Skessuhorn - 05.10.2016, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
ÍA tók á móti KR í lokaleik Pepsi
deildar kvenna í knattspyrnu síð-
asta föstudag. Skagakonur áttu ekki
möguleika á að halda sæti sínu í
deildinni en hefðu með sigri getað
tekið KR með sér niður í 1. deild. Sú
varð hins vegar ekki raunin því eftir
æsispennandi leik tókst gestunum að
tryggja sér nauman sigur með þrem-
ur mörkum gegn tveimur og halda
sæti sínu í efstu deild.
Skagakonur mættu mun ákveðn-
ari til leiks en gestirnir og réðu lög-
um og lofum á vellinum á upphafs-
mínútunum. Þær komust síðan yfir
strax á 12. mínútu leiksins. Varnar-
maður KR skallaði boltann frá en
beint á Catherine Dyngvold sem tók
hann á brjóstkassann og lét vaða af 25
metra færi og í fjærhornið. Stórglæsi-
legt mark.
Nokkuð jafnræði var með liðun-
um fyrst eftir markið áður en KR-
ingar sóttu smám saman í sig veðr-
ið og áttu tvö góð færi seint í hálf-
leiknum. Það var hins vegar ÍA sem
jók forskotið á 40. mínútu leiksins.
Rachel Owens átti skot að marki og
í fyrstu virtist það ekki ætla að valda
Ingibjörgu Valgeirsdóttur, markverði
KR, teljandi vandræðum. Hún náði
hins vegar ekki að halda boltanum og
hann lak yfir marklínuna. ÍA leiddi
því með tveimur mörkum gegn engu
í leikhléinu.
KR stúlkur mættu mjög ákveðnar
til leiks í síðari hálfleiks og minnkuðu
muninn strax á 51. mínútu þegar Jor-
dan O‘Brien skoraði beint úr auka-
spyrnu. Næstu mínútur voru fjör-
ugar. Markið virtist vekja Skagakon-
ur til lífsins og munaði engu að þær
bættu við eftir atgang í vítateig gest-
anna. KR fékk sömuleiðis sín tæki-
færi og að lokum fór svo að þær nýttu
þau. Á 70. mínútu jafnaði Ásdís Kar-
en Halldórsdóttir með marki eftir
hornspyrnu og KR eygði möguleika
á að halda sæti sínu í deildinni. Fjór-
um mínútum varði Ásta Vigdís vel
úr dauðafæri. Boltinn féll fyrir fætur
Söru Lissy Chontosh sem skaut í Sig-
ríði Maríu Sigurðardóttur og þaðan
í netið. Ótrúlegt mark en dugði KR
til að sigra leikinn og þar með halda
sæti sínu í deildinni. Skagakonur aft-
ur á móti óheppnar að fá ekkert fyrir
sinn snúð.
Keppni í Pepsi deild kvenna er þar
með lokið þetta sumarið og hafnaði
ÍA í 10. og neðsta sæti deildarinnar
með átta stig. Þær leika því í 1. deild
næsta sumar.
kgk
Grátlegt tap í
lokaleiknum
Catherine Dyngvold í þann mund að skora fyrsta mark leiksins með glæsilegu
langskoti. Ljósm. gbh.
Þórður Þorsteinn Þórðarson, leik-
maður ÍA, hefur verið valinn í loka-
hóp U21 árs landsliðs karla í knatt-
spyrnu sem mætir Skotum í dag,
miðvikudaginn 5. október, og Úkra-
ínumönnum þriðjudaginn 11. októ-
ber. Frá þessu er greint á heimasíðu
knattspyrnufélagsins. Verða það tveir
síðustu leikir liðsins í undankeppni
fyrir Evrópukeppnina 2017 sem fram
fer í Póllandi. Fyrir leikina er Ísland í
þriðja sæti riðilsins þremur stigum á
eftir toppliði Makedóníu og tveimur
stigum á eftir Frökkum. Ísland á hins
vegar tvo leiki til góða á bæði liðin og
á því ágæta möguleika á að komast í
lokakeppnina. Sigurlið hvers riðils
tryggir sér sjálfkrafa þátttökurétt en
þau fjögur lið sem hafa bestan árang-
ur í öðru sæti komast í umspil um tvö
laus sæti.
Þórður kom inn í meistaraflokkslið
ÍA á síðasta ári og vakti frammistaða
hans athygli. Þá lék hann fyrst og
fremst stöðu bakvarðar en var færð-
ur framar á völlinn í sumar og hefur
byrjað flesta leiki á hægri kantinum.
Hann hefur komið við sögu í 19 leikj-
um það sem af er sumri og skorað í
þeim þrjú mörk. Þórður hefur áður
verið valinn í U21 árs landsliðið, fyrir
leikina gegn Norður-Írum og Frökk-
um í byrjun septembermánaðar, en
kom ekki við sögu í þeim leikjum.
