Skessuhorn - 21.12.2016, Qupperneq 93
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2016 93
ÓSKUM STARFSMÖNNUM OG LANDSMÖNNUM ÖLLUM
GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI
Runólfur Hallfreðsson ehf.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
honum að taka myndir. „Ég mút-
aði honum þannig til að kenna mér.
Það var auðfengið,“ segir Sigurjón
og hlær. „Þeir komu þrír saman, þar
á meðal pabbi hans og voru allir í
fuglaljósmyndun. Ég var góðfúslega
tekinn inn í hópinn sem gekk und-
ir nafninu S-hópurinn, enda áttum
við allir upphafsstafinn S í nöfnum
okkar. Þarna fer boltinn að rúlla og
hann hefur ekki stoppað síðan,“ út-
skýrir Sigurjón.
Las bæklinginn um jólin
Vélin sem Sigurjón notar er af gerð-
inni Nikon. Hann byrjaði með Ca-
non vél þegar hann hóf að mynda
á nýjan leik en segir þann framleið-
anda ekki hafa boðið upp á nógu góð-
ar vélar til náttúrulífsljósmyndunar.
„Það hefur ekki verið nægilega gott
fókuskerfi hjá þeim og ekki eins góð
tækni til að eiga möguleika á að taka
myndir við dimmari aðstæður.“ Til
að byrja með notaði hann 300 mm
linsu en komst fljótt að því að það var
ekki nægur aðdráttur í henni til að
geta myndað fugla. Í dag notar hann
linsu sem heitir Nikon 500 mm f4.
Sigurjón er sjálflærður í ljósmyndun-
inni og hefur ekki farið á nein nám-
skeið í faginu. „Nema hjá Sindra, eft-
ir að ég mútaði honum með smyrlin-
um.“ Hann segist þó hafa lesið bækl-
inginn sem fylgdi með myndavél-
inni og hafa lært töluvert af því. „Ég
fékk vélina rétt fyrir jól, þegar mesta
skammdegið er og minnsta fuglalífið.
Ég las bæklinginn á meðan aðrir voru
að lesa jólabækurnar. Ég hef líka lært
ýmislegt af því að fylgjast með fugl-
unum.“
Tímafrekt áhugamál
Sjálfur er Sigurjón alinn upp í Hafn-
arfirði en er búsettur á Hvanneyri í
dag. Hann ferðast töluvert um landið
vegna vinnu sinnar hjá Landgræðslu
ríkisins. „Myndavélin er alltaf með í
för. Á sumrin nota ég tækifærið og fer
að mynda eftir vinnu.“ Sigurjón er
því ýmist einn á ferð að taka mynd-
ir eða með S-hópnum. Hann lýsir því
þannig að þegar hann kemur á stað-
inn fari hann ekki strax að mynda.
„Maður byrjar á því að fylgjast með
fuglinum og sjá mynstrið hjá honum.
Svo þarf að setja sig niður og bíða.
Einstaka sinnum spilum við hljóð úr
símunum okkar.“ Aðspurður um eft-
irlætisstaði segist hann hafa gaman af
því að mynda á Mýrunum í kvöldsól-
inni. Þá er Mývatn ofarlega á lista yfir
eftirlætisljósmyndastaði hans. „Þar
er mikil náttúrufegurð og mikill fjöl-
breytileiki af tegundum. Þar finnur
maður allar andategundir, mófugla
og vaðfugla. Svo er líka gaman að fara
í Látrabjarg,“ útskýrir hann. Áhuga-
málið er árstíðabundið en Sigurjón
viðurkennir að það sé tímafrekt. „Það
getur farið dágóður tími í þetta,“ segir
hann. „Það fannst til dæmis glitbrúsi
norður í Fljótum í sumar. Þetta er
fugl sem var að finnast í fyrsta sinn
hér á landi og ég ákvað að nýta sum-
arfrísdaga til að keyra norður til að
ná myndum af honum. Það fóru
fjórir dagar í að ná myndum af þess-
um eina fugli, þannig að það geta al-
veg farið nokkrir dagar í þetta,“ bæt-
ir hann við. Þrátt fyrir tímann sem
fer í ljósmyndunina nýtur Sigurjón
Fallegur refur á vappi fyrir framan ljósmyndarann.
Falleg mynd af Borgarnesi.
Framhald á næstu síðu