Skessuhorn - 21.12.2016, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 20164
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Auk þess skráðu efni í Jólablað: Haraldur Bjarnason og Katrín Lilja Jónsdóttir
Auglýsingar:
Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is
Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Nú um helgina ganga jólin í garð. Eftir helgi verða svo yfirstaðnir þess-
ir rauðu frídagar á almanakinu og við tekur venjuleg vinnuvika hjá mörg-
um. Fyrir fólk á almennum vinnumarkaði er jólafríið óvenju stutt að þessu
sinni, held að það sé kallað Litlu Brandajól þegar aðfangadag ber upp á
laugardag. Maður veltir því fyrir sér hvort þessu þurfi ekki að breyta, því
auðvitað hafa allir gott af því að taka frí frá vinnu nú þegar skammdegið
er mest. Allt þetta tilstand og öll þessi neysla, fyrir einungis langa helgi,
er náttúrlega svolítið undarlegt. En auðvitað er það mismunandi eftir að-
stæðum hversu margir frídagarnir eru í boði, ef þeir eru þá einhverjir. Ég
minni á að bændur, lögregla og fólk í umönnunarstéttum þarf margt hvert
að vinna, hvernig sem litur dagsins er á almanakinu. En vonandi tekst öll-
um að njóta hátíðarinnar, fanga hinn sanna jólaanda og eiga góðar stundir
með sínum nánustu.
Ég var svo heppinn að alast upp í sveit og upplifa jól þar sem búskapur
var stundaður. Skepnunum á búinu þurfti jú að sinna hvort sem það voru
jól eða áramót. Það fylgdi því hátíðarblær að fara til gegninga á jólum.
Kýrnar fengu sérvalda og ilmandi töðu ef hægt var að koma því við. Í fjár-
húsunum var nýhafin veisla af öðru tagi þegar hrútarnir fengu á aðfanga-
dag að heimsækja ærnar eftir langan aðskilnað. Þá var nú fjör í fjárhúsun-
um. Eftir hrútarag var gefið á garðann og aldrei var kyrrlátara í húsunum
en einmitt þegar ærnar hámuðu í sig töðuna um svipað leiti og klukkur
Dómkirkjunnar glumdu í útvarpinu og jólunum var hringt inn. Þá var gott
að tylla sér á jötubandið og fylgjast með þeim um stund. Í fjósinu var einn-
ig kyrrlátt og engu líkara en kýrnar meðtækju hina postulegu kveðju, rétt
eins og presturinn í Dómkirkjunni bað um. Fjóskötturinn fékk sendingu
innan úr bæ þetta kvöld og át glaður fiskinn sem honum var færður. Hann
fúlsaði sko ekki við skötubita blessaður, þótt annað hvert mannsbarn kynni
ekki slíkt að meta þá, frekar en nú.
Minningar um æskujól eru mörgum hugljúfar og er ég þar engin und-
antekning. Aðfangadagskvöld var reyndar dálítill sprettur heima hjá mér
þótt allir væru að reyna að halda ró sinni. Dagskráin var dáldið stíf til að
öllu yrði náð á tilsettum tíma. Þvottur eftir útiverkin, drifið sig í alspari-
fötin og skvett vel yfir af ilmi ef minnsti grunur léki á að enn væri fjósalykt
þar sem hún átti ekki að vera. Þvínæst var sest að snæðingi. Ekki var far-
ið í stofuna fyrr en búið var að vaska upp og gera eldhúsið tiptop. Dáldið
lengi sem tíminn var að líða einmitt þá, en styttist í minningunni eftir því
sem árunum fjölgaði. Eftir aðgerðina í eldhúsinu mátti fyrst byrja að kíkja
í pakkana. Einn opnaður í einu, jólakortin lesin og dáðst að fallegum gjöf-
um. Þessu skyldi svo öllu lokið áður en sest var upp í jeppann og brunað til
aftansöngs í Reykholtskirkju. Presturinn átti það til að vera dáldið langorð-
ur, en allt hafðist þetta að lokum. Fólk óskaði hvert öðru gleðilegra jóla,
leit við í kirkjugarðinum við leiði látinna ástvina og svo var brunað heim á
leið. Í minningunni var alltaf snjór yfir öllu, frost og stjörnubjart. Allavega
man ég ekki eftir þessu öðruvísi, en líklega hefur það þó ekki alltaf verið
svo. Hins vegar var oft kominn bylur og verra veður á jóladag. Þann dag
var blásið til veislu á mínu heimili, gestir streymdu í hús því móðir mín var
jóladagsbarn. Einatt góður dagur.
