Skessuhorn - 21.12.2016, Blaðsíða 100
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2016100
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Flest, ef ekki öll viljum við bætt-
ar samgöngur og víða er mikilla
úrbóta þörf, hvort sem það er á
hringveginum eða annars staðar. Í
Norðvesturkjördæmi hefur mik-
ið ákall verið um bættar vegasam-
göngur á Vestfjörðum enda löngu
kominn tími til. Flestir ef ekki allir
þingmenn kjördæmisins hafa stað-
ið saman í þeirri baráttu að bregð-
ast við því ákalli. Nú loksins glittir
í að verulegar samgönguumbætur
á Vestfjörðum verði að veruleika.
Hins vegar er mikið ákall um bætt-
ar samgöngur af landinu öllu og get
ég vel skilið það.
Vesturlandsvegur hefur þó ekki
mikið verið í umræðunni en það er
þó nauðsynlegt að tryggja að mik-
ilvægar vegaumbætur um veginn,
fari af stað ekki síðar en 2018. Gert
er ráð fyrir þeim framkvæmdum í
samgönguáætlun sem innanríkis-
ráðherra lagði fram á Alþingi og
samþykkt var fyrir nokkrum vikum.
Þar er gert ráð fyrir því að hefja
undirbúning við 2 + 1 veg á Kjal-
arnesi.
Nýlegar tölur sýna að dag hvern
fara um 6000 bílar um Kjalarnes-
ið. Stór hluti þeirra sem fara um
veginn er fólk sem fer daglega til
og frá vinnu og býr í sveitarfélög-
unum norðan meginn ganganna.
Margir þessara aðila hafa verulegar
áhyggjur af stöðunni og umferðar-
öryggi þeirra sem fara þennan veg.
Nú er það svo að það eru komn-
ar mjög djúpar rásir í veginn og í
miklu vatnsveðri, eins og hefur ver-
ið núna í haust og vetur þá eru þess-
ar rásir mjög varasamar. Þeir sem
fara um veginn í þessu veðri verða
helst að keyra úti í vegakanti til að
hafa almennilega stjórn á bílnum.
Einnig er það svo að á of stórum
köflum vegarins
vantar merking-
ar og jafnframt
er leiðin mjög
dimm. Skyggnið getur verið erfitt
og það liggur oft við slysum í þeim
umferðarþunga sem er þarna dag
hvern.
Mikilvægt er að bregðast við
þessu hið fyrsta og minni ég á þing-
mál þessa efnis sem ég lagði fram
á síðasta þingi. Það þingmál verð-
ur lagt fram nokkuð endurbætt á
næstu dögum. Þingmálið er hér:
http://www.althingi.is/altext/145/
s/0355.html
Þessi grein er byggð á ræðu
minni í Störfum þingsins þann 13.
desember.
Elsa Lára Arnardóttir
Höf. er þingmaður Framsóknar-
flokksins í NV kjördæmi.
Varasamur Vesturlandsvegur
Pennagrein
Pennagrein
Ég tilnefni Heilbrigðisstofnun
Vesturlands, ásamt fólkinu sem þar
vinnur, stofnun ársins! Alltof mik-
ið hefur heilbrigðiskerfið verið tal-
að niður í fréttum síðasta árið, sem
er sorglegt. Auðvitað má finna frá-
vik þar sem mannleg mistök verða
og ekki eru allir alltaf ánægðir, ekki
síst þar sem niðurskurður hefur átt
sér stað. En þrátt fyrir allt er fólk
í flestum tilfellum ánægt. Við ein-
blínum oft of mikið á það sem illa
fer og gleymum þessu góða.
Nú í haust fæddi ég barn á fæð-
ingadeildinni hér á Akranesi og
get ég ekki annað en hrósað þeim
fæðingalæknum, ljósmæðrum og
sjúkraliðum sem ég og maður-
inn minn höfum haft samskipti
við, bæði á meðgöngu og í fæð-
ingu barns okkar. Þar á eftir kom
heimaþjónustan sem var ómetan-
leg, síðan ungbarnaeftirlitið þar
sem barninu er fylgt eftir und-
ir eftirliti þangað til það verður
stálpað.
Í samskiptum mínum við starfs-
fólk upplifði ég yndislega fram-
komu fólks sem er fagfólk fram
í fingurgóma. Það var svo nat-
ið og alltaf passað vel upp á allt.
Við fengum þjónustu sem var óað-
finnanleg í alla staði og aðstaðan
var til fyrirmyndar. Kjararáð ætti
að semja um laun fyrir þetta fólk
því það vinnur svo sannarlega fyrir
kaupinu sínu og gefur mikið af sér.
Er slíkt oft vanþakkað.
Ekki er furða að konur flykk-
ist á Skagann til að fæða börn sín
og komast færri
að en vilja. Að fá
þessa þjónustu er
ómetanlegt og það tel ég til vitnis
um að ég búi í velferðarþjóðfélagi,
því víða í heiminum er svona þjón-
usta einfaldlega ekki til staðar.
Auðvitað er sorglegt að skorið
hafi verið niður víða á landsbyggð-
inni og á mörgum stöðum svo gott
sem búið að leggja niður fæðinga-
þjónustu. Ég vona að ráðin verði
bót í máli, en á Akranesi er þessi
þjónusta til staðar og gott betur en
það. Því vil ég segja að þar sé veitt
toppþjónusta. Um leið vil ég þakka
fyrir mig og mína.
Helga K Haug Jónsdóttir
Stofnun og starfsfólk ársins
Foreldrafélögin á sunnanverðu
Snæfellsnesi héldu í samvinnu
við Sagnaseið og Svæðisgarðinn
á Snæfellsnesi, Rökkurró í Hofs-
staðaskógi 11. desember síðast-
liðinn. Boðið var upp á kaffi, heitt
kakó og piparkökur. Farið var í
skemmtilega leiki, sungið og dans-
að. Að sjálfsögðu mætti Stekkja-
staur, dansaði og söng nokkur lög
með krökkunum, en að endingu
fengu svo allir krakkarnir manda-
rínur hjá honum.
iss
Rökkurró í
Hofsstaðaskógi
www.skessuhorn.is