Skessuhorn - 21.12.2016, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 20162
Margir hafa það til siðs að fara til messu og
taka þátt í helgihaldi yfir hátíðirnar, óháð því
hve trúræknir þeir eru á öðrum árstímum. Í
stappfullu jólablaði Skessuhorns er meðal
annars að finna yfirlit yfir helgihald í sókn-
um á Vesturlandi um jól og áramót.
Það verður suðvestan 5-13 m/s, en hægari
og léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Frost
0 til 8 stig, kaldast inn til sveita norðanlands.
Á Þorláksmessu spáir suðlægri eða breyti-
legri átt, 3-8 m/s og dálitlum éljum fram eftir
degi en áfram léttskýjað og kalt fyrir norð-
an og austan. Vaxandi norðaustanátt síð-
degis með snjókomu eða slyddu um land-
ið austanvert. Minnkandi frost. Á aðfanga-
dag jóla er útlit fyrir ákveðna norðlæga átt
með snjókomu austan til á landinu fyrri part
dags, en annars mun hægari breytileg átt
með dálitlum éljum víða um land. Frost 0
til 9 stig, kaldast í uppsveitum á Suðvestur-
landi. Breytileg átt á jóladag, yfirleitt hæg og
líkur á snjókomu í flestum landshlutum, en
síst á Suðvestur- og Vesturlandi. Frost víðast
hvar á landinu. Annan dag jóla er útlit fyrir
austlæga átt með snjókomu fyrir norðan en
suðvestanátt með éljum syðra. Vaxandi suð-
læg átt með ofankomu og hlýnandi veðri
um kvöldið.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Kaupirðu einhverjar jólagjafir á netinu?“
Flestir, eða 60% þeirra sem tóku þátt, sögð-
ust engar jólagjafir kaupa á netinu. „Já,
nokkrar“ sögðu næstflestir, 17 % og 11%
sögðu „já, eina eða tvær“. 10% sögðust
kaupa margar jólagjafir á netinu en að-
eins 2% kváðust kaupa allar jólagjafirnar á
netinu.
Í næstu viku er spurt:
„Hvernig fannst þér árið sem er að líða?“
Mikið af ungu tónlistarfólki á Vesturlandi
hefur undanfarnar vikur haldið fjölda tón-
leika og látið ágóðan af sölu aðgangseyris
renna til góðra málefna. Þetta fólk er tilnefnt
sem Vestlendingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Næsta blað
SKESSUHORN: Jólablað
Skessuhorns er síðasta blað
ársins. Næst kemur blaðið
út miðvikudaginn 4. janúar
2017. Starfsfólk Skessuhorns
undirbýr vinnslu nýársblaðs
dagana 28., 29. og 30. des-
ember, sem og 2. og 3. janú-
ar. Ef fólk þarf að koma áríð-
andi tilkynningum á vef
Skessuhorns yfir hátíðisdag-
ana er bent á að senda tölvu-
póst á netfangið magnus@
skessuhorn.is og jafnframt
að láta vita af slíkum send-
ingum í síma 894-8998.
-mm
Sendum íbúum Vesturlands,
félagsmönnum, félagasamtökum,
fyrirtækjum og öðrum velunnurum
hugheilar jóla- og nýjárskveðjur
Þökkum gott samstarf og stuðning á árinu
Stjórn Hollvinasamtaka HVE SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Útskrift úr FSN 22
Annir í útvarpsrekstri 30-31
Opna fyrirtækjahótel 32
Hugvekja prests 34
Helgihald um hátíðir 36
Þétt aðventudagskrá í Hólminum 40
Fréttaannáll ársins 42-50
Æðarsetur Íslands 52
Ungir Dalabændur 54
Ragnhildur í Ausu 56-57
„Heimurinn er svo lítill núna“ 58-59
Tölvur opna nýjan heim fyrir eldra fólk 60-62
Eiturefnasprengjurnar í Sementsverksmiðjunni 64-65
Kveðjur úr héraði 66-71
Skólastjórar rifja upp bernskujól 72
Flúði eftir innrásina í Kúveit 74-75
Ólst upp austan múrsins 76-77
Jakob á Varmalæk í vísnaþætti 78
Jólakrossgátan 80
Myndagátan 82
Jólin eru hátíð barnanna 83
Óli Rögg í Hraðfrystihúsi Hellissands 84-85
Úrslit í teikningasamkeppni barnanna 86
Úrslit í ljósmyndasamkeppni unglinga 87
Ingibjörg í Garpsdal 88-89
Heimsókn á Höfða 90-91
Sagnaritari samtímans - áhugaljósmyndari ársins 92-94
Samúel tekur þátt í að kanna Norðurljósin 96
Íþróttir vikunnar 102-103
Meðal efnis í
Jólablaði
Skessuhorns:
Hæstiréttur kvað í gær upp tvo dóma
í sambærilegum málum sem snerta
snæfellsk sjávarútvegsfyrirtæki.
