Skessuhorn - 21.12.2016, Blaðsíða 94
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 201694
áhugamálsins út í ystu æsar. „Þetta
er að einhverju leyti eins og hug-
leiðsla. Að vera úti í náttúrunni og
njóta augnabliksins. Maður horfir
ekki stöðugt í myndavélina.“
Ránfuglar heilla mest
Sigurjón hefur gaman af því að
mynda alla fugla en sérstaklega
skemmtilegt þykir honum að kom-
ast í tæri við ránfugla, svo sem fálka
og smyril. „Svo eru alltaf einhverjir
flækingsfuglar sem berast til lands-
ins. Ef það kemur góð lægð úr vestri
eða austri, þá fara alltaf nokkrir
nördar af stað og leita,“ segir hann.
Hann hefur sjálfur myndað um 160
tegundir en er hógvær með þann
fjölda og segir aðra ljósmyndara hafa
myndað mun fleiri. Á Íslandi eru um
75 fuglategundir en séðar tegundir
á landinu eru að nálgast 400. Hann
hefur því myndað næstum helming
séðra fuglategunda á landinu.
Þó að fuglar séu eftirlætismynd-
efnið, þá er myndavélin einnig tek-
in upp við önnur tækifæri. Sigurjón
myndar einnig norðurljósin, hefur
farið á Hornstrandir að mynda refi
og hefur meðal annars tekið myndir
fyrir hrútaskrána, ásamt fleiri verk-
efnum. „Borgarbyggð bað mig að
skrásetja líf og störf refaskyttna með
ljósmyndun. Það er í eina skiptið
sem ég hef myndað mannfólk í svona
verkefni,“ útskýrir hann. Þær mynd-
ir voru sýndar á ljósmyndasýningu
í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgar-
fjarðar. Að öðru leyti hefur Sigurjón
ekki haldið sýningu á myndum sín-
um, fyrir utan þátttöku í samsýningu
á vegum Fuglaverndar sem haldin
var í Ráðhúsi Reykjavikur til minn-
ingar um Hjálmar S. Bárðarson.
Myndir hans má hins vegar finna
á samfélagsmiðlum. „Ég birti þær
bæði á Facebook og á Flickr og fólk
er aðeins farið að kaupa þær. Sumar
þeirra hafa til dæmis verið prentaðar
á púða,“ segir Sigurjón að lokum.
grþ
Sigurjón hefur farið á Hornstrandir og myndað refi.
Kúhegri er mjög sjaldgæfur og sást í Ölfusi þar sem hann var í félagsskap hrossa.
Einu þótti hann forvitnilegur og vildi smakka á honum.
Borgarfjörður séður frá Seleyri.
Skarðsheiði og Hvalfjörður í vetrarbúningi.
Þessi mynd er tekin rétt fyrir utan Hvanneyri.