Skessuhorn - 05.10.2016, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 201614
Líkt og undanfarinn áratug tileinkar
Krabbameinsfélagið októbermánuð
baráttunni gegn krabbameini í kon-
um undir merkjum Bleiku slaufunn-
ar. Í ár er sjónum beint að algeng-
asta krabbameini íslenskra kvenna
– brjóstakrabbameini. Hér á landi
greinist kona með brjóstakrabba-
mein á um 40 klukkustunda fresti
árið um kring. „Margt hefur áunnist
í baráttunni gegn brjóstakrabbameini
á undanförnum árum. Lífslíkur hafa
til að mynda aukist til muna. Þannig
geta 90% kvenna sem greinast með
brjóstakrabbamein nú vænst þess að
lifa lengur en fimm ár. Um 3.000
konur eru á lífi í dag sem greinst hafa
með brjóstakrabbamein. Það er hins
vegar lífsnauðsynlegt að gera enn
betur: Enn látast um 40 konur úr
sjúkdómnum á hverju ári,“ segir í til-
kynningu frá félaginu.
Öflugasta vopnið í baráttunni gegn
brjóstakrabbameini er skipulögð leit
til að finna krabbamein á byrjunar-
stigi þegar lækning er möguleg. Brýn
þörf er á að endurnýja tækjabúnað til
skipulegrar leitar og er söfnunarfé
Bleiku slaufunnar varið til endurnýj-
unar tækja. Bleika slaufan er að þessu
sinni hönnuð af Lovísu og Unni Eir
gullsmiðum. Form slaufunnar tákn-
ar stuðningsnetið sem mikilvægast
er þeim konum sem greinast með
krabbamein - fjölskylduna og sam-
félagið. Slaufan kostar 2.000 krónur.
Bleika slaufan er seld á fjölda sölu-
staða án nokkurrar álagningar. Sölu-
andvirðið rennur því óskipt til söfn-
unar Krabbameinsfélags Íslands.
Sölustaði Bleiku slaufunnar má finna
á www.bleikaslaufan.is.
mm
Bleika slaufan til að fjármagna endurnýjun leitartækja
Eliza Reid forsetafrú afhenti fimm konum sem greinst hafa með brjóstakrabbamein fyrstu bleiku slaufurnar. Þær eru í
miðjunni og Eliza Reid ásamt Sigrúnu Gunnarsdóttir til vinstri og til hægri eru Lovísa og Unnur Eir hönnuðir Bleiku slaufunnar
2016.
Bleika slaufan er nú hönnuð af Lovísu
og Unni Eir gullsmiðum.
Við Akranesvita á Breið má finna
safn steina sem málaðir hafa ver-
ið sem maríuhænur. Hver steinn
er einnig merktur með nafni og er
þeim snyrtilega raðað neðan við
skilti sem á stendur „For Marek“.
Það er hin pólska Linda Zarzycka
sem málar steinana og kemur þeim
fyrir á Breiðinni. Ástæðan? Jú, hún
er að safna fyrir fársjúkum manni
í Póllandi, slökkviliðsmannin-
um Marek Łodygowskiego. Linda
er búsett á Akranesi ásamt eigin-
manni sínum, Zabol Ark Zarzycki.
Hún segist sjálf ekki hafa hitt Mar-
ek en heyrði sögu hans í félagsskap
sem eiginmaður hennar er í, mót-
orhjólaklúbbinn Unkown Bikers.
Hún segir Marek vera þekktan fyrir
góðmennsku sína og nú séu aðrir að
reyna að hjálpa honum í veikindum
sínum. „Hann starfaði sem slökkvi-
liðsmaður á Wroclaw flugvellinum.
Hann er góður maður, hefur hjálp-
að öðrum allt sitt líf og varð nýlega
afi. Hann er mótorhjólamaður og
er meðlimur í sama klúbbi og mað-
urinn minn, bara í Póllandi,“ segir
Linda í samtali við Skessuhorn.
