Skessuhorn - 21.12.2016, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201638
Ég óska Samfylkingarfólki og öllum íbúum
Norðvesturkjördæmis gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári, með þökk fyrir stuðning
og samveru í nýliðnum alþingiskosningum.
Kær kveðja
Guðjón S. Brjánsson
alþingismaður SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Golfklúbburinn Leynir • Garðavöllur • www.leynir.is • leynir@leynir.is • s. 431-2711
Golfklúbburinn Leynir þakkar öllum félagsmönnum,
sjálfboðaliðum, starfsmönnum, velunnurum og samstarfs-
aðilum fyrir gott samstarf og stuðning á árinu.
Sendum hugheilar jóla- og nýárskveðjur
Stjórn Golfklúbbsins Leynis
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Stjórn og starfsfólk Búnaðarsamtaka
Vesturlands sendir bændum og búaliði
á starfssvæði Búnarsamtakanna
hugheilar jólakveðjur með ósk um
farsælt komandi ár.
Þökkum samstarf á árinu sem er að líða.
Líkt og sjá má á öðrum stað í
Skessuhorni vikunnar var að
venju góð þátttaka í jólamynda-
samkeppni grunnskólanema, sem
Skessuhorn heldur á ári hverju.
Hundruð mynda bárust í keppn-
ina frá börnum á aldrinum sex til
tólf ára. Á flestum myndunum má
sjá að börnin vanda sig mikið og
leggja mörg þeirra mikla vinnu í
að skila inn sem flottastri mynd.
Sumir eru þó tilbúnir að leggja
meira á sig en aðrir til að geta
tekið þátt. Ein þeirra er Ísabella
Sól, ellefu ára nemandi í Heið-
arskóla í Hvalfjarðarsveit. Hún
sendi þessa mynd inn í keppn-
ina í ár og með henni fylgdi eft-
irfarandi orðsending: „Ég heiti
Ísabella Sól og ég teiknaði þessa
mynd með vinstri út af því að ég
er handleggsbrotin á hægri, en ég
er samt rétthent.“
grþ
Tók þátt í teikni-
samkeppni þrátt
fyrir handleggsbrot
Kirkjukór Ólafsvíkur hélt árlega
jólatónleika sína á dögunum í Ólafs-
víkurkirkju. Söngskráin var fjöl-
breytt en flutt voru jólalög, sálmar
og ýmis önnur lög við góðar und-
irtektir þeirra fjölmörgu tónleika-
gesta sem mættu. Að tónleikum
loknum var gestum að venju boð-
ið upp á kaffi og konfekt í safnað-
arheimilinu. Jólatónleikar Kirkju-
kórs Ólafsvíkur eru orðnir að föst-
um punkti á aðventunni og allt-
af jafn ánæjulegt að sjá hve margir
mæta og hlusta á þennan skemmti-
lega kór undir stjórn Veronicu Os-
terhammer við undirleik Elenu
Makeeva.
þa
Vel mætt á jólatónleika Kirkjukórs Ólafsvíkur
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is