Skessuhorn - 21.12.2016, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 20168
Strætó hækkar
verð um
áramótin
LANDIÐ: Ný gjaldskrá
Strætó bs mun taka gildi 3.
janúar næstkomandi. Al-
mennt staðgreiðslugjald og
stakt fargjald í appinu verða
440 kr., sem er hækkun um
4,8%, en staðgreiðsla og
stakt fargjald í appinu fyrir
börn yngri en 18 ára, aldr-
aða og öryrkja verða óbreytt.
Önnur fargjaldaform eins
og farmiðar og kort hækka í
kringum 4%. Í rekstri Strætó
vegur hækkun á launakostn-
aði og olíuverði um 70% af
heildar rekstrarkostnaði og
tekur hækkunin nú mið af
hækkunum á þeim kostnað-
arþáttum. Í eigendastefnu
Strætó kemur fram að stefnt
skuli að því að fargjaldatekjur
standi undir allt að 40% af
almennum rekstrarkostn-
aði Strætó. Í dag standa far-
gjaldatekjur undir um 32%
af almennum rekstrarkostn-
aði félagsins. -mm
Styrktu
Mæðra-
styrksnefnd
GRUNDART: Norðurál
á Grundartanga lét gott af
sér leiða nú fyrir hátíðirn-
ar. Veitti fyrirtækið Mæðra-
styrksnefnd Akraness hálfr-
ar milljónar króna styrk, sem
strax kom í góðar þarfir til
að létta undir með þeim sem
minnst hafa. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 10.-16. desember
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes, 1 bátur.
Heildarlöndun: 5.665 kg.
Mestur afli: Ebbi Ak: 5.665
kg í einni löndun.
Arnarstapi, 2 bátar.
Heildarlöndun: 5.710 kg.
Mestur afli: Haukaberg SH:
3.582 kg í einni löndun.
Grundarfjörður, 6 bátar.
Heildarlöndun: 266.634 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
66.762 kg í einni löndun.
Ólafsvík, 12 bátar.
Heildarlöndun: 140.065kg.
Mestur afli: Guðmund-
ur Jensson SH: 38.918 kg í
tveimur löndunum.
Rif, 11 bátar.
Heildarlöndun: 337.404 kg.
Mestur afli: Rifsnes HS:
65.237 kg í einni löndun.
Stykkishólmur, 5 bátar.
Heildarlöndun: 107.397 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
662.062 kg í einni löndun.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Hringur SH - GRU:
66.762 kg. 14. desember.
2. Rifsnes SH - RIF:
65.237 kg. 15. desember.
3. Tjaldur SH - RIF:
64.221 kg. 15. desember.
4. Þórsnes SH - STY:
62.962 kg. 14. desember.
5. Steinunn SF - GRU:
61.74 kg. 11. desember.
kgk
Eins og áður hefur verið greint frá
leggur Vegagerðin til að nýr Vest-
fjarðarvegur milli Bjarkalundar og
Skálaness verði lagður um Gufu-
dalssveit, svokallaðri Þ-H leið, sem
liggur meðal annars um Teigsskóg í
Þorskafirði. Í nýlegri umsögn Um-
hverfisstofnunar til Skipulagsstofn-
unar um frummatsskýrslu vegna
mats á umhverfisáhrifum nýs Vest-
fjarðavegar, er það mat Umhverf-
isstofnunar að leið Þ-H sé einn af
verri kostum sem til skoðunar eru,
með tilliti til umhverfisáhrifa.
Það segir að vegalagning eftir
leið Þ-H muni hafa umtalsverð og
neikvæð umhverfisáhrif í för með
sér, vegna mikils rasks í birkiskóg-
inum Teigskógi. „Áhrif á Teigsskóg
eru óafturkræf og telur Umhverfis-
stofnun að leið Þ-H sé að vissu leyti
verri kostur en aðrar línur sem til
álita hafa komið um Teigsskóg þar
sem leið Þ-H liggur á kafla talsvert
hærra í landi en fyrri línur og kallar
því á auknar skeringar og fyllingar,“
segir meðal annars í umsögninni.
