Skessuhorn - 05.10.2016, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2016 23
Kjötborðið, nýtt markaðstorg á
netinu fyrir íslenskt lambakjöt,
var opnað síðastliðinn fimmtu-
dag á slóðinni www.kjotbordid.is.
Þar selja bændur vöru sína beint til
neytenda og geta verðlagt hana eft-
ir eðli og gæðum. Sauðfjárbændur
sem vilja selja kjöt í gegnum Kjöt-
borðið gera það með því að stofna
aðgang og skrá viðeigandi upplýs-
ingar. Neytendur geta síðan keypt
kjöt með því að skrá sig inn á síðuna
og senda bændum fyrirspurn um
þá vöru sem falast er eftir. Þannig
getur fólk keypt kjöt af nýslátruðu
eða frosið, beint frá bónda og feng-
ið sent heim. Sendingarkostnaður
er innifalinn í verðinu sem kaup-
andi greiðir nema annað sé tekið
fram. Bændum er greitt vikulega
út, á föstudögum fyrir sölu síðustu
sjö daga. Þóknun Kjötborðsins er
15% af söluverði.
Að Kjötborðinu standa Vignir
Már Lýðsson, Þorgeir Þorgeirs-
son og Valur Þráinsson. „Við sáum
í haust hvernig viðbrögðin voru
þegar afurðarstöðvarnar lækkuðu
verðið til bænda. Þá fóru margir
bændur að bjóða kjöt sitt til sölu á
netinu. Það sem gerðist þá var að
það var hver í sínu horni að selja
kjöt. Við sáu tækifæri í að stofna
sameiginlegan vettvang sem bæði
myndi auðvelda neytandanum að
finna kjöt sem þetta, því það er
mikil eftirspurn eftir kjöti beint
frá bónda, og auðvelda bændum
að koma kjöti til neytenda,“ seg-
ir Vignir í samtali við Skessuhorn
síðastliðinn fimmtudag. „Þetta
byggir á hugmyndafræðinni um
deilihagkerfið og okkar eina mark-
mið er að færa neytendur nær
bóndanum og aðstoða þá bænd-
ur sem hafa ekki tök á að standa
í að setja upp eigin heimasíður og
markaðssetja kjöt sitt sérstaklega,“
segir hann og bætir því við að við-
brögðin við markaðstorginu séu
mjög góð. „Strax í gær [miðviku-
dag] skráðu sig um þúsund manns
á lista yfir áhugasama kaupendur,“
segir hann. Þeir geta þá strax sett
sig í samband við bónda sem hefur
skráð kjöt sitt til sölu. „Neytend-
ur geta síðan gefið bóndanum og
kjötinu hans einkunn. Bændur aft-
ur á móti skrá inn það magn sem
þeir hafa til sölu, þá þyngdarflokka
sem þeir vil selja og setja upp verð.
Hægt er að setja inn alls kynsk við-
bótar upplýsingar, til dæmis um
býlið eða eitthvað slíkt. Auk þess
er hægt að skrá mjög ítarlegar
upplýsingar um kjötið sjálft, sem
er mjög jákvætt gagnvart neytand-
anum,“ segir Vignir að lokum.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Nýtt markaðstorg fyrir lambakjöt
Það fór vel á því að á Sauðamessu
í Borgarnesi síðastliðinn laugar-
dag væri fyrsti opnunardagur í
nýrri verslun Borgarfjarðardeild-
ar Rauða kross Íslands. Fjölmenni
var statt í Borgarnesi og margir sem
gerðu sér ferð í nýju búðina til að
skoða og gera góð kaup. Þau Kiddi
Jói, Sesselja og Kjartan formaður
stóðu vaktina þennan fyrsta opn-
unardag og var létt yfir þeim. Búð-
in er í björtu og rúmgóðu húsnæði
og kveðst RKÍ fólk ánægt með að
nú sé hægt að hafa opið lengur og
óháð annnarri starfsemi. Verslunin
er í húsi við hlið Ráðhússins í Borg-
arnesi sem lengst af hýsti Póst- og
Síma, en TK hársnyrtistofa var síð-
ast á þessum stað með starfsemi.
mm
Rauði krossinn búinn að
opna búð í gamla pósthúsinu
Raftar skenkja hér gestum kjötsúpu. Í sérstöku tjaldi mátti kaupa nýsteiktan austurlenskan mat frá Thai
Santi á Akranesi.
Létt yfir fólki á markaðinum í tjaldinu þar sem ýmiss varningur
skipti um eigendur.
Jónas Darri Jónasson fékk verðlaun fyrir
flottustu prjónaflíkina, en hana prjónaði
amma hans Valgerður Jónasdóttir.
Þorleifur Geirsson var tvímælalaust
með flottasta höfuðfatið.
Notið útiverunnar í Skallagrímsgarði. Eins og glögglega sést á fánunum var veðrið með besta móti, kyrrt og hlýtt miðað
við árstíma.
Unga fólkið tók þátt í þrautaleik, þar sem m.a. þurfti að sporðrenna slátri og
súrsunarmysu.
Hér kíkir Jói frá Smiðjuhóli á gestina sem komu í kerru. Ragnheiður Guðnadóttir
stendur hjá og fjær er fjölskyldan frá Snartarstöðum sem kom með féð.