Skessuhorn - 21.12.2016, Blaðsíða 48
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201648
Fyrstu hraðahindranirnar
á Reykhólum
Seint í júnímánuði var komið fyrir tveimur umferðareyjum til
að halda niðri ökuhraða á Hellisbraut á Reykhólum. Eru þetta
fyrstu hraðahindranir sem vitað er til að settar hafi verið upp
í þorpinu. Þar er leyfilegur hámarkshraði 35 km/klst. en eftir
áskoranir frá íbúum hreppsins tók sveitarstjórn af skarið, pantaði
umferðareyjurnar og lét koma þeim fyrir.
Límtré Vírnet
landaði risasamningi
Byggingafyrirtækið Límtré Vírnet í Borgarnesi samdi við dótt-
urfyrirtæki Icelandair um að reisa nýtt flugskýli á Keflavíkurflug-
velli. Stefán Logi Haraldsson, framkvæmdastjóri Límtrés Vír-
nets, sagði í samtali við Skessuhorn að um risasamning væri að
ræða. Hann vildi þó ekki gefa upp andvirði samningsins, slíkt
væri trúnaði mál en sagði þó að þetta væri sá stærsti sem fyr-
irtækið hefði gert. „Samningar af þessari stærð hafa ekki verið
gerðir hjá félaginu áður, það er að segja einstakir samningar,“
sagði Stefán. Nýja flugskýlið verður 10.500 fermetrar að grunn-
fleti en heildarflatarmál um 13.600 fermetrar. Það verður 27
metrar á hæð og hægt á að verða að koma tveimur Boeing 757
flugvélum fyrir þar hlið við hlið. Til þess þarf hurð sem verður
90 metra breið og opnast mest um 65 metra. Áætlað er að upp-
setning hefjist um áramót.
Druslugangan gengin
í Stykkishólmi
Fyrsta Druslugangan sem far-
in er á Vesturlandi svo vitað sé
var gengin í Stykkishólmi síðla
júlímánaðar. Var það Alma
Mjöll Viðarsdóttir sem leiddi
gönguna. Markmið Druslu-
göngunnar er að færa ábyrgð
kynferðisglæpa frá þolendum
yfir á gerendur og undirstrika
og minna á að þolendur þess-
ara glæpa eiga hvorki sökina
né skömmina.
Selfí gaffallinn er íslenskt hugvit
Flestir snjallsímaeigendur þekkja fyrirbærið selfístöng, eða sel-
fie-stick, eins og það nefnist upp á engilsaxneskuna. Við þann-
ig stöng er hægt að festa síma, beina henni svo frá sér og taka
mynd. Þannig er hægt að ná mynd af ágætis hópi eða bara sjálf-
um sér sem ber þess ekki endilega merki að sá sem myndin er af
hafi tekið hana sjálfur. Löngum hefur þótt til siðs hérlendis að
láta sjást í stöngina á slíkum myndum, svona til að láta vita af því
að viðkomandi eigi selfístöng. Slíkt tíðkast hins vegar ekki með-
al siðaðri þjóða. En hvað um það. Ekki eiga allir selfístöng en
menn deyja ekki ráðalausir. Blaðamaður Skessuhorns sótti bygg-
ðahátíðina Reykhóladaga heim á liðnu sumri og rakst þar á Jó-
hann Vívil Magnússon frá Seljanesi. Hann á ekki selfístöng en
hafði smíðað sér hinn forláta selfígaffal, fest símann á hefðbund-
inn heygaffal með plastfilmu, tímastillt myndavélina og smellti
myndum af sjálfum sér með prýðilegum árangri.
Þröstur minn góður
Heimilisfólkið á Ferjubakka IV í Borgarhreppi varð í sumar vart
við þröst sem gert hafði sig heimakominn á bænum. Var vel lát-
ið af gesti og sett upp hús fyrir hann á stað þar sem hann fær frið
fyrir köttunum á svæðinu. Heimasætan Sunna Kristín gaf þrest-
inum nafnið Þröstur Leó. Hugsaði hún um fuglinn í sumar, kíkti
reglulega til hans og gaf honum vatn og mat. Hændi hún fugl-
inn svo að sér að yfirleitt kom hann til hennar, settist hjá henni
eða á hana.
