Skessuhorn - 21.12.2016, Qupperneq 58
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201658
Guðbjörg Rós Guðnadóttir heill-
aðist af flugi skömmu eftir stúd-
entspróf. Hún er alin upp í Tungu
í Svínadal, gekk í Heiðarskóla og
kláraði stúdentspróf úr Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi í lok
árs 2009. Í dag hefur hún flogið um
allan heim með Air Atlanta og bíð-
ur eftir að hefja störf sem flugmaður
hjá Icelandair.
„Þegar ég var í fjölbraut var ég
ekki búin að ákveða hvað ég ætlaði
að verða, en svo kynntist ég flug-
stjóra hjá Icelandair sem varð fjöl-
skylduvinur.“ Guðbjörg segir að þá
hafi áhuginn kviknað fyrir alvöru.
Hún fór ekki beint í flugnám eft-
ir stúdentspróf heldur fór að ráðum
fjölskylduvinarins og beið örlítið til
að vera alveg viss um að hún vildi
fara út í hið langa, erfiða og dýra
nám sem flugnámið er.
Guðbjörg nýtti tímann eftir stúd-
entspróf til að ferðast. „Ég fór til
Ástralíu í þrjár vikur til að heimsækja
ættingja mína. Svo kom ég heim og
tveimur mánuðum síðar fór ég sem
au pair til Lúxemborgar.“ Hún var í
Lúxemborg út árið 2010 og var allt-
af heilluð af flugvélunum sem flugu
yfir borginni. „Ég var alltaf að horfa
á CargoLux vélarnar fljúga inn og út
frá Lúxemborg alla daga.“
Ekki aftur snúið
Flugið átti hug hennar allan, líka eft-
ir að hún kom heim til Íslands. Hún
vann í smá tíma í Reykjavík en aug-
un voru oftar en ekki límd við him-
ininn. „Ég var alltaf að fylgjast með
flugumferðinni yfir Reykjavík,“ seg-
ir Guðbjörg og hlær innilega. Hún
er jákvæð, ákveðin og glaðvær ung
kona sem lætur ekkert stoppa sig.
„Ég ákvað að ég yrði allavega að
prófa að fljúga til að sjá hvort þetta
væri eitthvað sem ég vildi gera.“ Eft-
ir fyrstu kynnisferðina var ekki aft-
ur snúið.
Flugnám er mjög þungt nám og
Guðbjörg lagði sig alla fram í því.
Fyrst þarf að ná bóklegu einka-
flugmannsprófi. Guðbjörg byrjaði
á einkaflugmannsnáminu sumar-
ið 2011 og kláraði bóklega hlutann
fyrir haustið. Hún ætlaði sér svo að
klára verklega hlutann um veturinn,
en það gekk hægar en hún ætlaði sér.
„Þetta var svo snjóþungur vetur og
mikið vesen að komast í loftið svo ég
tók bara smá pásu og kláraði þetta
með rykk þarna um sumarið.“ Guð-
björg kláraði einkaflugmannsprófið
í júlí 2012 en lét ekki staðar num-
ið þá. Hún skráði sig strax í bóklegt
nám í atvinnuflugmanninum. Þá fær
hún réttindi til að fljúga stærri vél-
um.
Vinirnir fengu
flugferðir
Námið er þungt og prófin eru mörg.
Lægsta einkunn til að ná prófi er 7,5.
Fögin eru fjórtán og í hverju fagi eru
þrjú próf og að auki þarf að taka próf
í hverju fagi hjá Samgöngustofu líka.
„Þetta var mjög strembinn vetur.
Maður var alltaf vakandi fram á nótt
til að læra fyrir próf því maður var
bara einhvern veginn alltaf í próf-
um,“ segir Guðbjörg. Hún kláraði
bóklega hlutann í júní 2013. Þá tók
við tímasöfnun sem þurfti að upp-
fylla, um 150 tímar.
Það tók því við sumar þar sem
Guðbjörg flaug eins mikið og hún
mögulega gat. „Ég lét alla vini mína
vita að ég væri að safna tímum og
þeir gætu komið með ef þeir væru
til í að borga með mér í leigunni á
flugvélinni,“ segir Guðbjörg og við-
urkennir að hún hafi verið nokk-
uð vinsæl það sumarið. Fjölmarg-
ir nýttu sér tækifærið og skelltu sér í
útsýnisferð með Guðbjörgu.
