Skessuhorn - 17.08.2016, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016 29
FRYSTIKERFI ehf
BRIM HF.
R E S T A U R A N T
Akranesi
Snæfellsbær
Útvegsmannafélag
Snæfellsness
Vélaverkstæði Hillarí
Nesvegi 9
340 Stykkishólmi
Sigurður: 894 6023
Rúnar: 694 9323
www.sjomennt.is
Óskum sjómönnum til
hamingju með daginn
SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS
„Laugargerðisskóli á Snæfellsnesi
verður settur 22. ágúst en starfs-
fólk mætti til vinnu um miðjan
ágúst. Kennsla hefst samkvæmt
stundaskrá daginn eftir, 23. ágúst.
Starfsárinu lýkur í lok maí,“ seg-
ir Kristín Björk Guðmundsdótt-
ir, skólastjóri Laugargerðisskóla,
í samtali við Skessuhorn. Laugar-
gerðisskóli er bæði leik- og grunn-
skóli og áætlar Kristín að 21 nem-
andi verði við skólann í vetur á
leik- og grunnskólaaldri. Tvö börn
útskrifuðust úr 10. bekk skólans í
vor en ekkert byrjar í 1. bekk nú í
haust. „Vegna fækkunar nemenda
hafa verið gerðar ýmsar breyting-
ar. Megináherslan er þó lögð á að
nemendur fái sömu fjölbreytni í
skólastarfinu og verið hefur,“ seg-
ir Kristín.
Sömu starfsmenn verða við
Laugargerðisskóla í vetur og voru
síðasta skólaár. Ekki allir kennarar
eru með kennsluréttindi og tveir
hafa minnkað við sig vinnuna en
kenna þó þannig að allar greinar
verða kenndar eins og áður. „Einn
kennari kennir bæði hjá okkur og
í Grunnskólanum í Borgarnesi og
minnkar starfshlutfallið hér. Einn
starfsmaður kemur nýr í skól-
ann sem stuðningsfulltrúi. Fjöldi
starfsmanna er 13 en einungis þrír
starfsmenn eru í fullu starfi,“ seg-
ir hún.
Ein sérstaða Laugargerðisskóla
er mikið samstarf við aðra skóla.
„Til þess að auka möguleika ung-
linganna á vali og félagsskap hef-
ur verið farið í meira samstarf við
Grunnskólann í Borgarnesi. Einn
dag í viku, þegar val er á unglinga-
stiginu, fer kennari og nemendur
á unglingastigi í Borgarnes. Kenn-
arinn kennir í Borgarnesi upp-
lýsinga- og tæknimennt en nem-
endur fara inn í aldurssamsvar-
andi bekki á meðan,“ segir Krist-
ín. „Í Laugargerðisskóla hefur far-
ið fram stöðug þróun á einstak-
lingsmiðuðu námi og nemend-
ur orðnir leiknir að nota spjald-
tölvur. Í ár verður þessi tækni inn-
leidd í Grunnskólann í Borgar-
nesi af sama kennara og hefur
byggt upp starfið hér,“ bætir hún
við. Þá er tónlist enn fremur fast-
ur liður í skólastarfi Laugargerð-
isskóla. „Tónlistarskóli Steinunn-
ar Pálsdóttur er hér tvo daga í viku
samþætt inn í skólastarfið. Flestir
nemendurnir taka þátt í tónlistinni
sem er ein af sérstöðum skólans,“
segir hún og bætir því við að einn-
ig komi smíðakennari einu sinni í
viku frá Stykkishólmi.
Samstarf styrkir
fámenna skóla
Laugargerðisskóli er heilsueflandi
skóli og mun vinna áfram í því
verkefni. Þá taka nemendur þátt
í smiðjuhelgum með Grunnskóla
Borgarfjarðar og unglingastigið
hefur farið með jafnöldrum sínum
úr GBF í skíðaferð undanfarin ár.
Skólabúðir eru skipulagðar þann-
ig að samstarfsskólarnir svoköll-
uðu séu á sama tíma í skólabúð-
um. Samstarfsskólar Laugargerð-
isskóla eru Grunnskólinn í Borg-
arnesi, Gunnskóli Borgarfjarðar,
Auðarskóli, Heiðarskóli og Reyk-
hólaskóli. „Það er mikill styrkur
lítilla skóla að eiga gott samstarf,“
segir Kristín.
Þá var Laugargerðisskóli einn
af fyrstu skólunum til að innleiða
markvisst vinaliðastarf, en Auðar-
skóli er þar aðal samstarfsaðilinn.
„Þar eru það nemendur á miðstigi
sem eru í samstarfi. Samstarf við
félagsmiðstöðina Óðal er árlegt
og gerir það að verkum að nem-
endur úr Laugargerði hafa kynnst
nemendum í Borgarnesi,“ segir
Kristín. En skólinn á einnig í góðu
samstarfi við aðra skóla á Snæfells-
nesi að sögn skólastjórans. „Laug-
argerðisskóli fær nú sérfræðiþjón-
ustu frá Félags- og skólaþjónustu
Snæfellinga,“ segir hún. „Nem-
endur úr Lýsuhólsskóla koma
hingað á langa daga og nemendur
héðan fara að Lýsuhóli. Foreldra-
félögin skipuleggja félagsstarf
nemendanna og eru mjög dugleg
í því starfi,“ bætir hún við. „Þrátt
fyrir fámennið horfum við bjart-
sýn fram á veginn,“ segir Kristín
Björk Guðmundsdóttir að lokum.
kgk
Laugargerðisskóli:
Samstarf við aðra skóla mun
einkenna starf Laugargerðisskóla
Nokkrir af yngri nemendum Laugargerðisskóla vopnaðir pappírsflugvélum.
Frá atriði nemenda á árshátíð skólans.
HAGNÝTAR NÁMSBRAUTIR
Fisktækniskóli Íslands
býður upp á fjölbreytt
nám í sjávarútvegi á
framhaldsskólastigi.
Námið er hagnýtt tveggja
ára nám sem byggt er
upp sem önnur hver önn í
skóla og hin á vinnustað.
Nemendur geta valið sér
námsleiðir í sjómennsku,
Verkefni og vinnustaðir
eru valdir með hliðsjón af
áhuga hvers og eins.
Nám í skóla - nám á vinnustað
FISKTÆKNI
Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf.
Á Fisktæknibraut er hægt að velja þrjár línur:
-Sjómennska/veiðar
- Fiskvinnsla
- Fiskeldi
Hvert námsár skiptist í eina önn í skóla og eina á vinnustað
undir leiðsögn tilsjónamanns.
MAREL VINNSLUTÆKNI
Eins árs nám í Fiskeldi, Gæðastjórnun og Marel vinnslutæknir.
Inntökuskilyrði:
Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi.
Mat á reynslu og þekkingu úr sjávarútvegi getur einnig gilt til að
uppfylla inntökuskilyrði.
Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám.
Námið verður kennt í dreinámi og staðlotum sem hentar
starfandi fólki í greininni.
GÆÐASTJÓRN
FISKELDI
Spennandi blanda bóklegs og verklegs náms sem gefur mikla starfsmöguleika eða til frekari menntunnar.
Nánari upplýsingar hjá
starfsmönnum Fisktækniskóla
Íslands í síma 412-5966 eða á
Tveggja ára hagnýtt framhaldsskólanám til
starfa í sjávarútvegi.
Nýtt og spennandi starfsnám sem byrjar í janúar 2017
Bjóðum upp á þrjár nýjar eins árs námsbrautir.