Skessuhorn - 05.10.2016, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 201610
Um miðjan september lauk form-
lega endurmælingu á grunnstöðv-
aneti Íslands en mælingarnar hóf-
ust í vor. Í Kvarðanum, nýjasta
fréttabréfi Landmælinga Íslands,
er sagt frá því að endurmæling á
grunnstöðvanetinu sé nauðsynleg
til að viðhalda nákvæmni í lands-
hnitakerfi Íslands sem aflagast
vegna mikilla jarðskorpuhreyfinga,
en gert er ráð fyrir að bjögun í nú-
gildandi viðmiðun frá árinu 2004
sé orðin 20-25 cm og bjögun frá
árinu 1993 sé 40-50 cm. Lands-
hnitakerfið og viðmiðun þess er
grundvöllur annarra landmælinga
og þar með undirstaða stafrænnar
kortagerðar, landfræðilegra upp-
lýsingakerfa, vöktunar og verk-
legra framkvæmda. Grunnstöðv-
anetið hefur verið mælt tvisvar
áður með GPS-tækni, fyrst árið
1993 og svo aftur árið 2004. Að
þessu sinni voru 123 fastir punkt-
ar mældir auk þess sem síritandi
GPS-mælingar frá um 100 föstum
jarðstöðvum LMÍ og samstarfs-
aðila voru nýttar samhliða mæl-
ingunum.
Þrír starfsmenn Landmælinga Ís-
lands sáu um mælingar en mæli-
dagar voru um 200. Til verkefnisins
fékkst sérstök fjárveiting úr ríkissjóði
auk þess sem Vegagerðin, Lands-
virkjun og Landhelgisgæsla Íslands
studdu við verkefnið. Fyrir þessar
stofnanir er augljós ávinningur af því
að viðhalda nákvæmni hnitakerfisins
en hið sama gildir um ýmsar aðrar
stofnanir, sveitarfélög og einkafyr-
irtæki sem tengja landmælingar við
hnitakerfið t.d. við kortagerð, skipu-
lagsmál og verklegar framkvæmdir.
mm/ Ljósm. Kvarðinn -
fréttabréf LMÍ.
Landið hefur hnikast til um hálfan metra á 23 árum
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, hófu
endurmælinguna á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi 31. maí sl. Mælipunkturinn á Valhúsahæð hefur verið
einn grunnpunkta í landmælingum á Íslandi frá 1904.
Þrír starfsmenn LMÍ önnuðust mælingarnar. F.v. Jón Erlingsson, Guðmundur Valsson og Þórarinn
Sigurðsson.
Útgerðarfélagið Hjallasandur ehf.
á Hellissandi hefur fest kaup á nýj-
um báti, Sandvík EA frá Árskógs-
strönd. Var bátnum siglt til hafnar í
Rifi síðastliðinn miðvikudag. Sand-
vík er 43 brúttótonna bátur, smíð-
aður árið 1996 á Ísafirði. Fyrir á
Hjallasandur minni bát sem verð-
ur seldur. Mun Sandvíkin fá nafnið
Bára SH og er Örn Arnarson skip-
stjóri. Báturinn verður gerður út á
dragnót. af
Nýr bátur til
heimahafnar í Rifi
Síðastliðinn fimmtudag var stað-
fest í Hæstarétti niðurstaða Hér-
aðsdóms Reykjavíkur í máli Borg-
arbyggðar gegn Íbúðalánasjóði
þar sem sjóðnum var gert að end-
urgreiða oftekna dráttarvexti af
framkvæmdaláni sem Borgarbyggð
tók hjá sjóðnum vegna bygging-
ar hjúkrunarálmunnar við Brákar-
hlíð í Borgarnesi. Þegar lánið var
greitt upp við lok framkvæmdanna
kom upp ágreiningur milli sveit-
arfélagsins og sjóðsins um gjald-
daga lánsins og krafðist Íbúðalána-
sjóður rúmlega 60 milljóna króna í
dráttarvexti. Borgarbyggð greiddi
fjárhæðina með fyrirvara um rétt-
mæti hennar og höfðaði í fram-
haldinu dómsmál til að fá hana
endurgreidda.
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi
dóm í málinu í október 2015 og
var niðurstaðan sú að Íbúðalán-
sjóður skyldi endurgreiða drátt-
arvextina og greiða Borgarbyggð
skaðabætur vegna tjóns sem sveit-
arfélagið hafði orðið fyrir vegna
málsins. Íbúðalánasjóður áfrýjaði
niðurstöðu héraðsdóms til Hæsta-
réttar en eins og áður segir og var
niðurstaða héraðsdóms staðfest í
Hæstarétti.
mm
Íbúðalánasjóði gert að endurgreiða
Borgarbyggð ofgreidda vexti
Brákarhlíð í Borgarnesi.
Á sunnudaginn fór fram kosning
um forystu í Framsóknarflokknum,
en um 700 manns mættu á flokks-
þing sem haldið var í Háskólabíói.
Úrslit í formannskjöri urðu þau að
Sigurður Ingi Jóhannsson forstæt-
isráðherra og oddviti Framsókn-
armanna á Suðurlandi var kjör-
inn formaður með 370 atkvæðum,
eða 52,6% fylgi. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson fráfarandi formaður
hlaut 329 atkvæði, eða 46,8% fylgi.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir hlaut þrjú
atkvæði, en auður og/eða ógildur
seðill var einn.
Í kjölfar þessara úrslita í kosningu
formanns lýsti Eygló Harðardóttir
félagsmálaráðherra því yfir að hún
drægi framboð sitt til varaformanns
til baka og lýsti yfir stuðningi við
Lilju Dögg Alfreðsdóttur utanrík-
isráðherra í embættið. Hlaut Lilja
Dögg yfirburðakosningu í embætti
varaformanns. Loks var Jón Björn
Hákonarson, sveitarstjórnarmaAð-
ur í Fjarðabyggð, kjörinn ritari.
mm
Sigurður Ingi og Lilja Dögg taka við
forystu í Framsóknarflokknum
Sigurður Ingi Jóhannsson. Lilja Dögg Alfreðsdóttir.
Síðdegis á föstudaginn varð útaf-
keyrsla við Hraunhafnará í Stað-
arsveit á Snæfellsnesi. Missti öku-
maður stjórn á bílnum sem hafn-
aði í ánni. Fjórar japanskar stúlkur
voru í bifreiðinni og sakaði þær ekki.
Brostu þær og veifaðu til fréttaritara
sem átti þarna leið hjá. Voru þær í
óðaönn að mynda bílinn. Var bif-
reiðin svo flutt suður til Reykjavíkur
en undirvagn hafði skemmds og því
óökufær. af
Höfnuðu út í
Hraunhafnará