Skessuhorn - 05.10.2016, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 201626
Vísnahorn
Nú stefnir í kosningar og
vafalaust verða margir til-
búnir að segja okkur hvar
sé heppilegast að við setjum krossinn á seðil-
inn þegar þar að kemur. Þessi vísa komst á flot
fyrir stuttu og segir allt sem segja þarf en höf-
undur hennar er Gunnar Rögnvaldsson:
Nú er tími þeirra sem hreykja sér og hrósa
og halda uppi merkinu fyrir þor og dug.
Þeir vona að við staulumst í klefann til að kjósa
og „krossfesti“ þá sömu og liðinn áratug.
Fyrir kosningarnar 1956 var kveðið:
Að lokahríð nú líður senn,
lífinu flestir hrósa.
En gleymið þá ei, góðir menn,
G-listann að kjósa.
Stundum er talað um að þeir sem mest ber
á í stjórnmálunum, og þá ekki síður þeirra
vildarvinir, gjaldi ekki mikið til samfélagsins.
Einhvern tímann var sagt að Jón Kjartansson
sem þá var forstjóri Áfengisverslunar ríkisins
hefði aðeins vinnukonuútsvar. Um þá hluti
kvað Stefán Stefánsson frá Móskógum:
Aldrei mikið útsvar bar
eða skatta og þess konar
sem heldur ekki von til var.
- Vinnukona Framsóknar?
Það hefur borið við að menn hafi flutt sig
á milli flokka þrátt fyrir að viðkomandi hafi
notið nokkurrar virðingar í flokki þeim hin-
um yfirgefna en einhverjar misvísanir hafa þá
væntanlega verið á stefnu flokks og einstak-
lings. Árni Jónsson frá Múla var lengi þing-
maður fyrir Sjálfstæðisflokkinn og forystu-
maður hans. 1946 sagði hann sig skyndilega
úr flokknum og stofnaði nýjan flokk, Þjóð-
veldisflokkinn en um þá atburði var kveðið:
Árni skrokkur flokk úr flokk
flæmist, brokki tamur – (á svig.)
Þjóðólfs - hnokka þokka-rokk
þeytir nokkuð samur – (við sig.)
Oft hafa menn kveðið eitthvað misjafnt um
þá flokka sem eru þeim andstæðir í pólitík og
á sínum tíma orti Stebbi frá Móskógum:
Er í vanda allt þess traust
ekki í standi hræið.
Eignast fjandinn efalaust
Alþýðubandalagið.
Og væntanlega þarf ekki miklar vangaveltur
til að komast að því hvar Einar Kristjánsson
frá Hermundarfelli var ekki staðsettur í hinu
pólitíska umhverfi:
Kálið sötrar kratalið
klæðist tötrum einum.
Íhaldsfjötrum una við
allir flötum beinum.
Einhver annar ágætur maður sem ég veit
ekki nafn á orti um sín framtíðarplön:
Mig langar til að lifa flott.
Launakrókinn mata.
Að því leyti er ég gott
efni í hægri krata.
Á dögunum orti Helgi Ingólfsson um átök
innan ákveðins stjórnmálaflokks:
Ö- af Höski fylltist -fund,
form- hann vildi vega´ -ann.
Sig- nú telur sjálfsagt -mund
sigurstrang- mjög -legan.
Í kosningunum 1942 vantaði Hannes Páls-
son frambjóðanda Framsóknar 100 atkvæði
til að fella Jón á Akri í A-Hún en áður höfðu
Framsóknarmenn talið sig örugga um sýsl-
una. Þá orti einn kjósandi Hannesar:
Stöðugt flykkjast fleiri menn
Framsóknar á prikið.
En hundrað vantar Hannes enn.
-Helvíti er það mikið.
Sumir hafa gaman af að hlusta á pólitíska
fundi og kappræður manna á þeim vettvangi.
Sýnist þó gjarnan sitt hverjum um málflutn-
ing manna en svosem engin ástæða til að allir
séu sammála um allt. Á borgarafundi á Siglu-
firði fyrir margt löngu kvað Hannes Jónasson
um einn ræðumanna:
Eykur þrætur seggur sá,
saman skreytni tvinnar.
Veikur grætur eftir á
iðrast breytni sinnar.