Lyfin hans síðasta von
Marek glímir við lífshættuleg-
an sjúkdóm sem kallast Lou
Gehrigs, sjúkdómurinn sem er
blönduð hreyfitaugahrörnun. Sjúk-
dómurinn ræðst á taugakerfið og
veldur því að með tímanum rýrna
vöðvar og lamast. Marek hefur ver-
ið veikur í eitt ár og er nú hættur
að geta unnið, ekið bíl og hjólað á
mótorhjóli. Líf hans snýst nú ein-
ungis um baráttuna við sjúkdóm-
inn. „Læknar í Póllandi segja að
sjúkdómurinn leiði hann til dauða
og vilja ekki meðhöndla sjúkdóm-
inn, þar sem þeir hafa ekki réttu lyf-
in í Póllandi. Hins vegar eru lyfin til
í Bandaríkjunum en eru mjög dýr
þar,“ útskýrir Linda. Um er að ræða
tilraunalyfið Genervon GM604 og
myndi kostnaðurinn hlaupa á um
tveimur milljónum íslenskra króna
fyrir Marek. „Það er allt of dýrt fyr-
ir hann. Hann hefur enn smá tíma
án lyfjanna en sjúkdómurinn mun
draga hann til dauða ef hann fær
ekki þessi lyf. Það er hans síðasta
von,“ útskýrir Linda.
Gott að gera eitthvað
skapandi
Linda segir fjölskyldu Mareks, vini
og samstarfsmenn, ásamt meðlim-
um úr mótorhjólaklúbbnum í Pól-
landi, á Íslandi, í Bandaríkjunum og
Puerto Rico því hafa hrint af stað
söfnun. Ekki hafi þó enn náðst að
safna fyrir allri upphæðinni. Fyrir
tveimur mánuðum datt Lindu því í
hug að reyna að gera eitthvað skap-
andi til að vekja athygli á söfnuninni.
„Ég vildi gera eitthvað áhugavert til
að hjálpa til. Það er ekki alltaf nóg
að biðja bara um peninga, stundum
hjálpar að sýna eitthvað skapandi í
staðinn þannig að ég ákvað að mála
þessa steina. Svona byrjaði þetta.“
Fyrir hvert framlag málar Linda því
eina maríuhænu með nafni þess sem
gefur, óháð upphæðinni sem gefin
er. Hún segist smá hafa safnast en
því miður ekki nóg. „Það er svo lítið
af fólki hér sem veit af þessari söfn-
un, enda á ég erfitt með að gera mig
skiljanlega á íslensku,“ segir Linda
sem einungis talar pólsku. Hún segir
marga vegfarendur á Breið vera for-
vitna þegar þeir sjái steinana en hún
hafi átt erfitt með að útskýra fyr-
ir þeim um hvað málið snýst vegna
tungumálaerfiðleika. „En við verð-
um með bás á fjölmenningarhátíð-
inni á Akranesi núna í október þar
sem hægt verður að fá upplýsingar
um söfnunina,“ segir hún. Þeir sem
halda utan um söfnunina opnuðu
Facebook síðuna Road to health /
Droga Do Zdrowia. Þar má finna
upplýsingar um allt sem snýr að
söfnuninni, ásamt myndum af Mar-
ek og fleirum. Stofnaður var söfn-
unarreikningur í Póllandi en vegna
gjaldeyrishafta á Íslandi gæti reynst
erfitt að leggja inn á hann. Þeir sem
vilja leggja málefninu lið á Íslandi
geta því lagt inn á íslenska reikn-
ingsnúmerið: 0186 - 26 - 010192.
Kt. 080469 - 3499. grþ
Málar maríuhænur til styrktar Marek
Rauðmáluðu maríuhænurnar hafa vakið töluverða athygli niðri á Breið. Linda
málar eina maríuhænu fyrir hvert framlag sem berst í söfnunina, með nafni þess
sem gefur.
Linda Zarzycka er búsett á Akranesi þar sem hún málar steinana.
Slökkviliðsmaðurinn Marek Łodygowskiego glímir við hættulegan taugasjúkdóm
og er lyfjameðferð í Bandaríkjunum hans síðasta von.