Skessuhorn


Skessuhorn - 17.08.2016, Page 28

Skessuhorn - 17.08.2016, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 201628 SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS Auðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli þar sem mikil áhersla er lögð á samvinnu milli skólastiga. Skólinn verður settur 22. ágúst og hefst hefðbund- inn skólaakstur og kennsla sam- kvæmt stundaskrá þriðjudaginn, 23. ágúst. Fyrir komandi vetur eru 94 nemendur skráðir í skólann og er það örlítil aukning í fjölda barna á leik- og grunnskólaaldri frá síð- asta hausti. „Í vor luku 13 nemend- ur námi í 10. bekk og eru sjö nem- endur að hefja skólagöngu í 1. bekk núna,“ segir Hlöðver Ingi Gunn- arsson skólastjóri, en hann er að hefja sinn fyrsta vetur í Auðarskóla. Síðasta vetur var Hlöðver skóla- stjóri Grunnskóla Borgarfjarðar. Auk Hlöðvers tók einn nýr umsjón- arkennari til starfa en ekki hafa ver- ið gerðar aðrar breytingar á kenn- arahópnum. Leggja áherslu á sam- kennslu milli skólastiga Að sögn Hlöðvers er skólinn vel bú- inn starfsfólki og eru 80% kennara með kennsluréttindi og þeir sem ekki hafa réttindi búa vel að öðru námi. Aðspurður um helstu áherslur í skólastarfinu í vetur segir hann það fyrst og fremst vera innleiðingu nýrrar aðalnámskrár. „Við erum allt- af að þróa skólastarfið og því verður haldið áfram í vetur. Skólinn verður þátttakandi í forritun framtíðarinn- ar í vetur en það er spennandi verk- efni þar sem áhersla verður á forrit- unarkennslu fyrir nemendur jafnt sem kennara,“ segir Hlöðver. Vinaliðaverkefni Undanfarin þrjú ár hefur Auðar- skóli unnið að svokölluðu Vina- liðaverkefni og hefur það gef- ið góða raun. Verkefnið gengur út á að bjóða nemendum upp á fjöl- breytta afþreyingu í frímínútum í þeim tilgangi að gera þeim mögu- legt að tengjast vináttuböndum í leik. Lögð er áhersla á góð gildi eins og vináttu, virðingu, þolin- mæði og að allir fái að taka þátt. Markmið verkefnisins er að allir nemendur hlakki til að mæta í skól- ann sinn á hverjum degi. Vinaliðar eru valdir úr 4.-7. bekk og fara þeir á leikjanámskeið þar sem þeir læra að setja upp og stjórna leikjum. Auk þess er þeim kennt að bjóða í leiki og finna þá sem eru einir í frímín- útum og styðja við þá. Vinaliðarnir skiptast á að bjóða upp í skipulagða leiki og eftir að hafa verið vina- liði í hálft ár fá þeir umbunarferð þar sem einn dagur er tekinn í leiki og skemmtun. Í kjölfarið eru nýir vinaliðar valdir. Aðspurður segir Hlöðver helstu sérstöðu Auðarskóla vera að í skól- anum er lögð áhersla á samvinnu innan skólastiga þar sem kennar- ar vinna í teymum. „Þetta leiðir til þess að skólinn getur lagt mikla áherslu á að mæta hverjum nem- enda á hans námsforsendum.“ arg/ Ljósm. sm. Leik- og grunnskóli Hvalfjarðar- sveitar er sameiginlegur skóli með tveimur starfsstöðvum, grunnskól- inn Heiðarskóli er staðsettur við Leirá og leikskólinn Skýjaborg í Melahverfinu. Við skólann er einn skólastjóri, Jón Rúnar Hilmars- son, auk tveggja sviðsstjóra, Sigríð- ar Láru Guðmundsdóttur í Heið- arskóla og Eyrúnar Jónu Reynis- dóttur í Skýjaborg. Skólasetning í Heiðarskóla verður næstkomandi mánudag, 22. ágúst klukkan 16, og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst. Allir kennarar með kennsluréttindi Í Heiðarskóla eru 96 nemendur skráðir fyrir komandi vetur. „Í fyrra útskrifuðust sex nemendur úr 10. bekk og níu nemendur hefja nám í fyrsta bekk í haust. Einnig eru ör- litlar breytingar í öðrum bekkjum, einhverjir að fara og aðrir að koma,“ segir Sigríður Lára. Við skólann starfa 26, en einhverjar breytingar hafa orðið á starfsmannahópnum frá síðasta vetri. „Einn kennari er í ársleyfi og tveir starfsmenn hættu nú í sumar. Það gekk þó mjög vel að ráða í allar stöður þó umsóknir hafi ekki verið margar,“ segir Sigríður Lára og bætir því við að allir kenn- arar í Heiðarskóla hafi kennslurétt- indi. Tómstundastarf fyrir yngstu bekki Gildi Heiðarskóla eru vellíðan, virðing, samvinna og metnaður en þau eru lögð til grundvallar öllu starfi skólans. „Við leggjum mikla áherslu á umhverfismennt, teymis- kennslu, spjaldtölvur og Uppeldi til ábyrgðar. Teymiskennslan var inn- leidd síðasta haust með góðum ár- angri og ætlum við að þróa okkur áfram með hana í vetur,“ segir Sig- ríður Lára. Í vetur verður sú nýj- ung í Heiðarskóla að nemendum í 1.-4. bekk gefst kostur á að fara í tómstundastarf í skólanum eftir að kennslu lýkur. Leggja áherslu á sjálfbærni Heiðarskóli er staðsettur úti í sveit í umhverfi sem er mikið nýtt í skóla- starfinu. „Við erum Grænfána- skóli og förum í vettvangsferðir. Við reynum að vera eins sjálfbær og kostur er; ræktum grænmeti, setjum niður kartöflur og kaupum afurðir eins og hægt er úr heima- byggð. Við leggjum mikið upp úr vellíðan starfsmanna og nemenda og er starfsmannavelta í Heiðar- skóla lítil,“ segir Sigríður Lára og bætir því við að fámennið sé einn- ig hluti af sérstöðu skólans, þar sem allir þekkja alla með nafni og starfs- menn skólans bera allir velferð og vellíðan allra nemenda fyrir brjósti. „Við berum sameiginlega ábyrgð á nemendahópnum og erum öll til- búin að aðstoða hvert annað.“ Að auki nefnir hún að samstarf á milli Heiðarskóla og Skýjaborgar sé öfl- ugt. Skólahópur úr Skýjaborg fer í reglulegar heimsóknir í Heiðar- skóla yfir veturinn. Þá fer fyrsti bekkur einnig og heimsækir Skýja- borg auk þess sem unglingarnir fá tækifæri til að kynnast starfseminni í leikskólanum. arg Auðarskóli í Búðardal: Hverjum nemanda mætt á hans forsendum Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit: Leggja mikið upp úr vellíðan starfsmanna og nemenda Það var fjör í Auðarskóla á síðasta skóladeginum í vor. Farið var í leiki og krakkarnir skemmtu sér saman. Gula liðið á Survivor-deginum í Fannahlíð í vor. Lækurinn á lóð Heiðarskóla er mjög vinsæll og þá er gaman að nýta góða veðrið til að vaða smá í honum.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.