Skessuhorn - 21.12.2016, Blaðsíða 87
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2016 87
Ljósmyndasamkeppni Skessuhorns
meðal grunnskólanema í 8. - 10.
bekk skóla á Vesturlandi var hald-
in í fyrsta sinn nú í desember. Gátu
þátttakendur sent inn ljósmyndir í
gegnum tölvupóst eða samfélags-
miðilinn Instagram undir myllu-
merkinu #skessujól. Þema mynd-
anna var „aðventan“ og barst fjöldi
skemmtilegra mynda í keppnina.
Vinningshafi í keppninni er Unnd-
ís Ida Ingvarsdóttir, 13 ára nem-
andi í Heiðarskóla í Hvalfjarðar-
sveit, en hún sendi mynd sem hún
kallar „Aðventan í fjárhúsunum.“
Hlýtur hún að launum gjafabréf til
kaupa á GoPro myndavél. Í öðru
sæti varð mynd sem Jason Jens Ill-
ugason úr Ólafsvík sendi inn en í
því þriðja varð mynd Samúels Al-
ans Hafþórssonar frá Stykkishólmi
og fá þeir bækur í verðlaun.
Urðu eiginlega stjarfar
Unndís Ida, sigurvegari í keppn-
inni, hefur alltaf haft gaman af því
að taka ljósmyndir. „Ég var í ljós-
myndavali í skólanum og hef alltaf
haft gaman af því að taka myndir -
sérstaklega af kettinum okkar,“ seg-
ir Unndís í samtali við Skessuhorn.
Hún lagði töluverða vinnu í að ná
réttu myndinni til að senda inn í
keppnina. „Ég var búin að hugsa
alveg helling um þetta, var með
margar hugmyndir og alls kon-
ar. Svo datt mér þetta í hug og var
næstum því á síðustu stundu með
þetta.“ Unndís Ida situr sjálf fyr-
ir á myndinni en hún setti mynda-
vélina á þrífót og tímastillti hana.
Hún segist mikið hafa velt því fyrir
sér að taka myndina í fjárhúsunum
með logandi kerti en datt á endan-
um í hug að hafa kindurnar með.
„Ég hélt samt að þær myndu hlaupa
í burtu en þær voru svo hræddar að
þær voru eiginlega alveg stjarfar,“
segir hún og hlær. „Þess vegna voru
þær alveg kyrrar, það mátti heyra
að þær önduðu ansi hratt! Þetta
var pínu erfitt og það tók alveg smá
stund að ná réttu myndinni,“ segir
sigurvegarinn að endingu.
Líkt og sjá má á myndunum bár-
Úrslit í ljósmyndasam-
keppni Skessuhorns
Í 4.-10. sæti urðu eftirtaldar myndir:
1. sæti: „Aðventan í fjárhúsunum“ eftir Unndísi Idu Ingvarsdóttur Heiðarskóla. Unndís hlýtur að launum gjafabréf til
kaupa á GoPro myndavél eða sambærilegri græju að eigin vali í versluninni Módel á Akranesi.
2. sæti: Ljósmyndari: Jason Jens Illugason, Snæfellsbæ. Jason Jens hlýtur
að launum bókina „Skögla - helreið Nýráðs til Jötunheima“ eftir Þorgrím Kára
Snævarr.
ust margar flottar myndir í keppn-
ina. Hér má sjá vinningsmyndirn-
ar, ásamt þeim myndum sem urðu í
4. - 10. sæti. grþ
3. sæti: Ljósmyndari: Samúel Alan Hafþórsson, Stykkishólmi. Samúel Alan hlýtur að launum bókina „Skögla - helreið
Nýráðs til Jötunheima“ eftir Þorgrím Kára Snævarr.