Skessuhorn


Skessuhorn - 17.08.2016, Qupperneq 43

Skessuhorn - 17.08.2016, Qupperneq 43
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 2016 43 Unglingalandsmót UMFÍ fór fram dagana 28.- 31. júlí í Borg- arnesi, eins og ítarlega hefur verið fjallað um í Skessuhorni. Heppn- aðist mótið mjög vel og virtust all- ir vera ánægðir með það. Byggðar- ráð Borgarbyggðar lýsti yfir ánægju sinni með vel heppnað mót í yfir- lýsingu og segir að samstarf Borg- arbyggðar við UMFÍ og UMSB við undirbúning og framkvæmd móts- ins hafi verið eins gott og hugast getur. Færir byggðarráð þar ung- mennafélagshreyfingunni þakk- ir fyrir gott og ánægjulegt samstarf við þetta stóra verkefni. Sérstakir þakkir fá allir þeir fjölmörgu sjálf- boðaliðar úr héraðinu sem komu að framkvæmd mótsins á einn eða annan hátt. Þá segir í bókun Byggð- arráðs: „Án þess metnaðar og dugn- aðar sem einkenndi aðkomu heima- fólks væri ógerlegt að standa fyr- ir viðburði sem þessum. Öll um- gengni og nærvera gesta á meðan á mótinu stóð var síðan til fyrirmynd- ar. Lögreglan lýsti yfir sérstakri ánægju sinni með góð samskipti við mótsgesti. Að lokum má nefna að frágangur á tjaldstæði að mótinu af- loknu var einstaklega góður og var hann í samræmi við þann anda sem ríkti meðal mótsgesta alla helgina.“ bþb/ Ljósm. þa Borgarbyggð himinlifandi með vel heppnað Unglingalandsmót Oddný Þorkelsdóttir í Borgarnesi verður 96 ára á morgun, fimmtudag- inn 18. ágúst. Fjölskylda hennar ætl- ar að halda upp á daginn með tón- leikum í Borgarneskirkju sem hefjast klukkan 19:30. Á dagskránni verða sönglög sem minna á gamla tíma í stofunum við Skúlagötu. Þar fóru fram æfingar fyrir fjölmargar söng- dagskrár og innskot á skemmtunum í Héraðinu á árum áður. Sum laganna eru alþekkt en önnur hálfgleymd eða gleymd, að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings, sonar Oddnýjar, sem á frumkvæði að tónleikahaldinu. Flytjendur á tónleikunum verða allir úr héraðinu, rétt eins og oft- ast var við Skúlagötuna. Söngvar- ar eru þau Sigríður Ásta og Hanna Ágústa Olgeirsdætur, Kristján Ágúst Magnússon og Magnús Kristjáns- son, Jónína Erna Arnardóttir leik- ur með á píanó og stjórnar tónflutn- ingi. „Aðgangur er ókeypis og gam- an væri að sjá sem flesta. Reiknað er með að tónleikarnir taki um það bil klukkustund, hlé er ekkert og veit- ingar engar. Verið velkomin,“ segir í tilkynningu. mm Bjóða á afmælistónleika Oddnýjar Myndin sýnir Oddnýju og Halldór Sigurbjörnsson á kvöldskemmtun húsmæðraorlofsviku Kaupfélags Borgfirðinga á Bifröst árið 1956. Kristín S. Þórarinsdóttir hefur ver- ið ráðin hjúkrunarforstjóri dval- ar- og hjúkrunarheimilisins Silfur- túns í Búðardal. Gert er ráð fyrir því að hún hefji störf þriðjudaginn 23. ágúst. Kristín er ættuð af Akra- nesi en starfaði síðast sem hjúkrun- arstjóri hjá Heilsugæslunni á Sel- tjarnarnesi. Þar áður var hún hjúkr- unarforstjóri á Heilsugæslustöðinni í Ölfusi um margra ára skeið. Hún er sérmenntuð á sviði heilsugæslu auk þess að hafa lokið gæðastjórn- unarnámi og námi í viðskiptum og rekstri. Hún hefur því bæði mennt- un og mikla reynslu af hjúkrun og rekstri heilbrigðisstofnana. Kristín telur að það muni koma sér vel þeg- ar hún hefur störf á Silfurtúni, þar sem hjúkrunarforstjóri heldur utan um bæði rekstur heimilisins og þjón- ustu við íbúana. „Það er mjög mik- ill kostur. Ef maður hefur reynslu og þekkingu á rekstri auk hjúkrun- ar þá á maður að hafa góða