp á túristana að gera. Það er ekki enda- laust hægt að segja að Snæfellsjök- ullinn, hákarlinn og Kirkjufellið hafi góð áhrif á frjósemina. Slagorðið gæti verið á þessa leið (ég gef Hildi- brandi fullt leyfi til notkunar á því og án kvaða, nema kannski eins og eina beitu við og við). OK, ég viðurkenni að þetta þarf kannski að fara í gegn- um einhverja fansý auglýsingastofu og það má breyta textanum: Smakk- aðu fortíðina/taste the past. Þetta á vel við þar sem við erum að selja túrist- unum upplifun, hvers vegna ekki að bjóða þeim upp á tímaflakk og yng- ingarmeðferð í leiðinni? Góðar stundir, Axel Freyr Eiríksson PISTILL Smakkaðu fortíðina / Taste the past Hildibrandur í Bjarnarhöfn, frægasti hákarlaverkandi landsins. Veiðin í Gufuá í Borg- arhreppi var ágæt til 6. júlí, en þá datt hún nið- ur og hefur verið frek- ar dræm undanfarið sök- um þurrka. Veiðikappinn Ísólfur Fjeldsted, sex ára, náði engu að síður maríu- laxi sínum úr ánni þrátt fyrir vatnsleysið. Laxinn var um sjö punda hæng- ur og fékkst í veiðistað nr. 37. Nú er hins vegar far- ið að rigna á svæðinu og stórstraumur gefur veiði- mönnum von um að aukið líf fari að færast í ána. gb Veiddi maríulaxinn í Gufuá

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.