Skessuhorn - 05.10.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Laugardaginn 8. október nk. mun
Hnefaleikafélag Akraness, sem er aðili
að Íþróttabandalagi Akraness, standa
fyrir hnefaleikamóti í Íþróttahúsinu
við Vesturgötu. Mótið hefst klukkan
17:00. Á mótinu verður vígður nýr
keppnishringur Hnefaleikafélagsins
á Akranesi en hann er sá fyrsti sinnar
tegundar hér á landi. Hringurinn er
sérstakur að því leyti að hann er ekki
upphækkaður eins og venjan er, held-
ur hornum hans komið fyrir í gólfi
íþróttasalarins fyrir festu og er þ.a.l.
ekki upphækkaður. „Hugmyndin að
hringnum er fengin frá Svíþjóð þar
sem svona fyrirkomulag er eitthvað
notað. Keppnishringurinn stenst allar
alþjóðlegar öryggiskröfur og staðla að
öllu leyti nema að vera upphækkað-
ur. Það að hafa keppnishringinn ekki
upphækkaðann hefur ekki áhrif á ör-
yggi keppenda eða leik þeirra. Keppn-
ishringurinn hefur verið samþykkt-
ur af Hnefaleikasambandi Íslands og
stenst allar þeirra kröfur,“ segir í frétt
frá hnefaleikafélaginu.
Ástæða þess að hafa keppnishring-
inn ekki upphækkaðann er tvíþætt.
Kostnaður við þennan hring er ekki
nema brot af kostnaði af upphækk-
uðum hring sem stenst alþjóðakröf-
ur. Þar að auki er þessi keppnishring-
ur mun auðveldari í uppsetningu og
geymslu en þeir keppnishringir sem
hingað til hafa verið notaðir. ÍA er
fyrsta íþróttabandalag á Íslandi sem
kemur upp aðstöðu sem þessari fyrir
sín félög, en þetta verkefni er samstarf
Hnefaleikafélags Akraness og ÍA.
mm
Nýr keppnishringur tekinn í
notkun á móti hnefaleikafélagsins
Um liðna helgi var Bikarmót Sund-
sambands Íslands haldin í Reykja-
nesbæ. Margir af sterkustu sund-
mönnum Íslands syntu á mótinu.
Sundfélag Akraness sendi bæði
kvenna- og karlalið og var gengi
þeirra framar vonum en bæði liðin
urðu í fimmta sæti. Hvað stigafjölda
varðar er árangurinn á mótinu í ár
sá besti síðastliðin átta ár. Margir
sundmennirnir bættu tíma sína eða
syntu á sínum tímum sem er mjög
gott þegar keppnistímabilið er rétt
að hefjast. Hæst bar þó að Ágúst
Júlíusson, Íþróttamaður Akraness,
náði lágmarki í 100m flugsundi til
að komast á Norðurlandameistara-
mótið í sundi í 25m laug en það fer
fram í Kolding í Danmörku í des-
ember næstkomandi.
„Á Bikarmóti Sundsambands-
ins hafa nokkur félög þann hátt á
að tefla fram fyrrum sundmönn-
um sem hættir eru að æfa. Sund-
félag Akrananess heldur sig fast við
þá ákvörðun að tefla fram framtíð-
arsundmönnum félagsins og gefa
þeim þannig tækifæri til að taka
þátt í stórmótum Sundsambands
Íslands,“ segir í tilkynningu frá fé-
laginu.
mm/tg
Bikarkeppni Sundsambands Íslands í Reykjanesbæ
Félagar Sundfélags Akraness hafa haft það fyrir reglu að mæta spariklæddir á
Bikarmót SSÍ. Slíkt vekur ávallt athygli enda skemmtilegur siður.
Hluti hópsins frá Sundfélagi Akraness.
Hvað eiga stjórnmál í dag sameig-
inlegt með megrunarkúrum eða
aðhaldi? Þessi samlíking kom upp
í huga minn þegar ég horfði á eld-
húsdagsumræður. Umræðurnar lit-
uðust nánast að öllu leyti af kom-
andi kosningabaráttu. Loforðin
endurvörpuðust úr einum munni
í annan eins og loforðabjúgverpill
væri á fleygiferð um sal Alþingis.
Það var áberandi að tveir stærstu
flokkarnir samkvæmt skoðana-
könnunum, Sjálfstæðisflokkur og
Píratar, skáru sig örlítið úr.
Sjálfstæðismenn stóðu kokhraustir
í pontu, fannst þeim hafa unnið verk-
in vel og væru á góðri leið. Boðuðu
bara blússandi ferð áfram. Þingmenn
Sjálfstæðisflokks aðhyllast ekki megr-
unarkúra eða skyndilausnir, því allt
gengur vel ef bara sumir sleppa því að
borða því þá er meira fyrir suma. Þeir
verða seint saddir en verði þeir sæl-
ir og glaðir henda þeir auðmjúkir af
gjafmildi og rausnarskap brauðmol-
um í alþýðuna og peningum í hag-
kerfið. Þannig halda þeir hagkerfinu
uppi og það ber að launa þeim. Þeir
vilja því ekki þrengja að sínum með
gjöldum eða hærri sköttum á hátekju-
fólk. Alþýðan skal bíða eftir þeirra
náð og miskunn og þá munu brauð-
molarnir rata í ginið.
