Skessuhorn - 21.12.2016, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2016 27
KÖNNUN Á ÁFORMUM MARKAÐSAÐILA VARÐANDI
UPPBYGGINGU FJARSKIPTAINNVIÐA
Fyrirhuguð er lagning ljósleiðara í Skorradalshreppi, sem veita á öruggt
þráðbundið netsamband í dreifbýli sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að tengja
öll lögheimili í sveitarfélaginu. Einnig standi eigendum frístundahúsa og
fyrir tækja, sem staðsett eru í dreifbýli Skorradalshrepps, til boða að tengjast
ljósleiðaranum. Gert er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að
Einnig er möguleiki að hluti þessara fjarskiptainnviða tengist lögheimilum
í hluta Borgarbyggðar, nánar tilekið í dreifbýlinu Andakíl. Þar standi
einnig eigendum frístundahúsa og fyrirtækja í Andakíl til boða að tengjast
ljósleiðaranum.
Auglýst er eftir:
A. Aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingu
eða annarri a.m.k. 100 Mb/s þráðbundinni netþjónustu í Skorradalshreppi
(utan þéttbýlis) á næstu þremur árum á markaðslegum forsendum.
B. Hæfum aðila, eða aðilum, til að taka að sér að byggja upp ljós-
framtíðar, komi til þess að enginn aðili svari lið A. hér að ofan. Aðilar
fjárhagslegan styrk, reynslu af uppbyggingu og rekstri sambærilegra
C. Eiganda mögulegra fyrirliggjandi fjarskiptainnviða í Skorradalshreppi
sem er tilbúinn að leggja þá til við uppbygginguna gegn endurgjaldi sem
ofan á jafnræðisgrundvelli.
Áhugasamir skulu senda tilkynningu til Skorradalshrepps á netfangið
skorradalur@skorradalur.is fyrir kl. 12:00 þann 31. desember nk. Í tilkynn-
ingunni skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga um ofan-
greint eftir því sem við á.
Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum og skýringum og skulu slíkar fyrir-
spurnir sendar á netfangið skorradalur@skorradalur.is.
Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir Skorradalshrepp né þá
sem sýna verkefninu áhuga.
Oddviti Skorradalshrepps
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
SKORRADALSHREPPUR
Sönghópurinn Borgarfjarðardæt-
ur mun halda tvenna jólatónleika
á milli jóla og nýárs. Fyrri tónleik-
arnir verða haldnir í Reykholts-
kirkju miðvikudaginn 28. desemb-
er kl. 20:30 en þeir síðari í Hall-
grímskirkju í Saurbæ fimmtudag-
inn 29. desember, einnig kl. 20:30.
Sönghópinn skipa fimm ungar og
efnilegar tónlistardömur úr Borg-
arfirði, sem allar eru menntaðar
í klassískum söng eða píanóleik.
Þær eru Birna Kristín Ásbjörns-
dóttir frá Ásbjarnarstöðum í Staf-
holtstungum, Ásta Marý Stefáns-
dóttir frá Skipanesi í Melasveit,
Anna Þórhildur Gunnarsdóttir
frá Brekku í Norðurárdal, Stein-
unn Þorvaldsdóttir frá Hjarðar-
holti í Stafholtstungum og Þor-
gerður Ólafsdóttir frá Sámsstöð-
um í Hvítársíðu.
Þetta er annað árið í röð sem
Borgarfjarðardætur halda sam-
an tónleika á jólum. „Við byrjuð-
um í fyrra eftir að við Birna Krist-
ín söfnuðum saman hópi sem var
að mennta sig í klassísku tónlist-
arnámi. Við fengum þá til liðs
við okkur nokkrar söngkonur og
héldum tónleika í Reykholti. Við
ákváðum að endurtaka leikinn í ár
og núna verða tvennir tónleikar,“
segir Steinunn Þorvaldsdóttir í
samtali við Skessuhorn. Hópurinn
hefur einnig tekið að sér að syngja
á jólahlaðborðum og árshátíðum í
vetur. Tónleikarnir verða með há-
tíðlegu yfirbragði. „Þetta eru jóla-
tónleikar og við munum eingöngu
syngja jólalög. Bæði hátíðleg ein-
söngslög og léttari samsöngslög
sem við syngjum og röddum. Það
verður píanóundirleikur og leik-
ið undir á orgel en við tökum líka
„A cappella“ lög, sem eru söngur
án hljóðfæraleiks,“ segir Steinunn.
Enginn aðgangseyrir er inn á tón-
leikana en hægt verður að leggja
fram frjáls framlög í bauk við inn-
gang. „Allir eru velkomnir og við
vonumst til að sjá sem flesta,“ seg-
ir Steinunn.
grþ
Borgarfjarðardætur með jólatónleika
Borgarfjarðardætur halda tvenna jólatónleika á milli jóla og nýárs. Frá vinstri: Ásta Marý Stefánsdóttir, Anna Þórhildur
Gunnarsdóttir, Birna Kristín Ásbjörnsdóttir, Þorgerður Ólafsdóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir.
Grindurnar eru framleiddar úr endurunnu plasti -
endurvinnanlegar - menga ekki jarðveginn
VER ehf, Kirkjubraut 12 - 300 Akranesi
431 1111 - ver@ver-ehf.is
Frekari upplýsingar á ecoraster.is
Við þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Snæfellsbær Borgarbyggð GrundarfjarðarbærUmhversstofnun