Skessuhorn - 05.10.2016, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2016 19
Frambjóðendur til forseta svara spurningum Skessuhorns
KOSNINGAR2016
Lilja Rafney Magnúsdóttir skip-
ar oddvitasætið á lista Vinstri
hreyfingarinnar græns framboðs í
Norðvesturkjördæmi. Hún hefur
setið á þingi í tvö kjörtímabil og
bar nýverið sigur úr býtum í for-
vali VG í Norðvesturkjördæmi.
Lilja Rafney er gift Hilmari Oddi
Gunnarssyni sjómanni og bílstjóra
frá Skagaströnd og eiga þau fjög-
ur börn og þrjú barnabörn. Lilja
Rafney er fædd og uppalin á Suður-
eyri við Súgandafjörð og var mik-
ið í sveit hjá afa sínum og ömmu á
Stað í Súgandafirði sem barn. Hún
segir það að hafa alist upp í sveit-
inni og sjávarþorpinu hafa mótað
sig sem manneskju. „Það var tal-
að við okkur börnin í þorpinu og
sveitinni sem jafningja. Við feng-
um að taka þátt í leik og starfi, að
kynnast lífinu frá mörgum hliðum
og það var mjög þroskandi,“ seg-
ir Lilja Rafney. Hún segir æskuna
hafa verið yndislega og svo hafi al-
vara lífsins tekið við þegar hún og
Hilmar Oddur stofnuðu heim-
ili ung að árum. „Ég náði honum
vestur sem ungum manni og þá var
ekki aftur snúið. Við höfum búið
á Suðureyri okkar búskapartíð og
gerum enn, en ég flýg vestur um
hverja helgi.“ Lilja Rafney hef-
ur verið alþingismaður kjördæm-
isins síðan 2009 og var varaþing-
maður fyrir Alþýðubandalagið um
tíma sem og fyrir VG. Lilja Rafney
hefur átt sæti í mörgum nefndum,
svo sem félags- og tryggingamála-
nefnd, heilbrigðisnefnd, iðnaðar-
nefnd, samgöngunefnd, mennta-
málanefnd, sjávarútvegs- og land-
búnaðarnefnd og velferðarnefnd,
ásamt fleirum. Hún sat í Íslands-
deild Vestnorræna ráðsins frá 2009
- 2013 og frá 2014 til dagsins í
dag.
Alþingi er góður
vinnustaður
„Ég hef haft áhuga á pólitík og
félagsmálum í gegnum tíðina og
hef verið í verkalýðsmálum, sveitar-
stjórnarmálum og landsmálapólitík
lengi. Það hefur verið mjög góður
grunnur til að byggja á eftir að ég
tók sæti á Alþingi,“ segir Lilja Raf-
ney. Líkt og áður kemur fram hef-
ur Lilja Rafney töluverða reynslu
af þingmennsku og segir hún Al-
þingi vera skemmtilegan vinnustað,
þar sem þingmenn komi úr ýmsum
áttum með ólíka lífsreynslu og bak-
grunn. „Þar er tekist á um pólitíkina
í þingsal en stærsti hluti vinnunnar
fer fram í nefndum, þar sem málin
geta oftar en ekki batnað í meðför-
um þingsins, þvert á pólitík,“ held-
ur hún áfram. Hún segir það hafa
komið sér á óvart hversu óregluleg-
ur vinnutíminn er hjá þingmönn-
um og hversu erfitt það er að skipu-
leggja nokkuð fram í tímann. „Þú
þarft alltaf að vera á vaktinni og til-
búinn að stökkva í ræðustól, hve-
nær sem er.“ Aðspurð um hvað hafi
staðið upp úr á þessum árum á Al-
þingi segir hún: „Að fá tækifæri til
að kynnast mörgu góðu fólki og
fá þar með innsýn inn í líf og kjör
fólks, fyrirtækja og byggðarlaga vítt
og breitt um landið.“
Vilja bæta kjör aldraðra,
öryrkja og ungs fólks
En hvað verður efst á baugi hjá
Vinstri grænum í komandi kosn-
ingabaráttu? „Helstu stefnumál
okkar eru velferðar- og heilbrigðis-
málin, að bæta kjör aldraðra, öryrkja
og unga fólksins. Það er mjög brýnt
verkefni fyrir komandi ríkisstjórn.
Við leggjum líka áherslu á aðgang
að öflugu menntakerfi um allt land,
óháð kyni, aldri, efnahag og búsetu,“
segir Lilja. Hún segir flokkinn einnig
vilja styrkja og styðja við grunnþjón-
ustuna og að farið verði í öfluga inn-
viðauppbyggingu um allt land. Þar
sé mjög mikil uppsöfnuð þörf er fyrir
hendi. „Háhraðatengingar verða að
standa öllum landsmönnum til boða
og góðar samgöngur. Umhverfis-
og jafnréttismál ganga þvert á alla
málaflokka okkar Vinstri grænna.“
Hún bætir því við að flokkurinn vilji
stokka upp fiskveiðistjórnarkerfið.