Píratar voru nánast orðlausir og
í auðmýkt var þakkað fyrir síendur-
tekið hvað margir hefðu lýst því yfir
í skoðanakönnunum að þeir væru al-
veg til í að fara eftir þeirra megrun-
arkúr. En það er ekkert furðulegt að
hafa áhuga á að fara eftir megrúnark-
úr sem hljómar eins og þú þurfir eig-
inlega ekki að gera neitt sérstakt og
megir jafnvel gera það sem þér hent-
ar. Að mörgu leyti óljós megrunar-
kúr sem er enn á hugmyndastigi, bara
örfáir sem kunna hann og virðast vera
andlit hans út á við. Síðan á eftir að
koma í ljós ef satt reynist og fleiri Pí-
ratar koma inn á Alþingi hverjir það
eru, hvort þau geti komið sér saman
um hvernig kúrinn er og hvað ætli
margir geti farið eftir honum og mun
hann henta öllum?
Framsóknarmenn froðufelldu yfir
besta kúrnum, kúrinn virkar ef allir
trúa á hann, efast aldrei um árangur
þó að blákaldar staðreyndir blasi við.
Reyndar var einn og einn Framsókn-
armaður sem ræddi um hvað gæti
gerst í kjölfarið á besta kúrnum, þ.e.
þegar besti kúrinn og allir sem á hann
trúa myndu horfast í augu við stað-
reyndir og sjá hvað þyrfti í raun og
veru að gera og vinna að til að allir
gætu nú haft það gott. Líklega þurfa
þeir Framsóknarmenn sem halda því
fram að átta sig á því fljótlega að hug-
myndir þeirra um skynsamlegt aðhald
sem gæti hentað öllum er hugmynda-
fræði jafnaðarmanna og á enga sam-
leið með besta kúrnum. Það liggur í
augum uppi að kosningabarátta þeirra
líkt og áður verður hlaðin popúlisma
- loforðum til að ganga í augu kjós-
enda.
Björt framtíð, Samfylkingin og
Vinstri grænir reyndu að gera ríkis-
stjórnarflokkunum grein fyrir því af
hverju við værum að fara að kjósa ári
fyrr en stóð til. Þau rifjuðu upp að
besti kúrinn virki alls ekki fyrir alla
því þegar forystumaður besta kúrs-
ins fylgir ekki þeim leikreglum sem
eru í landinu og sér hag sinn í því að
komast undan því að borga í köku-
sjóð ásamt nærri 600 öðrum þá væru
sumir sem fengju bara enga köku eða
a.m.k minni sneið en þeir þyrftu.
Samfylkingin byggir sína hugmynda-
fræði á jöfnuði og jafnrétti. Bæði
Vinstri grænir og Björt framtíð hafa
einnig svipaða hugmyndafræði í sinni
stefnu.
Svo skjótast nú flokkar upp eins
og gorkúlur að hausti, umvafnir í
sama mygli og aðrir flokkar, nærast
á öðrum flokkum eins og sníkjudýr
þar sem hugmyndafræði rótgróinna
flokka er prentuð á glanspappír og
popúlisminn allsráðandi. Viðreisn -
frjálshyggjuafl með kosningaslagorð-
ið almannahagsmunir framar sér-
hagsmunum, er til meiri tvískinnung-
ur í einu kosningaslagorði. Viðreisn
er nýr megrunarkúr og virðist ætla að
lofa kolvetnalausu mataræði með fullt
af kolvetnum. Það er ekki bæði sleppt
og haldið.
Af hverju jafnaðarmenn? Af
hverju jafnaðarstefna? Af hverju
Samfylkingin?
Græðgi og óráðsía fylgir frjáls-
hyggjunni hvar sem hún er fram-
kvæmd. Hún nærir auðvaldið og
elur á stéttaskipt-
ingu og hellings
meðvirkni og
þó þú eigir ekki
nóg, þá áttu bara að lúkka eins og
þú eigir nóg. Jafnaðarmenn hafna
græðgi og stéttaskiptingu. Jafnað-
armenn fylgja engri sérhagsmuna-
stétt. Jafnaðarstefna hefur það að
markmiði að tryggja að allir hafi
það sem þeir þurfa, þó þeir fái ekki
endilega allt það sem þeir krefj-
ast. Samfylkingin byggir á traust-
um grunni og hefur á að skipa
fólki innan sinna raða sem trúir á
að velferðarsamfélag sé raunhæf-
ur möguleiki þegar jöfnuður er
hafður að leiðarljósi við skiptingu
á kökunni. Engar skyndilausn-
ir, enginn popúlismi kosninga-
loforða, engir megrúnarkúrar eða
græðgi... þá fá allir sneið en eng-
inn of mikið!
Pálína Jóhannsdóttir.
Höfundur skipar 4. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Norðvestur-
kjördæmi.
Eldhúsdagsumræður og megrunarkúrar
Pennagrein