Skessuhorn - 21.12.2016, Page 91
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2016 91
Um síðustu helgi
var sannkölluð jóla-
stemning í Garða-
lundi á Akranesi.
Fjörið byrjaði með
„leitinni að jóla-
sveininum“ á föstu-
dagskvöld og hélt
áfram á laugardag
þegar ilmandi jóla-
markaður var hald-
inn í fyrsta sinn í
Garðalundi. Þar var
ýmislegt á boðstól-
um, svo sem matur,
súkkulaði, hand-
verk og listmun-
ir. Pop - up kaffi-
húsi var smellt upp
í markaðstjaldinu,
eldsmiðir voru að
störfum fyrir utan
og jólasveinarn-
ir kíktu við. Veðr-
ið var ekki hagstætt
og setti það svip
sinn á þátttöku,
sem hefði mátt vera
meiri. Ljósmyndari
Skessuhorns kom
við á jólamarkað-
inum.
grþ / Ljósm. ki.
Markaðsstemning í Garðalundi
Jólaálfar og -mýs gáfu gestum og gangandi mandarínur.
Andaregg og litaður lopi var meðal þess sem hægt var að kaupa á markaðinum. Eldsmiðir voru að störfum í rigningunni í Garðalundi.
Marineraða síldin smakkaðist vel.
lítil snúin kerti. Það varð að passa
þetta alveg rosalega rosalega vel því
þetta var svo eldfimt.“ Pabbi henn-
ar Fanneyjar var húsgagnasmiður
og hann smíðaði jólatré fyrir heim-
ilið. Fanney segir að skrautið sem
var sett á jólatréð hafi verið búið til
heima, öll fjölskyldan settist nið-
ur saman og föndraði úr alls kyns
pappír. „Við bjuggum líka til poka
sem við fylltum með sælgæti, kand-
ís og súkkulaði.“ Kandísinn hafi
verið besta sælgætið sem hægt var
að fá og svo var stundum hálft epli
eða appelsína á boðstólnum. „Epl-
in voru alltaf vel pússuð og glans-
andi,“ segir Fanney. Dansað var í
kringum jólatréð með fleiri börn-
um sem komu í heimsókn en alltaf
var það undir vakandi auga fullorð-
inna til að grípa inn í ef kviknaði
í jólatrénu. Jólagjafir voru aukaat-
riði. Það var hátíðleikinn og sam-
vera fjölskyldunnar sem skipti
máli. „Ég man ekki eftir að hafa
fengið jólagjafir, maður fékk bara
eitthvað sem vantaði,“ segir Fann-
ey að lokum.
Starfsmaður á Dvalarheimilinu
kemur inn í dagstofuna og kallar
að það sé komið kaffi í matsalnum.
Skyndilega fer allt á hreyfingu og
blaðamaður skynjar að það sé tími
til kominn að halda heim og þakk-
ar fyrir spjallið.
klj
Helga Ívarsdóttir og Ólöf Sigurðardóttir.
Skemmtilegur bangsi með körfu sem Sigríður Hjartardóttir vann að. Elínborg Kristjánsdóttir saumaði út á
meðan blaðamaður spallaði við hana.
Jólatré með heimagerðu jólaskrauti.
Enn fleiri gjafavörur, föndur og hannyrðavörur.