Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016 25
BLT – BEIKONBÁTUR
ÞRIÐJUDAGUR
TÚNFISKUR
FÖSTUDAGUR
PIZZABÁTUR
MIÐVIKUDAGUR
RIFIÐ GRÍSAKJÖT
LAUGARDAGUR
TERIYAKI KJÚKLINGUR
FIMMTUDAGUR
ÍTALSKUR BMT
SUNNUDAGUR
SKINKUBÁTUR
MÁNUDAGUR
6” BÁTUR 599 KR.
SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS
Spurning vikunnar
Mikael Máni Hinriksson, 9 ára,
Grundarfirði
„Að fara í íþróttir og lesa.“
Sólveig Stefanía Bjarnadóttir,
9 ára, Grundarfirði
„Að fara í skólasund og læra
stærðfræði.“
Ásgeir Hjaltason, 10 ára,
Grundarfirði
„Það er skemmtilegt í skóla-
sundi og stærðfræði.“
Steinunn Lára Skúladóttir
6. bekk, Borgarfirði
„Að læra eitthvað nýtt og kynn-
ast nýjum krökkum.“
Ágúst Páll Þorsteinsson
7. bekk, Borgarfirði
„Mér finnst skemmtilegast að
hitta vinina aftur. Líka að byrja
í nýjum bekk og fá nýjar bækur.“
Siv Friðleifsdóttir formaður Velferð-
arvaktarinnar hefur sent frá sér til-
kynningu þar sem hún hvetur sveit-
arstjórnir, skólanefndir, skólaskrif-
stofur og skólastjóra til að leggja af
kostnaðarþátttöku foreldra vegna
ritfangakaupa barna eða halda henni
í lágmarki. Velferðarvaktin starfar
innan velferðarráðuneytisins og var
stofnuð snemma árs 2009 til þess að
fylgjast með afleiðingum efnahags-
hrunsins á heimilin í landinu. Vel-
ferðarvaktin hefur í gegnum tíðina
komið á framfæri ábendingum um
að sveitarstjórnir leggi áherslu á að
halda kostnaði heimila vegna skóla-
sóknar barna í lágmarki.
Í úttekt sem Velferðarvaktin gerði
og birt var í maí síðastliðnum kem-
ur fram að kostnaður ritfanga er allt
frá 400 til 22.300 krónur fyrir for-
eldra grunnskólabarna. Siv segir í
tilkynningunni að þetta samræm-
ist hvorki Barnasáttmála Samein-
uðu þjóðanna, þar sem segir að all-
ir eigi að njóta sömu réttinda þeg-
ar kemur að grunnmenntun, né 31.
gr. grunnskólalaga, þar sem seg-
ir að grunnmenntun skuli vera veitt
að kostnaðarlausu og óheimilt sé að
krefja nemendur eða foreldra þeirra
um greiðslu fyrir kennslu, þjónustu,
námsgögn eða annað efni sem nem-
endum er gert skylt að nota í námi
sínu.
Örfá sveitarfélög hafa farið þá
leið að útvega nemendum sínum
ritföng en þar má nefna Ísafjarð-
arbæ og Borgarfjörð eystri auk þess
sem Sandgerðisbær mun veita nem-
endum sínum frí ritföng á komandi
skólaári. bþb
Velferðarvaktin hvetur sveitarfélög til að útvega nemendum frí ritföng
„Hvað er skemmtilegast
við að byrja í skólanum?“