Skessuhorn


Skessuhorn - 21.12.2016, Side 100

Skessuhorn - 21.12.2016, Side 100
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2016100 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Flest, ef ekki öll viljum við bætt- ar samgöngur og víða er mikilla úrbóta þörf, hvort sem það er á hringveginum eða annars staðar. Í Norðvesturkjördæmi hefur mik- ið ákall verið um bættar vegasam- göngur á Vestfjörðum enda löngu kominn tími til. Flestir ef ekki allir þingmenn kjördæmisins hafa stað- ið saman í þeirri baráttu að bregð- ast við því ákalli. Nú loksins glittir í að verulegar samgönguumbætur á Vestfjörðum verði að veruleika. Hins vegar er mikið ákall um bætt- ar samgöngur af landinu öllu og get ég vel skilið það. Vesturlandsvegur hefur þó ekki mikið verið í umræðunni en það er þó nauðsynlegt að tryggja að mik- ilvægar vegaumbætur um veginn, fari af stað ekki síðar en 2018. Gert er ráð fyrir þeim framkvæmdum í samgönguáætlun sem innanríkis- ráðherra lagði fram á Alþingi og samþykkt var fyrir nokkrum vikum. Þar er gert ráð fyrir því að hefja undirbúning við 2 + 1 veg á Kjal- arnesi. Nýlegar tölur sýna að dag hvern fara um 6000 bílar um Kjalarnes- ið. Stór hluti þeirra sem fara um veginn er fólk sem fer daglega til og frá vinnu og býr í sveitarfélög- unum norðan meginn ganganna. Margir þessara aðila hafa verulegar áhyggjur af stöðunni og umferðar- öryggi þeirra sem fara þennan veg. Nú er það svo að það eru komn- ar mjög djúpar rásir í veginn og í miklu vatnsveðri, eins og hefur ver- ið núna í haust og vetur þá eru þess- ar rásir mjög varasamar. Þeir sem fara um veginn í þessu veðri verða helst að keyra úti í vegakanti til að hafa almennilega stjórn á bílnum. Einnig er það svo að á of stórum köflum vegarins vantar merking- ar og jafnframt er leiðin mjög dimm. Skyggnið getur verið erfitt og það liggur oft við slysum í þeim umferðarþunga sem er þarna dag hvern. Mikilvægt er að bregðast við þessu hið fyrsta og minni ég á þing- mál þessa efnis sem ég lagði fram á síðasta þingi. Það þingmál verð- ur lagt fram nokkuð endurbætt á næstu dögum. Þingmálið er hér: http://www.althingi.is/altext/145/ s/0355.html Þessi grein er byggð á ræðu minni í Störfum þingsins þann 13. desember. Elsa Lára Arnardóttir Höf. er þingmaður Framsóknar- flokksins í NV kjördæmi. Varasamur Vesturlandsvegur Pennagrein Pennagrein Ég tilnefni Heilbrigðisstofnun Vesturlands, ásamt fólkinu sem þar vinnur, stofnun ársins! Alltof mik- ið hefur heilbrigðiskerfið verið tal- að niður í fréttum síðasta árið, sem er sorglegt. Auðvitað má finna frá- vik þar sem mannleg mistök verða og ekki eru allir alltaf ánægðir, ekki síst þar sem niðurskurður hefur átt sér stað. En þrátt fyrir allt er fólk í flestum tilfellum ánægt. Við ein- blínum oft of mikið á það sem illa fer og gleymum þessu góða. Nú í haust fæddi ég barn á fæð- ingadeildinni hér á Akranesi og get ég ekki annað en hrósað þeim fæðingalæknum, ljósmæðrum og sjúkraliðum sem ég og maður- inn minn höfum haft samskipti við, bæði á meðgöngu og í fæð- ingu barns okkar. Þar á eftir kom heimaþjónustan sem var ómetan- leg, síðan ungbarnaeftirlitið þar sem barninu er fylgt eftir und- ir eftirliti þangað til það verður stálpað. Í samskiptum mínum við starfs- fólk upplifði ég yndislega fram- komu fólks sem er fagfólk fram í fingurgóma. Það var svo nat- ið og alltaf passað vel upp á allt. Við fengum þjónustu sem var óað- finnanleg í alla staði og aðstaðan var til fyrirmyndar. Kjararáð ætti að semja um laun fyrir þetta fólk því það vinnur svo sannarlega fyrir kaupinu sínu og gefur mikið af sér. Er slíkt oft vanþakkað. Ekki er furða að konur flykk- ist á Skagann til að fæða börn sín og komast færri að en vilja. Að fá þessa þjónustu er ómetanlegt og það tel ég til vitnis um að ég búi í velferðarþjóðfélagi, því víða í heiminum er svona þjón- usta einfaldlega ekki til staðar. Auðvitað er sorglegt að skorið hafi verið niður víða á landsbyggð- inni og á mörgum stöðum svo gott sem búið að leggja niður fæðinga- þjónustu. Ég vona að ráðin verði bót í máli, en á Akranesi er þessi þjónusta til staðar og gott betur en það. Því vil ég segja að þar sé veitt toppþjónusta. Um leið vil ég þakka fyrir mig og mína. Helga K Haug Jónsdóttir Stofnun og starfsfólk ársins Foreldrafélögin á sunnanverðu Snæfellsnesi héldu í samvinnu við Sagnaseið og Svæðisgarðinn á Snæfellsnesi, Rökkurró í Hofs- staðaskógi 11. desember síðast- liðinn. Boðið var upp á kaffi, heitt kakó og piparkökur. Farið var í skemmtilega leiki, sungið og dans- að. Að sjálfsögðu mætti Stekkja- staur, dansaði og söng nokkur lög með krökkunum, en að endingu fengu svo allir krakkarnir manda- rínur hjá honum. iss Rökkurró í Hofsstaðaskógi www.skessuhorn.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.