Umhverfisstofnun telur að veg-
línan muni skerða landform og
vistkerfi sem einkenna ströndina
við Þorskafjörð vestanverðan. Hún
skerði Teigsskóg þar sem hann
nær milli fjalls og fjöru og þar með
hæfni vistkerfisins til að bregðast
við breytingum, til dæmis loftslags-
breytingum. Þá er það einnig mat
Umhverfisstofnunar að leið Þ-H
muni raska fjörum og tjörnum á
Hallsteinsnesi, auk þess sem línan
muni skerða sker, hólma og eyjar í
mynni Djúpafjarðar og Gufufjarð-
ar og þar með hafa umtalsverð nei-
kvæð áhrif á landslag og náttúru-
fyrirbæri sem vernd Breiðarfjarðar
nær til. Vegna lítils undirlendis seg-
ir stofnunin raunar vandséð hvern-
ig unnt verði að koma fullbúnu fyr-
ir á þessu svæði án verulegra um-
hverfisáhrifa. „Umhverfisstofn-
un telur verulega neikvætt að leið
Þ-H liggur að mestu um svæði sem
er lítt snortið af nútíma mannvirkj-
um og telst nánast óraskað,“ segir í
umsögninni.
Umhverfisstofnun segir að all-
ar þær fimm leiðir sem lagðar voru
fram til mats á umhverfisáhrif-
um liggi um verndarsvæði og raski
vistkerfum sem njóta verndar sam-
kvæmd náttúruverndarlögum. Það
var því mat Umhverfisstofnunar að
önnur jarðgangaleiðanna, leið D2,
sé besti kosturinn með tilliti til um-
hverfisáhrifa. Hún liggur á stystum
kafla um svæði sem telst óraskað
og þeirri leið fylgja engir tengiveg-
ir. Leiðin fylgir núverandi vegi frá
Bjarkalundi að Þorskafirði og þver-
ar fjörðinn rétt utan Mjólkárlínu.
Hún gerir ráð fyrir jarðgöngum
undir Hjallaháls en nýju vegstæði
yfir Ódrjúgsháls og síðan þverun
Gufufjarðar skammt utan Hofs-
staða og endar við Skálaneshraun á
Skálanesi. kgk
Umhverfisstofnun telur
jarðgangaleið besta kostinn
Framsóknarflokkurinn fagnaði eitt
hundrað ára afmæli sínu síðastlið-
inn föstudag með hátíðarhöldum
á nokkrum stöðum. Framsóknar-
flokkurinn var formlega stofnað-
ur 16. desember 1916 við samruna
Bændaflokksins og Óháðra bænda
og er elsti starfandi stjórnmála-
flokkur landsins. Flokkurinn hef-
ur alla tíð staðsett sig á miðjunni
á hinum hefðbundna pólitíska
ási. Hann hefur frá stofnun verið
áberandi í íslenskum stjórnmálum
og oftar en ekki verið leiðandi afl,
því Framsóknarflokkurinn hefur
átt sæti í ríkisstjórn í tæplega sjö-
tíu af þeim hundrað árum sem lið-
in eru frá stofnun hans. Sérstak-
lega áberandi var flokkurinn frá
1971-1991 og þetta tímabil stund-
um nefnt „Framsóknaráratugirn-
ir.“ Flokkurinn var í stjórn hvert
einasta ár á þessu 20 ára tímabili,
ef frá eru taldir nokkrir mánuðir
kringum áramótin 1980. Meira en
helming þessa tíma kom forsætis-
ráðherra úr röðum Framsóknar-
flokksins.
Samtals hefur forsætisráðherra
tólf sinnum komið úr röðum
Framsóknarflokksins frá stofn-
un hans og níu Framsóknarmenn
gegnt embætti forsætisráðherra í
þessi tólf skipti, því þrír gegndu
embættinu tvisvar sinnum.
„Samfylgd með þjóðinni í hundr-
að ár segir sína sögu. Kannski fyrst
og fremst þá, að Framsóknarflokk-
urinn hefur alla tíð verið áhrifa-
mikið afl á vettvangi íslenskra
þjóðmála. Það hefur verið gæfa
flokksins að honum hefur auðn-
ast að laga sig að breyttum tímum
og gert það vel, án þess nokkurn
tímann að víkja frá grunngildun-
um. Og enn stöndum við frammi
fyrir áskorunum. Ný ríkisstjórn að
loknum kosningum í október hef-
ur ekki enn verið mynduð, önnur
staða er uppi á Alþingi en við höf-
um átt að venjast. Úrslit kosning-
anna eru vísbending um að mynd-
uð verði ríkisstjórn með breiða
skírskotun til hægri og vinstri.
Milli jaðranna vinstri og hægri í
stjórnmálum er miðjan, þunga-
miðjan. Þar erum við og höfum
verið í heila öld,“ skrifar formaður
Framsóknarflokksins og forsætis-
ráðherra, Sigurður Ingi Jónasson,
á heimasíðu flokksins í tilefni af
hundrað ára afmælinu.
kgk
Framsóknarflokkur í hundrað ár
Víða um land voru snæddar hátíðartertur á eitt hundrað ára afmæli flokksins. Ljósm. Elsa Lára Arnardóttir.