Skessuhorn - 21.12.2016, Qupperneq 56
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201656
Hún er sveitakona af lífi og sál.
Hún býr í Ausu í Andakíl þar sem
hún sinnir sínum hobbýbúskap,
starfar á Hvanneyri og tekur virkan
þátt í ýmsu félagsstarfi í sínu hér-
aði. Ragnhildur Helga Jónsdóttir er
brautarstjóri náttúru- og umhverf-
isbrautar Landbúnaðarháskóla Ís-
lands og kennir bæði við háskóla-
og bændadeild skólans. Hún ber
mikla virðingu fyrir umhverfinu og
er sérhæfð í umhverfisstjórnun fyr-
irtækja. Hún þekkir umhverfi sitt
vel og vann til að mynda ásamt öðr-
um að örnefnaskráningu sem Félag
aldraðra í Borgarfjarðardölum af-
henti Landmælingum Íslands fyrir
allar jarðir á félagssvæðinu. Ragn-
hildur Helga er fædd og uppalin
í Ausu í Andakíl og býr þar ásamt
Auði Pétursdóttur móður sinni.
Faðir Ragnhildar var fæddur í Ausu
og hefur ætt hennar búið á bænum
í rúma öld. „Þarna eru ræturnar. Ég
er sveitamanneskja í húð og hár og
er stolt af því,“ segir Ragnhildur
við Skessuhorn. Hún segir það þó
aldrei hafa staðið til að verða bóndi
í fullu starfi og er ánægð með sín-
ar 90 kindur, en umönnun þeirra er
eitt af fjölmörgum áhugamálum.
Ást og virðing fyrir
umhverfinu
„Það hefur alltaf brunnið á mér
virðing fyrir umhverfinu og það
hef ég lært sérstaklega í gegn-
um mömmu,“ segir Ragnhildur.
Hún lauk stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi og næst lá leiðin í landfræði
við Háskóla Íslands. „Ég lauk því
námi fyrir 20 árum og starfaði við
kennslu í nokkur ár. En hugurinn
stefndi á að læra meira.“ Umhverf-
isfræði á meistarastigi var á mót-
unarstigi á þessum tíma og heill-
aði Ragnhildi. Hún hóf fullt nám í
umhverfisfræðinni um aldamótin.
Hún segir rótina af áhuganum fyrir
náminu vera þá ást og virðingu sem
hún ber fyrir umhverfinu. „Það var
svo margt rangt gert í þeim mál-
um. Þarna fannst mér mörg verk að
vinna og það er enn þannig í dag,“
segir hún. Ragnhildur sérhæfði sig í
umhverfisstjórnun og stjórnun fyr-
irtækja. „Mig langaði að geta haft
áhrif á ýmsum sviðum og valdi því
þessa leið. Eftir að náminu lauk
fékk ég vinnu hjá umhverfisráð-
gjafafyrirtækinu UMÍS ehf. í Borg-
arnesi. Þar unnum við mikið fyrir
sveitarfélögin og tókum að okkur
ýmis verkefni.“
Safnið hefur
ýmis tækifæri
Eftir hrun bankanna á Íslandi varð
samdráttur hjá fyrirtækinu og verk-
efnum fækkaði. Ragnhildur starf-
aði hjá UMÍS til ársins 2009. „Ég
hef alltaf litið þannig á hlutina að
þegar einar dyr lokast, þá opn-
ast aðrar. Ég hafði sinnt stunda-
kennslu í LbhÍ með þessu starfi
og eftir þetta fjölgaði áföngunum
sem ég kenndi.“ Við skólann kenn-
ir Ragnhildur sögu landnýtingar og
umhverfisfræði, ásamt því að vera
brautarstjóri náttúru- og umhverf-
isbrautar. „Mér finnst þetta mjög
spennandi kennsluefni. Í umhverf-
isfræðinni er til dæmis hægt að
nýta nýjustu fréttir sem kennslu-
efni. Umhverfið er heitt umræðu-
efni og það er margt í ólagi í heim-
inum í þessum málum í dag. En það
er líka margt skemmtilegt að ger-
ast,“ segir hún. Þá hefur Ragnhild-
ur einnig leyst Bjarna Guðmunds-
son af í hópamóttökum við Land-
búnaðarsafn Íslands. „Ég byrjaði í
afleysingum þar af einhverri alvöru
í fyrra. Síðasta vetur kom það inn
sem hluti af starfi mínu og vægið
eykst svo núna um áramótin þeg-
ar ég tek við stjórnun safnsins,“
útskýrir Ragnhildur. „Á ákveðn-
um tíma árs er þetta mikil vinna. Á
þessu ári hafa til dæmis komið sex-
tíu hópar sem allir hafa fengið mót-
töku, leiðsögn og fræðslu. Það er
fyrir utan lausatraffíkina.“ Fram-
undan er að fara í markaðssókn fyr-
ir safnið og að móta framtíðarsýn
þess. „Safnið hefur ýmis tækifæri,
til dæmis gagnvart ferðamönnum.