Byrjað að reisa við Asparskóga
Hafist var handa við að reisa íbúðablokk við Asparskóga 27 á
Akranesi snemma í ágústmánuði, en það er fyrsta fjölbýlishúsið af
þremur sem fyrirtækið Uppbygging ehf, í eigu Engilberts Run-
ólfssonar, mun reisa við Asparskóga. Í húsunum verða þriggja og
fjögurra herbergja íbúðir, 100-125 fermetrar að stærð og verða
seldar fullbúnar með gólfefnum. Framkvæmdin er ein stærsta
einstaka framkvæmd í íbúðabyggingum á Akranesi frá hruni, en
áætlað er að hún komi til með að kosta 700 milljónir króna.
Frumleg sendibréfsáritun
vakti heimsathygli
Mest lesna frétt Skessuhorns á vefnum á árinu 2016 fjallaði um
sendibréf sem Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld bóndi á Hól-
um í Hvammssveit fékk í vor. Henni barst umslag með ein-
hverri frumlegustu áletrun sem nokkurn tímann hefur verið rit-
uð utan á bréf. Nokkrir erlendir ferðamenn sem höfðu átt við-
dvöl í sveitinni á Hólum gerðu tilraun til að senda Rebeccu og
fjölskyldu póstkort án heimilisfangs. Á umslagið var þó ritað að
staðsetningin væri á Íslandi og við Búðardal. Svo var teiknað upp
kort og staðsetning bæjarins merkt inn á kortið og lítill texti lát-
inn fylgja sem gaf þær upplýsingar að danska konan, viðtakand-
inn, ynni í verslun í Búðardal. Umslagið var póstlagt í Reykja-
vík en erlendu ferðamennirnir voru ekki alveg vissir um að það
myndi skila sér en höfðu þó á orði að þessi áletrun á umslaginu
yrði þá til að sanna að Ísland væri svalasta land á jarðríkinu og
að allt væri mögulegt á Íslandi. Og þar með er það staðfest, allt
er mögulegt á Íslandi, að minnsta kosti að koma póstkortum til
skila með handteiknuðu staðsetningarkorti, samanber meðfylgj-
andi mynd. Vakti frétt Skessuhorns um bréfsendinguna frum-
legu heimsathygli og fjallað var um málið á fréttastofum í fjöl-
mörgum löndum.
Vakinn upp af Pokemon þjálfara
Símaleikurinn Pokémon Go tröll-
reið heimsbyggðinni framan af
síðasta ári og nýtur enn fáheyrðra
vinsælda meðal yngri kynslóðanna.
Hann gengur út á það að spilar-
ar veiða Pokémona sem leynast
út um hvippinn og hvappinn, en
til þess þurfa þeir að fara á stúfana
úti í hinum raunverulega heimi og
veiða þá þegar þeir birtast á skján-
um. Eitt skiptið í júlímánuði gerð-
ist það á Akranesi að íbúi í Jörund-
arholti var vakinn upp af værum
blundi eftir næturvakt þegar bar-
ið var að dyrum seint um morgun.
Fór hann til dyra og mætti þar tólf
ára dreng sem hann kannaðist ekki við. Drengurinn bað hins
vegar um að fá að komast inn vegna þess að í húsinu ætti að leyn-
ast Pokémon. Jú, íbúinn hleypti drengnum inn og þrammaði
hann um húsið uns Pokémoninn fannst inni á baðherbergi. Þar
náði drengurinn að fanga skrímsli og yfirgaf því húsið skömmu
síðar. Á leiðinni út spurði íbúinn drenginn hvort um sjaldgæf-
an eða góðan Pokémon væri að ræða. Svaraði drengurinn því
til að svo væri alls ekki. Meðfylgjandi er skjáskot af símaleiknum
Pokémon Go, en það var tekið þegar reynt var að handsama einn
Pokémon af tegundinni Nidoran sem hafði gert sig heimkominn
á kaffistofu Skessuhorns.