Pólitískar þrætur geta snúist allavega og
ekki alltaf gott að átta sig á hverjum rökum
mótherjinn kann að beita til að snúa vopnum í
höndum manna. Þekkt er setningin úr réttar-
kerfinu; ,,Allt sem þú segir kann að verða not-
að gegn þér“. Í pólitíkinni er líklegra að hún
gæti hljóðað; ,,Allt sem þú segir verður notað
gegn þér“. Stjórnmálamönnum gæti til dæm-
is alveg dottið í hug að rífast um hvort eftir-
farandi setning er rímuð eða órímuð. Stuðluð
eða óstuðluð:
,,Það er vont að verjast áverka af mótherj-
anum og láta aldrei fjandmann fá færi í bar-
daganum“.
Hringrás náttúrunnar er þó allavega eitt-
hvað sem við ráðum ekki við og heldur sínu
striki hvað sem allri pólitík líður. Hjálmar
Freysteinsson orti um hina óhjákvæmilegu
fylgifiska haustsins:
Framvinda er haustsins hröð,
hallar senn að jólum,
lægðir bíða í langri röð,
lús í öllum skólum.
Sigtryggur Símonarson orti einhvern tím-
ann þegar fréttir voru af því að lús í skólum
væri í líku magni og undanfarin ár:
Gleðjist þjóðin fréttafús.
Fregn þá Morgunblaðið gefur
að Reykvíkingar rækti lús.
-Reyndar líkt og verið hefur.
Fleiru þjóðskáld hafa ort um þessi blessuð
dýr sem hafa verið okkur fylgispök í gegnum
aldirnar. Kristján Fjallaskáld orti í orðastað
kerlingar einnar:
Flýgst ég oft á við fló og lús
fagna þó sigri snjöllum.
Hjálpa þú mér nú minn Hesthús.
Miskunnar aus úr döllum.
Þeir sem óforþént angra mig
óska ég helst að skeri sig.
Feitt er ketið á Fjöllum.
Hannibal Valdemarsson var lengi nokkuð
áberandi í stjórnmálalífinu og raunar í þjóð-
lífinu almennt. Veitti honum með ýmsum
hætti í kosningum. Stundum betur og stund-
um miður. Bjó hann um tíma í Selárdal vestra
og væntanlega hefur eftirfarandi vísa orðið til
um það leyti sem hann flutti þangað. Því mið-
ur man ég ekki nákvæmar um hugsanleg til-
drög. Hvað þá að ég viti um höfund:
Hurðum skellti Hannibal,
heyrðist mikill brestur.
Með litla frægð og léttan mal
látinn fara vestur.
Lengi hefur verið fast sótt að smala á kjör-
stað öllum sem líklegir voru til að leggja sitt
atkvæði réttum megin á vogarskálina. Eitt
sinn var talað um að í Fnjóskadalnum hefði
kona orðið léttari á leiðinni á kjörstað og þó
væntanlega ekki kjörviðri til slíkra verka:
Rist var svell, og riðið hjarn,
reiddar voru kerlingar.
í Fnjóskadalnum fæddist barn
á fönn um þessar kosningar.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Aldrei mikið útsvar bar - eða skatta og þess konar
Listi Vinstri hreyfingarinnar græns
framboðs í Norðvesturkjördæmi
vegna alþingiskosninga 29. október
nk. var samþykktur á félagsfundi kjör-
dæmisráðs VG síðastliðið fimmtu-
dagskvöld. Þrjú efstu sæti listans eru
eins skipuð og niðurstaðan varð í for-
vali flokksins. Sú breyting hefur ver-
ið gerð að Rúnar Gíslason færist upp
um tvö sæti, tekur fjórða sæti í stað
Lárusar Ástmars Hannessonar sem
færist niður í 14. sæti.