Þarna getur fólk skoðað við hvaða
aðstæður landbúnaður hefur ver-
ið stundaður. Það er mikilvægt að
fólk skilji söguna til að geta áttað
sig á nútímanum. Þá fyrst getum
við horft til framtíðar.“
Er í ýmsu félagsstarfi
Ragnhildur Helga kemur víða við.
„Eins og margt ungt fólk sem gefur
aðeins færi á sér þegar það kemur til
baka í sína heimabyggð, hef ég ver-
ið dregin inn í alls kyns félagsstarf,“
segir hún. Hún sat áður í stjórnum
ungmennafélagsins og sauðfjár-
ræktarfélagsins. Þá hefur hún ver-
ið í stjórn veiðifélags Andakílsár
til margra ára og er í stjórn Kven-
félagsins 19. júní. Hún segir mikið
og gott starf unnið í kvenfélaginu.
„Við höfum tvöfaldað félagafjöld-
ann á síðustu árum og erum nú um
50 konur á öllum aldri. Félagið er
mjög virkt og við höfum verið öfl-
ugar í að styrkja ýmis málefni.“
Hið árlega jólabingó kvenfélags-
ins var haldið í upphafi aðventu og
segir Ragnhildur það einmitt hafa
heppnast sérlega vel. „Það hafa
aldrei fleiri mætt. Það hefur sjálf-
sagt spurst út að þarna væru flott-
ir vinningar og góð skemmtun. Það
hjálpaði líka til að núna vorum við
að styrkja ákveðið málefni sem aðr-
ir vildu leggja lið.“ Henni þykja
félagsmálin mikilvæg fyrir samfé-
lagið. „Ef maður vill að það sé líf í
samfélaginu, þá verður maður sjálf-
ur að taka þátt. Að ganga í hlutina
og stuðla að góðum verkum, hvort
sem það er hjá veiðifélagi eða kven-
félagi.“
Veiðivörður á sumrin
Ásamt ofangreindum störfum hef-
ur Ragnhildur Helga starfað sem
veiðivörður í Hvítá síðustu sum-
ur. Hún segist hafa tekið starfið að
sér eftir að fyrrverandi veiðivörð-
ur lét að störfum. „Það var leit-
að að nýjum veiðiverði sem væri
staðsettur miðsvæðis í héraðinu.
Ég tók þetta að mér, þetta er bara
lítið hlutastarf yfir sumarmánuð-
ina.“ Hluti af starfinu er að fara í
veiðieftirlitsflug nokkrum sinnum
á sumri. „Það er Snorri Kristleifs-
son á Sturlu-Reykjum sem flýg-
ur vélinni. Við fylgjumst einnig
með veiði í sjó í þessum ferðum
og fljúgum meðfram Mýrum, suð-
ur í Hvalfjörð og stundum Kolla-
fjörð.“ Ragnhildur tekur mynda-
vélina með í flugferðirnar og hef-
ur náð skemmtilegum myndum úr
lofti. Hún segir að myndavélin sé
með í för í tvennum tilgangi. „Ef
það næst á mynd er auðveldara að
sanna ef einhver er að brjóta af sér.
En annars er ég aðallega að nota
tækifærið til að ná sjónarhorni sem
maður nær ekki á jörðu niðri.“
Fjárhúsin góð þerapía
Áhugamálin eru fleiri en félagsstörf-
in. Kórstarf er Ragnhildi ofarlega í
huga en hún er meðlimur í Reyk-
holtskórnum. „Ég byrjaði í kirkju-
kór Hvanneyrar fyrir 20 árum, um
það leyti sem ég kom til baka úr
háskólanámi. Sá kór sameinaðist
seinna kórnum úr Reykholti og hef-
ur starfað síðan undir heiti hans.“
Hún segir félagsskapinn í bland
við sönginn vera það mikilvægasta
við kórstarfið. „Það sem gerir þetta
sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur
er að við höfum frábæran stjórn-
anda, Viðar Guðmundsson, sem er
ungur og hæfileikaríkur maður sem
gefur mikið af sér og leyfir okkur
hinum að njóta með sér.“ Mæðg-
urnar í Ausu eiga líka sameigin-
leg áhugamál. „Það er mikil rækt-
„Ef maður vill að það sé líf í
samfélaginu, þá verður maður
sjálfur að taka þátt“
-segir Ragnhildur Helga Jónsdóttir frá Ausu í Andakíl
Ragnhildur Helga Jónsdóttir er sveitamanneskja í húð og hár.
Heimahagarnir í Ausu með Skarðsheiðina í baksýn. Ragnhildur segir blómarækt gleðja augað og næra sálina. Hér hefur hún nýtt
gamlan mjólkurbrúsa og mjólkursigti undir blómin.