Skessuhorn - 05.10.2016, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 20162
Síðasta beina áætlunarferðin á veg-
um Gray Line milli Keflavíkurflug-
vallar og Aureyrar var farin síðast-
liðinn föstudag. Ekki verður boðið
upp á ferðirnar í vetur. Næstu mán-
uði verður metið hvort grundvöll-
ur telst fyrir áframhaldandi ferðum
næsta sumar.
„Það verður að segjast eins og er
að nýtingin í þessum ferðum, sem
hófust í apríl, hefur reynst mun lak-
ari en við áttum von á,“ segir Þórir
Garðarsson stjórnarformaður Gray
Line. „Þar með er þó ekki sagt að
við höfum misst trú á þessum ferða-
möguleika. Bein lína frá Keflavíkur-
flugvelli er án vafa besti valkostur-
inn til að gera ferðamönnum kleift
að komast viðstöðulaust út á land.
Sömuleiðis hentar þessi ferðamáti
fólki að norðan ákaflega vel til að
komast í flug og hægt að komast í
rútuna á nokkrum stöðum á leiðinni,
til að mynda í Skagafirði, Blönduósi,
Staðarskála og Borgarnesi.“
Þórir segir að Gray Line hafi ver-
ið vel samkeppnisfær við Strætó bs
í fargjaldi, þó svo að fyrirtækið hafi
þurft að leggja virðisaukaskatt á far-
gjöldin, en það þarf Strætó ekki.
mm
Októbermánuður er að vanda helgað-
ur baráttunni gegn brjóstakrabbameini
hér á landi. Líkt og undanfarin ár stend-
ur Krabbameinsfélagið fyrir árvekniátak-
inu Bleiku slaufunni sem er átaksverkefni
gegn krabbameini í konum. Ýmsar gagn-
legar upplýsingar um brjóstakrabbamein
og átakið má finna á vefnum
bleikaslaufan.is
Á fimmtudag verður suðaustan 10 - 15
m/s og talsverð rigning sunnan- og vest-
anlands fyrripart dags en síðan skúrir.
Bjartviðri verður norðaustan til. Hiti 7 til 16
stig, hlýjast norðaustan til. Á föstudag og
laugardag er útlit fyrir stífa suðaustlæga
átt og vætusamt sunnan- og vestan til á
landinu en þurrt og bjart að mestu um
landið norðaustanvert. Áfram milt veð-
ur. Á sunnudag og mánudag spáir suð-
vestlægri átt og skúrum en áfram verð-
ur bjartviðri norðaustan- og austanlands.
Heldur kólnandi veður.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvert er eftirlætis millimálið þitt?“ Les-
endur Skessuhorns kjósa flestir að borða
hollt á milli mála en 25% svarenda sögðu
eftirlætis millimálið vera ávexti og græn-
meti. Í öðru og þriðja sæti eru sælgæti og
kex með 18% en þeir sem borða ekki á
milli mála eru einnig 18% svarenda. 8%
svarenda sögðust borða hnetur og ann-
að en fæstir fá sér ber á milli mála, eða ein-
ungis 4% þeirra sem tóku þátt.
Í næstu viku er spurt „Hversu oft í viku
ferðu í bað eða sturtu?“
Knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugs-
son ÍA skoraði 14 mörk í Pepsi - deild-
inni í sumar og skoraði því flest mörk
allra. Hann fékk að launum hinn eftirsótta
gullskó. Þá var Ármann Smári Björnsson
félagi hans í ÍA kjörinn besti leikmaður
Íslandsmótsins í sumar af blaðamönn-
um Morgunblaðsins. Garðar og Ármann
Smári eru Vestlendingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Leiðrétt -
skeikaði öld
BORGARNES: Í frétt
Skessuhorns í síðustu viku
um frumflutning Guð-
mundar Andra Thorssonar
á sögu langafa síns, Thors
Jensen, á Pakkússlofti
Landnámssetursins var sagt
að Kaupangur, elsta húsið í
Borgarnesi, hafi verið byggt
1778, en það mun hafa ver-
ið réttri öld síðar, eða 1878.
Þetta leiðréttist hér með og
hlutaðeigandi beðnir vel-
virðingar.
-mm
Átta slys og óhöpp
í umferðinni
VESTURLAND: Samtals
urðu átta umferðaróhöpp
í umdæmi Lögreglunnar á
Vesturlandi í síðustu viku.
Á öðrum stað í blaðinu er
greint frá hörðum árekstri
þegar sjúkrabíll í forgang-
sakstri lenti á jeppling á
Vesturlandsvegi. Þar voru
allir í öryggisbeltum og því
fór mun betur en áhorfðist
í fyrstu, að sögn lögreglu.
Tveir erlendir ferðamenn
slösuðust minniháttar er
bílaleigubíll þeirra fór útaf
og valt við Háls á Skógar-
strönd á mánudaginn. Voru
þeir fluttir til aðhlynning-
ar á Sjúkrahúsið á Akranesi.
