Skessuhorn


Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016 31 SK ES SU H O R N 2 01 6 Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is Skólasetning í grunnskólum Akraneskaupstaðar fer fram mánudaginn 22. ágúst 2016 1.-2. bekkur kl. 9.00 3.-4. bekkur kl. 10.00 5.-7. bekkur kl. 10.30 8.- 10. bekkur kl. 11.00 Brekkubæjarskóli Grundaskóli Opið hús verður í skóladagvistum skólanna þar sem foreldrar geta gengið frá vistunartíma og fengið nauðsynlegar upplýsingar. Jafnframt er opið hús í báðum skólum, frá kl. 9.30 í Grundaskóla og frá kl. 10.30 í Brekkubæjarskóla. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðum skólanna, www.brak.is og www.grundaskoli.is Skóla- og frístundasvið Skólasetning Brekkubæjarskóla verður í íþróttahúsinu við Vesturgötu kl. 10.00 fyrir 1. – 10. bekk Þátttakendum í Sumarlestri á Bóka- safni Akraness var boðið til Húll- umhæ hátíðar á bókasafninu á síð- asta degi verkefnisins. Börnin fengu viðurkenningu fyrir þátttöku sína í Sumarlestrinum og yfirlit yfir lest- ur sinn í sumar. Virkir þátttakend- ur í ár voru 146 og samtals lásu börnin 1200 bækur. Telur starfsfólk bókasafnsins að jafnvel sé um met- fjölda bóka að ræða. Blaðsíðurnar sem börnin lásu voru samtals ríflega 66 þúsund. Það þýðir að hver lesari las að meðaltali átta bækur eða 456 blaðsíður. Að loknu stuttu yfirliti yfir fjölda þátttakenda og lestur var börnunum boðið til leikja. Byrjað var á að klippa út andlitsgrímur með landsliðsfólki í knattspyrnu. Síðan skiptu börnin sér í lið og leystu þrautir í braut sem starfsfólk bókasafnsins hafði hann- að fyrir þau í tilefni dagsins. Húll- umhæinu lauk svo með happadrætti þar sem heppnir þátttakendur fengu glaðning. Aðspurð kváðust börn- in vera ánægð með daginn og kváð- ust hafa haft gaman af leikjunum. „Köngulóarvefurinn“ í þrautabraut- inni vakti einna mesta lukku meðal barnanna en einnig nefndu mörg að þeim hafi þótt gaman að blása sápu- kúlur. kgk Húllumhæ á Bókasafni Akraness Þessar stúlkur völdu að sjálfsögðu að klippa út andlitsgrímu af landsliðskonunni og markahróknum Margréti Láru Viðarsdóttur. Þessir drengir voru einbeittir þar sem þeir reyndu að klekkja á hvorum öðrum í myllu. Hvorugur hafði þó erindi sem erfiði að þessu sinni því niðurstaðan varð jafntefli. Sápuvatni var hellt í plastglas, röri komið fyrir neðst í glasinu og síðan blásnar sápukúlur við mikla hrifningu barnanna. Krakkarnir mættu erfiðum hjalla í þrautabrautinni þar sem könguló hafði mætt á svæðið og spunnið þéttan vef um ganginn inn af skjala- safninu. Börnin létu það þó ekki slá sig út af laginu og skriðu fimlega í gegn. SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.