Skessuhorn - 05.10.2016, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2016 13
Nemendur í Grunnskóla Snæfells-
bæjar á Lýsuhóli tóku þátt í skemmti-
legu verkefni á síðasta skólaári.
Krakkarnir, sem voru á aldrinum níu
til fjórtán ára, hönnuðu og smíðuðu
glæsilega borðlampa í tæknimennt
undir handleiðslu Hauks Þórðar-
sonar grunnskólakennara. Að sögn
Hauks er uppistaðan í tæknimennt,
handverk og smíði. „Ég tók svo
hönnun inn í það og við ákváðum
að gera eitt svona stórt verkefni sem
spannar yfir marga þætti. Þau þurfa
að hugsa um hönnunina, smíðina og
svo rafeindafræðina eða rafmagns-
íhlutun sem þarf í svona lampa,“
segir Haukur. Hann bætir því við
að lamparnir séu unnir af nemend-
um frá grunni. „Þau hanna lampana
sjálf, fá hugmyndir í gegnum upp-
lýsingatæknina. Við nýtum okkur
tölvur til að grúska og fá hugmyndir
og svo hanna þau útlit og stærð.“
Rafeindahlutirnir sem notaðir
eru í lampana eru keyptir frá Kitro-
nik vefverslun í Englandi, sem selur
skólum um allan heim ýmis náms-
gögn. „Ég kaupi alla rafeindahluti
af þeim á mjög hagstæðu verði.
Það gerir mér í raun og veru kleift
að gera þetta, svona hlutir fást ekki
hérlendis á svona hagkvæmu verði.“
Hann segir þetta í fyrsta sinn sem
nemendur skólans vinna sambæri-
legt verkefni. „Þetta er í fyrsta skipti
sem við förum út í rafeindatæknina,
þar sem við vinnum með íhlutina al-
veg frá grunni. Við fáum allt til þess
að gera þetta í settum og svo fá þau
kennslu í náttúrufræði um rafmagn,
þetta passar vel með,“ segir Haukur.
grþ
Bjuggu til borðlampa frá grunni
Einn af lömpunum, þessi er eins og upplýst hús. Hönnun lampanna var mjög ólík.
Freyja Fannberg í 10. bekk gerði þennan flotta lampa. Nemendur á Lýsuhóli gerðu lampana alveg frá grunni.
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2016
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudaginn 13. október
Föstudaginn 14. október
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
6
Þekking
Gæði
Þjónusta
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is