Nú þegar Dómkirkjuklukkurnar hringja brátt jólin inn, óska ég lesend-
um Skessuhorns til sjávar og sveita, gleðilegrar og friðsællar hátíðar. Haf-
ið hjartans þökk fyrir árið sem er að líða. Megi árið 2017 verða öllum gjöf-
ult og gott.
Magnús Magnússon.
Kýrnar meðtóku hina
postulegu blessun
Þær Hafdís Bergsdóttir og Hildur
Björnsdóttir hafa selt rekstur kaffi-
hússins Skökkin Café við Kirkju-
braut 2 á Akranesi. Kaupendur eru
Christel Björg Rudolfsdóttir Clot-
hier og Guðleifur Rafn Einarsson.
Hyggjast þau innan tíðar opna nýtt
kaffihús á sama stað undir nafninu
Lesbókin Café, en nafnið Lesbók-
in hefur lengi loðað við húsið. „Við
ætlum bara að reyna að opna sem
fyrst,“ sögðu Christel og Guðleif-
ur í samtali við Skessuhorn eftir að
þau fengu lyklana í hendurnar síð-
degis á fimmtudaginn. „Við ætlum
að breyta smá en ekkert stórvægi-
lega. Bara gera húsnæðið að okkar,
ljá því okkar blæ og síðan munum
við opna um leið og við erum tilbú-
in,“ segja þau.
Aðspurð hvernig það kom til
að þau ákváðu að fara út í kaffi-
húsarekstur segir Guðleifur, sem
er fyrrverandi sjómaður, að hug-
myndin hafi kviknað í sumar. „Þessi
hugmynd kviknaði hjá mér í sumar
þegar ég var úti á sjó. Mig langaði
til að gera eitthvað alveg nýtt, bar
þessa hugmynd undir kærustuna og
hér erum við,“ segir hann og bros-
ir. Christel er í fæðingarorlofi sem
kennari við Grundaskóla. Eru þau
því bæði að söðla um og reyna sig
á nýjum vettvangi. „Við erum bæði
að prófa eitthvað alveg nýtt í lífinu
og erum að fara aðeins út fyrir okk-
ar þægindaramma,“ segir hún og
brosir. „En við vonumst auðvitað
bara til að fólk taki okkur vel og
verði duglegt að láta sjá sig,“ bæt-
ir hún við.
Aðspurð segjast þau hafa í hyggju
að hafa opið alla daga vikunnar, frá
kl. 10 að morgni til 18 á kvöldin en
ef til vill aðeins skemmri opnun-
artíma laugardaga og sunnudaga.
„Opna þá kannski frekar klukk-
an 11 um helgar,“ segir Guðleif-
ur. „Í hádeginu verði boðið upp
á góðar súpur og brauð, pastasal-
at, kjúklingasalat og samlokur, að
ógleymdu kaffi og meðlæti,“ segir
Christel. „Hugsunin er sú að þegar
komið er hingað inn þá finni gest-
ir góðan kaffiilm og finnist þeir vel-
komnir. Hér á að vera kósí stemn-
ing,“ segja þau Christel og Guðleif-
ur að lokum.
kgk
Lesbókin Café verður opnuð við Akratorg
Formleg eigendaskipti urðu síðdegis á fimmtudag og lyklarnir að húsnæðinu
afhentir. Til vinstri eru nýir eigendur, þau Guðleifur Rafn Einarsson og Christel
Björg Rudolfsdóttir Clothier, en þær Hafdís Bergsdóttir og Hildur Björnsdóttir til
hægri.