Listinn er þannig skipaður:
1. Lilja Rafney Magnúsdóttir,
Suðureyri
2. Bjarni Jónsson, Skagafirði
3. Dagný Rósa Úlfarsdóttir,
Ytra-Hóli Húnavatnssýslu
4. Rúnar Gíslason, Borgarnesi
5. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir,
Borgarfirði
6. Reynir Eyvindsson, Akranesi.
7. Hjördís Pálsdóttir, Stykkishólmi
8. Þröstur Ólafsson, Akranesi
9. Berghildur Pálmadóttir,
Grundarfirði
10. Halla Sigríður Steinólfsdóttir,
Ytri-Fagradal í Dölum
11. Bjarki Hjörleifsson,
Stykkishólmi
12. Dagrún Ósk Jónsdóttir,
Kirkjubóli I, Strandabyggð
13. Ingi Hans Jónsson,
Grundarfirði
14. Lárus Ástmar Hannesson,
Stykkishólmi
15. Guðný Hildur Magnúsdóttir,
Bolungarvík
16. Guðbrandur Brynjúlfsson,
Brúarlandi 2, Borgarbyggð
mm
Vinstri grænir samþykkja
framboðslista sinn
Á myndinni frá vinstri: Rúnar Gíslason, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Þóra Geirlaug
Bjartmarsdóttir og Bjarni Jónsson.
„Hey Iceland“ er nafn á nýju vöru-
merki Ferðaþjónustu bænda sem
kemur í stað vörumerkisins Ice-
landic Farm Holidays sem félagið
hefur fram til þessa notað í sölu- og
markaðsstarfi sínu erlendis. „Nýja
vörumerkið Hey Iceland er afrakst-
ur viðamikillar stefnumótunar sem
hefur átt sér stað undanfarin miss-
eri hjá okkur en það hafa lengi ver-
ið vísbendingar uppi um að eldra
heiti fyrirtækisins gæfi ekki raun-
sanna mynd af þeirri fjölbreyttu
þjónustu og afþreyingu sem fyrir-
tækið býður upp á,“ segir Bryndís
Pjetursdóttir markaðsstjóri Ferða-
þjónustu bænda.
„Hey Iceland er nýtt vörumerki
trausts og gamalgróins fyrirtækis
sem býr yfir fjölþættri reynslu og
þekkingu á ferðamálum. Ferða-
þjónusta bænda var stofnuð af ís-
lenskum bændum árið 1980. For-
sagan nær þó allt aftur til ársins
1965 þegar Flugfélag Íslands tók að
bjóða erlendum ferðamönnum að
dvelja á íslenskum sveitaheimilum
gegn gjaldi. Fyrstu árin gátu menn
aðeins valið milli þeirra fimm bæja
sem í boði voru. Þjónustan mæltist
hins vegar strax vel fyrir og fyrsta
árið voru gistinæturnar alls 330 -
eða 66 nætur að meðaltali á hvern
bæ. Árið 1971 voru gistinæturnar
orðnar 550 en skiptust þá niður á
11 bæi. Framan af stóð þessi þjón-
usta aðeins útlendingum til boða og
má til gamans geta þess að á bænum
Fljótstungu í Hvítársíðu gisti fyrsti
Íslendingurinn árið 1976. Eftir það
varð hins vegar ekki aftur snúið og
þremur árum seinna dvöldu þar ís-
lensk hjón í heila viku.
Síðan hefur mikið breyst. Ekki
aðeins hefur fjöldi ferðamanna auk-
ist gríðarlega heldur hefur starf-
semi ferðaþjónustubænda tekið
miklum stakkaskiptum. Sveitabæ-
irnir eru ekki lengur fimm talsins
heldur um 170 og 60% af þeim
sinna nú nær eingöngu ferðaþjón-
ustu; selja gistingu og bjóða upp á
fjölbreytta afþreyingu fyrir einstak-
linga jafnt sem hópa. Með hliðsjón
af öllu framansögðu þótti tímabært
að endurskoða einnig vörumerki
félagsins, gera það einfaldara, al-
þjóðlegra og betur í takt við starf-
semina,“ segir Bryndís. Hún bæt-
ir því við að „Hey“ sé orð sem vísi
til sveita landsins og sögu félagsins
sem fyrirtækinu er mjög mikilvægt
– og Hey er líka vinaleg, alþjóðleg
kveðja.
mm
Hey Iceland er nýtt vörumerki
Ferðaþjónusta bænda
Nýtt merki Ferðaþjónustu bænda
hefur skírskotun til sveita landsins
og sögu félagsins. Hey! er auk þess
vinaleg, alþjóðleg kveðja.