Skessuhorn - 21.12.2016, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201622
Landmælingar Íslands í 60 ár
Landmælingar Íslands eiga sér merka sögu sem hefur
einkennst af góðu samstarfi við fjölmarga einstaklinga,
stofnanir og fyrirtæki hér á landi og erlendis.
Árið 2016 var viðburðaríkt en á því ári varð stofnunin 60
ára. Af því tilefni var m.a. haldin vel sótt afmælisráðstefna
og skemmtileg sýning á verkefnum grunnskólabarna
á Akranesi þar sem viðfangsefnið var Ísland. Einnig
var haldið opið hús fyrir gesti og gangandi og var
ánægjulegt hve margir nýttu það tækifæri til að kynna sér
starfsemina.
Nú þegar jólahátíð er að ganga í garð óskar starfsfólk
Landmælinga Íslands ykkur gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári. Jafnframt eru færðar þakkir fyrir traust
samstarf með von um ánægjuleg samskipti í framtíðinni.
Jól 2016
Starfsfólk Landmælinga Íslands
Í gær, þriðjudaginn 20. desemb-
er, brautskráðust 13 nemend-
ur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga
í Grundarfirði. Af félagsfræði-
braut brautskráðust þau Andri Már
Magnason, Bergdís Rán Jónsdótt-
ir, Jóhanna Kristín Sigurðardótt-
ir, Jórunn Sif Helgadóttir, Lovísa
Margrét Kristjánsdóttir, Margrét
Hólmfríður Magnúsdóttir og Vikt-
or Marinó Alexandersson. Af nátt-
úrufræðibraut brautskráðust Al-
exander Rodriguez Hafdísarson,
Guðlaug Íris Jóhannsdóttir, Ingvar
Örn Kristjánsson og Margrét Ol-
sen. Viðbótarnámi til stúdentsprófs
luku Laufey Björg Guðbjörnsdóttir
og Kristjana Pétursdóttir. Athöfnin
hófst á því að Stórsveit Snæfellsness
flutti lag. Sveitin er skipuð nem-
endum Fjölbrautaskóla Snæfellinga
og er jafnan fengin til þess að koma
fram við hátíðleg tækifæri, enda
stolt skólans.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir,
skólameistari Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga, brautskráði nemendur og
flutti ávarp. Sólrún Guðjónsdóttir
aðstoðarskólameistari afhenti síð-
an nemendum viðurkenningar fyrir
góðan námsárangur. Sveitarfélögin
sem standa að skólanum gáfu við-
urkenningarnar auk Arion banka,
Landsbankanum og Hugvísinda-
deild Háskóla Íslands.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlaut Margrét Olsen. Hún fékk
veglega bókagjöf frá sveitarfélögun-
um og peningagjöf frá Landsbank-
anum. Hún fékk einnig viðurkenn-
ingu fyrir góðan námsárangur í
stærðfræði, ensku, raungreinum og
íslensku. Guðlaug Íris Jóhannsdótt-
ir fékk viðurkenningu fyrir góð-
an árangur í viðskiptagreinum og
dönsku og Jórunn Sif Helgadóttir
fékk viðurkenningu fyrir góðan ár-
angur í spænsku.
María Kúld Heimisdóttir flutti
kveðjuræðu fyrir hönd kennara og
starfsfólks og Ívar Sindri Karvels-
son flutti ræðu fyrir hönd fimm ára
stúdenta. Nýstúdentinn Margrét
Olsen hélt kveðjuræðu fyrir hönd
nýstúdenta þar sem hún kvaddi
skólann og starfsfólk hans. Að lok-
um bauð skólameistari gestum í
kaffi og kökur. mm/ba/
Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Ljósm. tfk.
Margrét Olsen var dúx skólans að þessu sinni. Hér er hún fyrir miðju ásamt öðrum verðlaunahöfum. Ljósm. tfk.