Fékk frábært tækifæri
Þegar hún útskrifaðist sem atvinnu-
flugmaður réðu flugfélögin ekki
flugmenn í vinnu nema þeir væru
búnir að safna að lágmarki 500 flug-
tímum. Kröfurnar hafa lækkað í
dag, þar sem eftirspurnin eftir flug-
mönnum er mikil. Guðbjörg sá ekki
fram á að fá vinnu sem flugmaður
strax og réði sig því til vinnu á skrif-
stofu Air Atlanta. Til að fylla upp í
kröfur frá flugfélögunum náði hún
sér í réttindi sem flugkennari, til að
geta þannig safnað tímum og þénað
á sama tíma. Það er erfitt að komast
að í flugbransanum og samkeppnin
er mikil. Guðbjörg hefur hins veg-
ar allt sitt á hreinu og veit hvað hún
vill. Hún var eins og grár köttur í
flugskýlum borgarinnar og falaðist
eftir kennarastöðum. „Ég var líka í
flugklúbbnum Geirfugli og safnaði
tímum í gegnum það.“ Hún kynnt-
ist fjölmörgum flugmönnum, nýjum
og reyndum, eignaðist góða vini og
fékk oft að fara í útsýnisflug eða list-
flug með þeim. „Það er mjög gam-
an að fljúga á milli landa, en það er
bara svo gaman að fljúga minni vél-
um líka,“ segir Guðbjörg og ástríð-
an á fluginu skín greinilega í gegn.
Svo kom tækifærið sem Guðbjörg
hafði verið að bíða eftir. Henni var
boðið starf hjá Air Atlanta í því sem
kallað er „Cruise Relief First Offi-
cer“. Það er aðstoðarmaður flug-
stjóra um borð í flugvélum sem
fljúga lengur en átta klukkutíma,
eða þriðji flugmaður. Sá flugmaður
tekur hvorki á loft né lendir, held-
ur flýgur vélinni þegar hún er kom-
in í loftið.
Flaug um allan
heim á einu ári
Air Atlanta er með bækistöðvar
fyrir fjölda starfsmanna í Jeddah í
Sádí Arabíu. Guðbjörg var því send
þangað, þar sem hún flaug Boeing
747-400 vélum milli Indónesíu og
Jeddah. „Það er svo klikkað að fara
um borð í svona stóra vél. Maður
situr í um það bil tíu metra hæð, vél-
in er á tveimur hæðum og rosalega
löng, rúmir 70 metrar. Mér fannst
þetta eitthvað svo súrrealískt. Fyrir
það fyrsta að vera komin með vinnu
svona fljótt og þetta var í fyrsta
skipti sem ég fór í svona stóra flug-
vél og ég var á leiðinni til Sádí Ar-
abíu, sem ég hafði aldrei komið til
áður,“ telur Guðbjörg upp og skelli-
hlær. Hún segir það merkilega til-
finningu að sitja í stýriklefanum á
svona stórri flugvél. „Maður þarf að
vanda til verka og maður finnur til
ábyrgðar. Ég hafði alltaf í huga þeg-
ar ég settist í sætið að það væru mjög
margir um borð,“ segir Gubjörg en
flugvél af þessari stærð rúmar tæp-
lega 500 farþega.
Við tók tími mikilla ferðalaga.
Guðbjörg flakkaði um allan heim
og hefur í dag farið til næstum allra
heimsálfa. Mestan hluta af vinnu
sinni fyrir Air Atlanta flaug hún
svokölluð pílagrímaflug frá Jak-
arta í Indónesíu til Medina eða Jed-
„Heimurinn er svo lítill núna“
Rætt við flugmanninn Guðbjörgu Rós Guðnadóttur úr Hvalfjarðarsveit
Guðbjörg hefur farið um allan heim í starfi sínu með flugmaður. Flugið á hug hennar og hjarta.
Hér er Guðbjörg inni í hreyfli á Boeing 747 þotu, sem hún flaug meðal annars á
milli Jakarta í Indónesíu og Jeddah í Sádí Arabíu.
Á flugi yfir Sahara eyðimörkina á leið á milli Jeddah í Sádi Arabíu og Kano í
Nígeríu.