Annars vegar Hraðfrystihús Hell-
issands í Rifi og hins vegar Guð-
mund Runólfsson hf. í Grundar-
firði. Í báðum tilfellum sneri Hæsti-
réttur við niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur frá 8. janúar 2016 og
dæmdi sjávarútvegsfyrirtækjunum
í hag. Landsbankinn var dæmdur
til að greiða Hraðfrystihúsi Hellis-
sands 1,16 milljarð króna auk vaxta,
en í tilfelli Guðmundar Runólfsson-
ar hf. var upphæðin réttur milljarð-
ur króna auk vaxta. Landsbankanum
var jafnframt gert að greiða máls-
kostnað. Ljóst er að í báðum þess-
um málum skiptir niðurstaðan sjáv-
arútvegsfyrirtækin sem í hlut eiga
gríðarlegu máli.
Í báðum þessum málum var deilt
um hvort Landsbankanum hefði
verið heimilt við endurútreikning á
lánasamningum til fyrirtækjanna að
krefja þau um vexti sem bundnir voru
ólögmætri gengistryggingu. Bank-
anum var óheimilt að reikna vexti á
gjalddaga sem gjaldfallið hefðu fyr-
ir endurútreikning lánanna. Í dómi
Hæstaréttar var vísað til þess að við
heildarmat á öllum aðstæðum yrði
að líta til þess hvaða áhrif viðbótar-
krafan hefði á efnahag Hraðfrysti-
húss Hellissands og Gruðmund-
ar Runólfssonar og óhagræði fyrir-
tækjanna af því að þurfa að standa
skil á kröfunum. Var talið að þegar
litið væri til stærðar fyrirtækjanna
og umsvifa væru áhrif viðbótarkröf-
unnar svo veruleg að Landsbankinn
yrði sjálfur að bera þann vaxtamun
sem um var deilt í málinu.
Forsvarsmenn beggja
fyrirtækja í skýjunum
Guðmundur Smári Guðmunds-
son framkvæmdarstjóri Guðmund-
ar Runólfssonar var að vonum hæst-
ánægður með niðurstöðu Hæstarétt-
ar þegar Skessuhorn hafði samband
við hann í gær. „Þetta skiptir gríðar-
legu máli fyrir rekstur fyrirtækisins,“
sagði Guðmundur Smári er hann var
inntur eftir viðbrögðum við dómn-
um. „Við erum gríðarlega ánægðir
með þessa niðurstöðu,“ bætti hann
við.
„Í mínum huga er Hæstiréttur að
fullnægja réttlætinu, það er ekkert
öðruvísi,“ sagði Ólafur Rögnvalds-
son hjá Hraðfrystihúsi Hellissands
þegar niðurstaða Hæstaréttar lá fyrir
í gær. „Hvorki ég né flestir aðrir vor-
um bjartsýnir á að við myndum sigra
bankann í þessu máli, en sem betur
fer varð það raunin. Árna Páls lögin
svokölluðu voru skelfileg og við vor-
um að greiða allt upp í 23% vexti af
þessum lánum sem verið að var að
dæma í núna. Það sér það hver mað-
ur að það náði engri átt. Auðvitað
er ég afskaplega ánægður með þessa
niðurstöðu, en líklega er þó eng-
in ánægðari en konan mín. Hún sá
best hvernig mér leið mánuðina eftir
hrun þegar lán og greiðslubyrði var
að sliga okkar fyrirtæki eins og svo
mörg önnur,“ sagði Ólafur Rögn-
valdsson í samtali við Skessuhorn.
mm/tfk
Tvö snæfellsk sjávarútvegs-
fyrirtæki vinna mál gegn
Landsbankanum
Frá athafnasvæði GRun í Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Svipmynd úr Hraðfrystihúsi Hellissands.