Starfsmenn Borgarverks í Borgar-
nesi hafa nú í vörslu sinni sex senti-
metra langa engisprettu sem barst
til landsins og upp í Borgarnes með
varahlutasendingu frá Suður-Kór-
eu. Hafliði Gunnarsson vélamaður
hjá fyrirtækinu sagði í samtali við
Skessuhorn um helgina að engi-
spretta þessi hafi komið skríðandi á
móti starfsmönnum þegar umbúð-
ir voru teknar utan af beltakeðju í
síðustu viku. „Þetta er ótrúlega lífs-
seigt kvikindi. Varahlutasendingin
hefur örugglega verið nokkrar vik-
ur á leiðinni til landsins með skipi
frá Suður-Kóreu og þá var pakkinn
búinn að vera úti á hlaði hjá okkur
í tvær, þrjár vikur, áður en umbúð-
irnar voru teknar af.“ Hafliði segir
að einn fót vanti á engisprettuna, en
að öðru leyti sé hún með ágætu lífs-
marki. Hún sé höfð undir glasi inni
á verkstæðinu fyrirtækisins við Sól-
bakka og fái þar einhverja næringu.
„Það er líklega betra að hafa gæslu á
henni, svo ekki fari eins og í kvæð-
inu hjá Bjartmari; „engisprettu-
faraldur-Haraldur,“ sagði Hafliði
glettinn.
mm
Engispretta á ferðinni í Borgarnesi
Engisprettan undir bjórglasi í vörslu
Borgarverksmanna. Ljósm. hg.
„Að gefnu tilefni telur sveitar-
stjórn rétt að fram komi að Hval-
fjarðarsveit hefur keypt fasteign-
ina að Lækjarmel 7 í Hvalfjarðar-
sveit,“ segir í tilkynningu sem birt
var á vef Hvalfjarðarsveitar síðast-
liðinn fimmtudag. Tilefni þessarar
yfirlýsingar var umræða sem fram
hafði farið á spjallsíðu íbúa sveit-
arfélagsins þar sem nokkrir íbúar
lýstu furðu sinni á að sveitarsjóð-
ur hafi keypt einbýlishús sem fyrr-
um skólastjóri grunn- og leikskól-
ans átti. Skólastjórinn lét af störfum
síðsumars um svipað leiti og skóla-
starf hófs. Í yfirlýsingu sveitar-
stjórnar nú segir að þessi ráðstöfun
um kaup á einbýlishúsinu á Haga-
mel sé hluti af starfslokasamningi
milli Hvalfjarðarsveitar annars veg-
ar og fyrrverandi skólastjóra leik-
og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar
hins vegar. „Kaupverð eignarinnar
var samkvæmt verðmati óháðs fast-
eignasala. Um er að ræða fasteign
sem byggð er árið 2006 og í góðu
standi. Ekki er gert ráð fyrir því
að sveitarfélagið beri fjárhagsleg-
an skaða af kaupunum, enda er um
góða eign að ræða og hefur húsið
nú verið sett í sölumeðferð.“ Sam-
kvæmt söluskrá fasteignasölunn-
ar Hákots er húsið boðið til sölu á
39,9 milljónir króna.
Þá segir í yfirlýsingu sveitar-
stjórnar að efni og ástæður starfs-
lokanna við fráfarandi skólastjóra
verða ekki tilgreind frekar. „Starfs-
lokasamningar af þessu tagi eru
ekki óalgengir og er ekkert í ákvæð-
um þessa samnings sem getur tal-
ist óvenjulegt eða umfram það sem
algengt er í slíkum samningum.
„Samkvæmt eðli máls er samning-
urinn trúnaðarmál þó framangreint
sé upplýst.“ Undir yfirlýsingu sveit-
arstjórnar ritar Skúli Þórðarson
sveitarstjóri. mm
Kaup sveitarsjóðs á íbúðarhúsi
hluti af starfslokasamningi