yfirsýn yfir alla starfsemina. Vonandi tekst mér það,“ segir Kristín í samtali við Skessuhorn. Góður rekstur skiptir höfuðmáli Hún kveðst alltaf hafa haft mikinn áhuga á rekstri og stjórnun og þess vegna ákvað hún að sækja um stöðu hjúkrunarforstjóra Silfurtúns. „Ég er búin að vera hjúkrunarstjóri á heilsu- gæslunni á Seltjarnarnesi en ákvað að taka mér smá hlé frá störfum. Ég var því í smá biðtíma þegar mér var bent á þetta starf, fannst það strax mjög freistandi og mér líst mjög vel á þetta,“ segir Kristín og bætir því við að henni líki vel að vinna með öldr- uðu fólki. „Aldrað fólk er svo þrosk- að og flott fólk og hefur sína lífsins sögu,“ segir hún. Aðspurð segir Kristín að sín fyrstu verk verði að komast inn í starfið og kynnast fólkinu. „Í framtíðinni hyggst ég innleiða ákveðið gæða- kerfi. Öll gæðastjórnun snýst um að gera stöðugar umbætur á allri starf- semi og fá fólkið með sér í vinnu við það,“ segir hún. „Auðvitað eru ein- hver verkefni aðkallandi. Það skiptir höfuðmáli að þarna sé góður rekst- ur. Það eru uppsafnaðar skuldir sem erfitt getur verið við að eiga en við skulum sjá hvað setur. Einnig skipt- ir miklu máli góð samvinna bæði heimamanna og starfsfólks,“ segir hún. „En á þessu stigi málsins þarf ég fyrst og fremst að átta mig á að- stæðum og sjá hver staðan er. Það gætu verið tækifæri til að auka þjón- ustuna en ég ætla fyrst að komast inn í starfið og vanda skrefin mín,“ segir Kristín að lokum. kgk Nýr forstöðumaður Silfurtúns í Búðardal Kristín Þórarinsdóttir. Dvalar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal. Ljósm. sm. Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk þess hefjum við nú birtingu lausnar á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: kross- gata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu- dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessu- horn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsend- um lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessuhorni; „Pétrísk íslensk orðabók með alfræðiívafi,“ eftir sr. Pétur Þorsteinsson. Alls bárust 58 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Orðaleik- ur.“ Vinningshafi er: Helgi Ormsson, Boða- þingi 24, 203 Kópavogi. Himinn Fruma Grind Sögn Eink.st. Góður Máttur Kvakar Flötur Nær- vera Kúga Þruma Ábreiða Mynni Mátar Hjól Titill Vangi Krukka Þolraun Hljóta Sár 5 Skaut Spyr Skar Suddi Þramm 7 Athuga Svall Droll Þrep Hneigðu Ögn Þegar Klampar Hlífa Kúla Flínk Fjalls- brún Land- bára Hæð 1 Söngl Tauta Væta Ýtir Dugur Anda Geisla- baug Húð Hryðja Suða 6 3 Von Ras Ask Elfum Gelt Satt Hæð Þoka Erna Hret Röð Tónn Beita Þreytt Flan Nískur Reipi Geta Leit Rór Droll Hljóp Lítill Óvissa Skella Sefa 9 Báta- skýli Skass Gáta Rífur Korn Dæld Bíll Álit Tónn Marra 4 7 Sérhlj. Blundur Hnoðað Óregla Titill Óreiða Kvað Röð Sýl Varmi Gripur Tölur Espaði Fagur Aðstoð Fuglar 2 8 1 2 3 4 5 6 7 8 9 A D Ö G U R Ð U R Ó S P A R T Á R L A S R Ó S T A Ú R T R A N T U R M A R R A Ð I T A P N U N N A Á K R A M S P Á G Á R A R Ö M M E V A L E I Ð A R V Í S U N R I S A L S Á A N Ú S T R U N S A R A L D A U N D R A S S A X L I R N A R R A D T U L D R A R G R Ó A N D A N N M U S A R T U G U R A U R Á F A L T P A R T U R V I N N A Ó A S A M T Ó N A R L E Y R A V A R A G N R Ó L N A M N A G L A N A T A L D L Á N A E R G L Ó Ð I I A M I O G T U N G L I Ð O R Ð A L E I K U RL A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.