„Við viljum koma á réttlátu kerfi og
afla sanngjarnra tekna af auðlinda-
gjaldi og dreifa skattbyrðinni með
réttlátum hætti.“ Sjálf segist hún
leggja mikla áherslu á málefni lands-
byggðarinnar og þeirra sem minna
mega sín. „Eins að allir leggi sitt af
mörkum, svo við getum byggt rétt-
látt samfélag fyrir alla.“
Stefna á fjölgun
þingmanna
Listi Vinstri hreyfingarinnar græns
framboðs í Norðvesturkjördæmi var
samþykktur á félagsfundi kjördæm-
aráðs í síðustu viku. Þrjú efstu sæti
listans eru eins skipuð og niðurstaða
forvals flokksins. Líkt og áður hefur
komið fram skipar Lilja Rafney odd-
vitasætið, Bjarni Jónsson frá Skaga-
firði skipar annað sætið og Dagný
Rósa Úlfarsdóttir frá Ytra-Hóli í
Húnavatnssýslu er þriðja á lista. Lilja
Rafney varði forystusæti sitt á listan-
um en þrír karlar sóttust einnig eft-
ir því sæti í forvalinu. „Ég vil þakka
öllum þeim sem gáfu kost á sér í for-
valinu fyrir þátttökuna og hlakka til
að vinna með því góða fólki. Einn-
ig vil ég þakka öllum kærlega fyr-
ir stuðninginn. Nú sækjum við fram
sem félagar í komandi kosningum
með öfluga stefnu Vinstri grænna að
leiðarljósi,“ segir hún. Oddvitinn er
ánægður með listann og segir flokk-
inn stefna að því að ná góðum árangri
í NV-kjördæmi með sterkri málefna-
stöðu. „Við teljum góðar líkur á að
þingmönnum VG fjölgi í kjördæm-
inu þar sem við bjóðum fram öflugan
lista fólks með fjölbreytta reynslu og
bakgrunn. Pólitíkin getur oft verið
skrítin tík og því er það mikilvægt að
gleyma ekki góða skapinu, taka ekki
of mikið inn á sig og hafa húmor-
inn alltaf í hávegum,“ segir Lilja
Rafney Magnúsdóttir alþingismað-
ur að lokum. grþ
Helstu stefnumál eru velferðar- og heilbrigðismálin
Rætt við Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, oddvita Vinstri grænna í NV-kjördæmi
Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður skipar oddvitasæti Vinstri hreyfingar-
innar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi.
Sýningin Sjávarútvegur 2016/Ice-
land Fiskhing Expo, fór fram í
Laugardalshöllinni í Reykjavík í
síðustu viku. Var hún sett á mið-
vikudag og formlega opnuð af
forsetahjónunum Guðna Th. Jó-
hannessyni og Elizu Reid. Sýning-
unni lauk á föstudaginn. Við opn-
unina fluttu ávörp þeir Gunnar
Bragi Sveinsson sjávarútvegsráð-
herra og Ólafur M Jóhannesson
framkvæmdastjóri sýningarinnar.
Þá voru afhentar viðurkenningar í
sjávarútvegi og afhenti Eliza Reid
forsetafrú þær. Þeir sem hlutu við-
urkenningar voru Slysavarnaskóli
sjómanna, Einar Lárusson fisk-
tæknir, Axel Helgason trillukarl,
Fiskvinnslan Íslandssaga á Suður-
eyri, Fiskmarkaður Þórshafnar og
útgerð Saxhamars SH hlaut við-
urkenningu Samtaka fiskframleið-
enda og útflytjenda.
Um 120 innlend og erlend fyrir-
tæki tóku þátt í sýningunni og var
þar margt að sjá sem fylgir útgerð og
fiskvinnslu. Gríðarleg framför hefur
á liðnum árum orðið í öllum tækni-
og tækjabúnaði og mátti sjá þversnið
af því á sýningunni. Sýning þessi var
nú haldin í fyrsta skipti og keppir við
Íslensku sjávarútvegssýninguna sem
breskir aðilar standi að annað hvert
ár og hefur verið haldin í Smáranum
í Kópavogi. Sú sýning er ráðgerð eft-
ir eitt ár. Þátttaka á þessari sýningu
nú er töluvert ódýrari fyrir sýnend-
ur og nefndi einn þeirra í samtali við
Skessuhorn að kostnaður við þátt-
töku í Laugardalshöllinni væri um
þriðjungur á við þátttöku í Íslensku
sjávarútvegssýningunni. mm
Sýningin Sjávarútvegur 2016
Forsetahjónin opnuðu sýninguna með því að klippa á borða. Svipmyndir af sýningunni.
Aron Baldursson nýr framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Íslands
kynnti starfsemi fyrirtækisins.
Eliza Reid forsetafrú afhenti viðurkenningar við opnun sýningarinnar. F.v. Einar
Lárusson, Eliza, Hilmar Snorrason, Óðinn Gestsson, Karl Sveinsson, Friðþjófur
Sævarsson og Axel Helgason.