Skessuhorn - 21.12.2016, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201630
GLEÐILEGA HÁTÍÐ TIL
SJÁVAR OG SVEITA OG
FARSÆLT KOMANDI ÁR
Samkvæmt könnun Rannsóknaset-
urs verslunarinnar fór jólaverslunin
í nóvember af stað með meiri krafti
en áður. „Black Friday virðist hafa
haft hvetjandi áhrif á verslun. Þann-
ig jókst sala á stórum raf- og heim-
ilistækjum um fjórðung frá sama
mánuði í fyrra og aukning í sölu
minni raftækja, eins og sjónvörpum,
var um 15%. Húsgagnaverslun var
einnig blómleg í mánuðinum, eins
og verið hefur það sem af er árinu.
Sala á húsgögnum var 17,3% meiri í
nóvember sl. en fyrir ári síðan.“ At-
hygli vekur að sala á fötum og skóm
tók mikinn kipp í nóvember. Þann-
ig var sala á fötum 12,7% meiri en
í nóvember í fyrra og sala á skóm
jókst um 16% á sama tólf mán-
aða tímabili. Velta dagvöruverslana
eykst jafnt og þétt. Í nóvember jókst
sala í þeim um 6,3% frá nóvember í
fyrra og virðast landsmenn ætla að
gera vel við sig fyrir jólin bæði í mat
og drykk í tilefni árstíðarinnar. Verð
á dagvöru fer lækkandi og var 0,6%
lægra en fyrir ári síðan.
Íslendingar á faraldsfæti
Í nóvember var sala snjallsíma 3,9%
minni en í sama mánuði í fyrra. „Þá
eru spurnir af töluverðri aukningu
í innkaupaferðum Íslendinga til út-
landa fyrir þessi jól vegna sterkr-
ar stöðu íslensku krónunnar og því
má gera ráð fyrir að hluti af jóla-
innkaupunum fari þar fram. Kred-
itkortavelta Íslendinga erlendis í
nóvember síðastliðnum var 25%
meiri en í nóvember í fyrra og nam
9,6 milljörðum kr. Á móti kemur að
greiðslukortavelta útlendinga hér á
landi í nóvember nam 15,4 milljörð-
um kr. sem er 68% aukning í korta-
veltu frá nóvember í fyrra,“ segir í
samantekt Rannsóknaseturs versl-
unarinnar. mm
Jólaverslun fór
af stað með krafti
Árlegt jólaútvarp Nemendafélags
Grunnskóla Borgarness, Útvarp
Óðal, var sent út í síðustu viku.
Dagskráin hófst á mánudags-
morgun og stóð alla dagana fram
til klukkan 23. Henni lauk svo um
kvöldmatarleitið á föstudaginn með
kveðju útvarpsstjóra og veislu fyr-
ir alla þá sem að útvarpinu komu.
Dagskrá Útvarps Óðals var fjöl-
breytt og komu nemendur úr öll-
um árgöngum skólans að dagskrár-
gerð. Yngri hóparnir tóku upp og
hljóðrituðu efni en eldri árgangar
voru með dagskrárgerð í beinni út-
sendingu. Þá komu gestir að þessu
sinni m.a. frá Laugargerðisskóla og
Menntaskóla Borgarfjarðar. Há-
punktur Útvarps Óðals var þáttur-
inn Bæjarmálin í beinni. Þar komu
fulltrúar sveitarstjórnar, atvinnulífs
og félagasamtaka og ræddu það sem
efst var á baugi í samfélaginu.
Hefð er fyrir því að formaður
nemendafélagsins sé jafnframt út-
varpsstjóri. Að þessu sinni var það
Íris Stefánsdóttir. Hún sagði í sam-
tali við Skessuhorn að útsending-
ar hafi gengið að óskum. Töluverð
vinna hafi verið í utanumhaldi,
skipulagningu og textagerð og við-
urkenndi hún, þegar blaðamaður
ræddi við hana á fimmtudaginn, að
örlítillar þreytu væri farið að gæta
í hópnum, en gleðin væri þó yfir-
sterkari. Undirbúningur hafi staðið
lengi en nemendur leggja drög að
þáttagerðinni með dágóðum fyrir-
vara og fá metið til einkunnar í ís-
lensku við skólann. Kristín M. Val-
garðsdóttir kennari við Grunnskóla
Borgarness er nemendum jafnframt
til aðstoðar við utanumhald. Hún
sagði að útvarpið væri fjármagnað
með sölu auglýsinga og sagði hún
söluna hafa gengið prýðilega. Nán-
ast væri orðin hefð fyrir því að fyr-
irtæki legðu málefninu lið enda
eru margir stjórnendur í þeim sem
sjálfir hafa lagt hönd á plóg á sínum
tíma sem nemendur við skólann.
Kristín segir nemendur fá gríðar-
lega þjálfun í aga, framsögn, texta-
gerð og þátttöku í fjölmiðlun sem
eigi eftir að nýtast þeim síðar á lífs-
leiðinni.
mm
Útvarp Óðal ómaði alla síðustu viku á FM 101,3
Útsendingar Útvarps Óðals fara fram úr gamla tækjaherbergi bíósins í Borgarnesi. Hér er stór hluti stjórnar nemendafélagsins,
elstu nemendur skólans, að senda út.