„Við óskum Þórði til hamingju með
valið og vonumst til að sjá hann fá
tækifæri til að sýna hvað í honum býr
inni á vellinum að þessu sinni,“ segir
á heimasíðu KFÍA. kgk
Þórður Þorsteinn valinn
í U21 árs landsliðið
Þórður Þorsteinn fagnar marki í sumar
ásamt liðsfélögum sínum. Ljósm. gbh.
Lokaumferð Pepsí deildar karla í
knattspyrnu var spiluð á laugardag-
inn. Fyrir þessa umferð gat það orð-
ið hlutskipti Víkings Ólafsvík eða
Fylkis að falla í Inkassó deildina, þ.e.
1. deild. Þrátt fyrir 4:1 tap Víkings
gegn Stjörnunni heldur liðið áfram
í Pepsí deild þar sem Fylkir tapaði
á sama tíma á útivelli 3-0 fyrir KR.
Það var svo Valsarinn Sigurður Eg-
ill Lárusson sem tryggði þeim rauð-
klæddu sigur á Skagamönnum í 1:0
sigri. Niðurstaðan í leiknum breyt-
ir litlu fyrir Skagamenn sem höfnðu
í 8. sæti deildarinnar með 31 stig.
Gleði manna beindist því að því að
fagna með Garðari Gunnlaugssyni
sem skoraði flest mörk allra í deild-
inni í sumar, eða 14 talsins, og fékk
því hinn eftirsótta gullskó afhentan
að leik loknum.
Það eru því Þróttur og Fylkir sem
falla niður um deild og hafa hlut-
verkaskipti við KA og Grindavík
sem sigruðu í 1. deildinni. FH er
öruggur Íslandsmeistari með 43 stig
á toppnum, Stjarnan er í öðru sæti
með 39 stig, KR í því þriðja með 38
og Fjölnir í fjórða sæti með 37 stig.
Víkingur Ólafsvík varð í tíunda sæti
með 21 stig, tveimur stigum meira
en Fylkir.
mm
Víkingur og ÍA áfram í deild þeirra bestu
Svipmynd úr leik Víkings og Stjörnunnar. Ljósm. af.Garðar Gunnlaugsson með gullskóinn
að loknum leik ÍA og Vals á laugardag-
inn. Ljósm. Hafliði Breiðfjörð.
Spá formanna, þjálfara og fyrirliða
í Domino‘s deildum og 1. deild-
um karla og kvenna fyrir tímabil-
ið 2016-2017 var kynnt á blaða-
mannafundi í hádeginu á mánu-
daginn. Ríkjandi Íslands- og bik-
armeisturum Snæfells í körfu-
knattleik kvenna er spáð efsta sæti
deildarinnar nokkuð afgerandi.
Hlaut liðið 186 stig í kosningunni
og hlýtur að teljast sigurstranglegt
sem ríkjandi Íslandsmeistari.
Athygli vekur að nýliðum Skalla-
gríms er síðan spáð öðru sæti deild-
arinnar, með 141 stig í kosningu
formanna, þjálfara og fyrirliða.
Ekki er algengt að nýliðum sé spáð
svo góðu gengi en Skallagrímsliðið
hefur styrkt sig mikið frá því það
sigraði 1. deildina í vor, fengið þrjá
landsliðsmenn auk fyrrum leik-
manns bandaríska landsliðsins.
Ef spámennirnir reynast gets-
pakir munu Vestlendingar því eiga
tvö bestu lið landsins í körfuknatt-
leik kvenna næsta vor. Liðin mæt-
ast einmitt í fyrstu umferð í dag,
miðvikudaginn 5. október. Leikur-
inn fer fram í Borgarnesi og hefst
kl. 19:15.
Karlaliðunum spáð falli
Önnur staða er uppi í spánni fyrir
Domino‘s deild karla. Stjörnunni
er spáð efsta sæti deildarinnar og
Íslands- og bikarmeisturum KR
öðru sætinu. Báðum Vesturlands-
liðunum er hins vegar spáð falli.
Snæfelli er spáð 12. og neðsta sæti
með 44 stig í kosningunni en ný-
liðum Skallagríms næstneðsta sæti
með 96 stig. Líklega mun þó hvor-
ugt liðanna una þessari spá og gera
hvað sem í þeirra valdi stendur til
að gera betur og að minnsta kosti
halda sæti sínu í deildinni.
Að lokum er liði ÍA spáð 7. sæti
1. deildar karla með 117 stig í
kosningunni, örfáum stigum færra
en næstu lið fyrir ofan en langtum
fleiri en liðum Vestra og Ármanns
sem spáð er tveimur neðstu sætun-
um. Fjölni, sem lagði ÍA í fyrri um-
ferð úrslitakeppninnar í vor áður
en það tapaði fyrir Skallagrími í
úrslitaeinvíginu, er hins vegar spáð
beint upp í úrvalsdeild.
kgk/ Ljósm. úr safni
Vesturlandsliðunum spáð
tveimur efstu sætunum
Snæfell vann tvöfalt síðasta vetur, bæði Íslands- og bikarmeistaratitil kvenna. Hér fagnar liðið bikarmeistaratitlinum.