Víða slegið þrisvar
Bændur á Vesturlandi gátu
lítið kvartað yfir veðri til
heyskapar á sumrinu sem
leið. Víðast hvar náðust af-
burða góð hey í plast eða
undir dúk, tilbúin til gjafar í
vetur. Nokkuð víða um vest-
anvert landið tóku bændur
sig til í lok ágústmánaðar og
alveg fram í október og hófu þriðja slátt, en fremur fátítt er að
tíðin sé svo góð að hægt sé að slá þrisvar sama sumarið.
Afurðaverðsmálið
hjá sauðfjárbændum
Allir helstu sláturleyfishaf-
ar landsins lækkuðu verð frá
fyrra ári þegar þeir gáfu út
verðskrár sínar fyrir slátur-
tíð haustsins. Verð til sauð-
fjárbænda á dilkakjöti lækk-
aði um 5-10% og þurftu þeir
að auki að mæta allt að 40%
verðlækkun fyrir ærkjöt.
Ástæður þær sem sláturleyf-
ishafar gáfu fyrir lækkuninni
voru einkum sagðar óhagstæðar aðstæður í útflutningi, styrking
krónunnar, að lækkun hafi orðið á mörkunum og hrun á mörk-
uðum fyrir hliðarafurðir. Eðlilega var afar þungt hljóð í bændum
vegna þessarar ákvörðunar sláturleyfishafa og boðuðu þrjú félög
sauðfjárbænda á Vesturlandi meðal annars til fundar í Þinghamri
í Borgarfirði vegna málsins. Segir það sitt um hve alvarlega þeir
litu málið að yfir hundrað manns mættu á fundinn þrátt fyrir
að boðað hafi verið til hans í þann mund sem göngur og réttir
voru víðast handan við hornið (og sums staðar hafnar). Fundur-
inn skilaði litlum árangri, hljóðið var þungt í sláturleyfishöfum
og bændum lítil von gefin. Áhrif verðlækkana til bænda á slátur-
tíð haustsins eiga enn eftir að koma endanlega í ljós.
Jötunstál brann öðru sinni
Altjón varð í byrjun ágústmánaðar þegar eldur kom upp í hús-
næði Vélsmiðjunnar Jötunstáls á Akranesi. Talið er að eldur-
inn hafi kviknað í bíl sem þar var innandyra og síðan breiðst
út. Þegar starfsmenn komu til vinnu að morgni mætti þeim
mikill reykur og var allur tiltækur mannskapur Slökkviliðs
Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallaður til. Mikill eldur var
í húsinu og vitað um gaskúta sem sprengihætta var af. Mið-
að við aðstæður gekk slökkvistarf þó vel og hægt var að koma
í veg fyrir að eldur breiddist í veiðarfærageymslu í suður-
enda hússins. Húsnæði Jötunstáls er hins vegar illa farið og
öll verkfæri sem innandyra voru eyðilögðust. Var þetta í ann-
að skiptið á innan við tveimur árum sem bruni verður í fyrir-
tækinu og var starfsmönnum og eiganda fyrirtækisins eðlilega
mikið brugðið. Uppbygging hófst þó innan tíðar og starfsem-
in komin á fullt á nýjan leik.
Vel merktur réttarstjóri
og kona hans
Skessuhorn var að sjálfsögðu á faraldsfæti þegar bændur sóttu fé
af fjalli og fóru í réttir víða um Vesturland vopnaðir myndavél-
um. Í Kinnarstaðarétt í Þorskafirði í Reykhólahreppi rakst ljós-
myndari á réttarstjórann Guðmund Ólafsson á Grund, þar sem
hann stjórnaði gangi mála vopnaður gjallarhorni og merktur í
bak og fyrir. Eiginkona Guðmundar, Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir
Fréttaannáll ársins 2016 í máli og myndum
Framhald á næstu opnu