Fjórar kínverskar stúlkur
sluppu með skrekkinn er
þær lentu út í Hraunhafnará
á Snæfellsnesi á bílaleigu-
bílnum sínum, enda voru
þær allar í öryggisbeltum,
bíllin fór í loftköstum út í
á en hélst á hjólunum. Sú
sem að ók hafði fengið öku-
skírteinið sitt í apríl og ekki
ekið mikið síðan. Kvaðst
hún hafa fylgt leiðbeining-
um frá „Google maps“ en
samt endað út í ánni.
-mm
Dýr komu þrettán
sinnum við sögu
VESTURLAND: Í dagbók
Lögreglunnar á Vesturlandi
í vikunni sem leið eru skráð
þrettán tilvik varðandi dýrin
okkar stór og smá. Þetta eru
tilkynningar allt frá „hund-
ur bítur hund“ upp í að til-
kynnt var um að ekið hafi
verið á skepnur á vegunum
og þær drepist. „Auðvitað
er slæmt að kindur og lömb
séu á vegsvæðum en hættu-
legastir eru stórgripirnir
sem oftast eru hross sem að
sleppa út úr girðingum en
nautpeningur hefur einn-
ig sloppið út þó það sé mun
sjaldnar. Í þessum tilvikum
reynir lögreglan að bregð-
ast fljótt við og sjá til þess
að gripunum sé komið inn
í næstu girðingar svo ekki
skapist frekari hætta,“ seg-
ir Theódór Þórðarson yfir-
lögregluþjónn.
-mm
Á Sauðamessu sem fram fór í Borg-
arnesi síðastliðinn laugardag voru ár-
legar umhverfisviðurkenningar Borg-
arbyggðar afhentar. Kallað var eftir
tilnefningum og er það umhverfis,-
skipulags- og landbúnaðarnefnd sem
annast framkvæmdina. Jónína Erna
Arnardóttir formaður nefndarinnar
afhenti verðlaunin ásamt Gunnlaugi
A Júlíussyni sveitarstjóra.
Að þessu sinni var snyrtilegasta
bændabýlið Ölvaldsstaðir 4 í Borgar-
byggð þar sem Guðrún Fjeldsted býr
og rekur m.a. hestaleigu. Snyrtileg-
asta lóð við íbúðarhús er Fjóluklettur
18 í Borgarnesi, þar sem hjónin Eva
Eðvarðsdóttir og Trausti Jóhannsson
búa. Snyrtilegasta lóð við atvinnu-
húsnæði er aðstaða Veitna (Orku-
veita Reykjavíkur), við Sólbakka í
Borgarnesi. Loks var veitt sérstök
viðurkenning vegna umhverfismála,
en þau féllu í hlut Jófríðar Leifsdótt-
ur á Túngötu 15 á Hvanneyri. Verð-
launin eru veitt fyrir snyrtilegt um-
hverfi, lóð og nærliggjandi svæði sem
ábúendur halda snyrtilegu.
mm
Hlutu umhverfisverðlaun Borgarbyggðar
Fulltrúar þeirra sem hlutu viðurkenningar auk formanns umhverfis- og skipulags-
nefndar. F.v. Jónína Erna, Hafdís Ósk Jónsdóttir (sem veitti viðtöku verðlaunum
f.h. Jófríðar móður sinnar), Guðrún Fjeldsted, Eva Eðvarðsdóttir og Trausti
Jóhannsson. Á myndina vantar fulltrúa frá Veitum sem hlutu viðurkenningu fyrir
snyrtilegustu lóð við atvinnuhúsnæði.
Gray Line setur áætlunarferðir á ís
Um sjö metra löng hrefna lenti í sjálf-
heldu á leirunum í Borgarvogi, norð-
an við Borgarnes, síðastliðinn laugar-
dag. Til hvalsins sást kvöldið áður, en
hann var særður og því talið útilokað
að bjarga honum. Á fjöru um hádeg-
isbil á laugardaginn var enn lífsmark
með hvalnum, en samkvæmt beiðni
frá yfirdýralækni var hann þá aflífað-
ur. Á háflóðinu klukkan 18 fór síðan
hópur af félögum í Björgunarsveit-
inni Brák og dró hræið upp á land í
Borgarneshöfn. Fjölmenni gerði sér
ferð á laugardaginn og fyldist með
hvalnum frá landi og sömuleiðis þeg-
ar hræinu var komið á land. mm
Hvalur strandaði á Borgarvogi við Borgarnes
Völundur Sigurbjörnsson kom á vörubíl með öflugan krana og lyfti hvalnum upp
á pallinn og ók honum vestur að Fíflholtum þar sem hann var dysjaður. Hvalurinn
vóg tæp fjögur tonn. Voru færeysk ættaðir karlar sem staddir voru á bryggjunni
sammála um að þarna væri illa farið með góðan mat. Ljósm. Þorleifur Geirsson.
Hvalurinn á leirunum á laugardagsmorgun. Ljósm. Davíð Freyr Bjarnason. Hvalurinn var særður og var aflífaður enda talið útilokað að hann myndi lifa af.
Ljósm. mm.
Hræið af hvalnum dregið að landi. Ljósm. Þorleifur Geirsson.