Skessuhorn - 21.12.2016, Qupperneq 59
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2016 59
dah í Sádi Arabíu. Þá voru farþegar
hennar indónesískir múslimar á leið
í pílagrímsferð sína til Mekka. Þá
flaug hún stundum til Nígeríu, Mar-
okkó, Alsír, Kína, Indlands, Pakist-
an, Hong Kong og New York. Við-
vera á hverjum stað fyrir sig gat ver-
ið allt frá einum degi upp í fimm.
Lítið frelsi fyrir konur
í Sádi Arabíu
Síðasta Aðfangadegi eyddi hún á
flugi yfir Indlandshafi. „Mér fannst
mjög sérstakt að vera að heiman á
jólunum. Þegar klukkan sló sex á Ís-
landi sögðum við [hún og íslenskur
flugstjóri] gleðileg jól og svo vorum
við með Nóa súkkulaði með okkur
sem við opnuðum. Þetta var mjög
spes stemning,“ segir hún hugsi.
Guðbjörg segir erfitt að vera kona
í Sádí Arabíu. Hún hafi þurft að
klæðast sérstökum fötum sem huldu
allan líkamann og ganga með slæðu
á höfðinu. „En ég var alltaf að berj-
ast aðeins fyrir kvenréttindum og
var sjaldnast með slæðuna á höfð-
inu,“ segir hún og glottir stríðn-
islega en bætir við að með því hafi
hún tekið smá áhættu. Í Sádí Arabíu
sé trúarlögregla og hún hefði getað
lent í fangelsi fyrir að fara ekki eft-
ir reglunum.
Sjálf varð Guðbjörg þreytt á höft-
unum sem fylgdu því að vera í Sádí
Arabíu. „Ég var þreytt á þessum að-
stæðum, að vera föst þarna og mega
aldrei gera neitt miðað við það sem
ég get gert hérna heima. Þetta dró
mig svolítið niður.“ Þar sem sam-
starfsfélagar hennar voru í flestum
tilvikum karlmenn gat hún lítið gert
með þeim. Karlar og konur mega
ekki stunda líkamsrækt saman, kon-
ur mega ekki fara í sund, þær mega
ekki keyra og þær mega ekki ganga
með karlmanni á götunni nema hún
sé gift honum. „Við fórum nú samt
aldrei eftir því, ég fór bara með þeim
á veitingastað ef ég vildi.“
Úr eyðimerkurhita
í frost
Air Atlanta fór að fljúga fyrir rúss-
neskt fragtflugfélag og Guðbjörg var
því send frá Jeddah til Moskvu. Til
allra heilla hafði hún búist við því að
fara til Rússlands og var með föður-
land í farangrinum því hitamismun-
urinn á milli Sádi Arabíu og Rúss-
lands var gríðarlega mikill. „Þegar
ég kom til Moskvu voru -19 gráð-
ur. Eyrun á mér urðu svo köld að
þau voru við það að detta af. Þetta
var eins og að labba inn í djúpfrysti-
klefa! Ég andaði að mér inn um nef-
ið og ég fann bara allt frjósa,“ segir
Guðbjörg en þrátt fyrir þessi óþæg-
indi heillaði Rússland hana mikið.
Hún segir að sú mynd sem Vestur-
landabúar hafi af landinu sé allt önn-
ur en raunin sé. Menningin heillaði
hana og henni þótti mikil upplifun
að sjá Rauðatorgið og mælir með því
að fólk kynni sér Rússland betur.
Guðbjörg flaug um tíma milli
Moskvu og Hong Kong með milli-
lendingu í Novosibirsk í Síberíu.
Hún náði að vafra um Hong Kong
nokkrum sinnum og nýtti í einu
stoppinu tækifærið og fór á hæsta
bar í heimi sem er á 118 hæð. „Það
er magnað útsýni, maður horfir á
Hong Kong eyju í gegnum skýin.“
Alltaf stutt til Íslands
Í einu flugi milli Jeddah og New
York flaug Guðbjörg með flug-
manni sem nýlega hafði keypt sér
hús í Hvalfjarðarsveit. „Hann er
mikill hestamaður, við spjölluðum
mikið saman á leiðinni og ég var að
segja honum frá góðum reiðleiðum í
sveitinni á meðan við flugum á milli
Jeddah og New York,“ segir Guð-
björg og hlær.
„Heima“ er á Íslandi fyrir Guð-
björgu og þótt hún segi að heimur-
inn hafi minnkað svo um munar með
þessum ferðalögum þá vill hún búa á
Íslandi í framtíðinni. „Maður missir
svolítið samband við fjölskyldu, vini
og kunningja þegar maður er í burtu
lengi,“ segir hún en bætir við að hún
hafi eignast fjöldann allan af vinum á
ferðum sínum. Hún vilji þó vera hér
og því sótti hún um starf sem flug-
maður hjá Icelandair síðasta vor.
„Ég hefði alveg viljað vinna hjá
Atlanta í nokkur ár í viðbót og fljúga
um allan heim. Mér finnst heim-
urinn svo lítill núna og það er svo
margt sem mig langar að sjá,“ segir
Guðbjörg og það glittir í ævintýra-
konuna í augum hennar. Hún vill
þó hugsa um framtíðina. „Starf hjá
Icelandair sé meira framtíðarstarf.“
Hún hefur lokið flestum námskeið-
um hjá Icelandair og sér fram á að
byrja að vinna hjá þeim næsta vor.
Jólunum ætlar hún að verja í Hval-
fjarðarsveit með fjölskyldunni, ólíkt
síðustu jólum. klj
Óskum starfsmönnum
og Vestlendingum
GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Í nístingskuldanum á Rauða Torginu í Moskvu í Rússlandi, með dómkirkju Sankti.
Basils í bakgrunni.
Í skartgripaverslun Bagabas í miðbæ Jeddah.