Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 41. tbl. 20. árg. 11. október 2017 - kr. 750 í lausasölu
Loratadin
LYFIS
- fæst án lyfseðils
Besta bankaappið
á Íslandi
Samkvæmt könnun MMR
Til alþingismanna
Tökum upp
US Dollar
Pétur Geirsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
14. október kl. 20:00
frumsýning uppselt
15. október kl. 16:00
20. október kl. 20:00
Fleiri dagsetningar má finna á landnam.is
Miðapantanir:
landnam@landnam.is
sími 437-1600
Minnum á hádegishlaðborðið
okkar alla daga vikunnar.
Auður djúpúðga
sagan öll
á Sögulofti Landnámsseturs í
flutningi Vilborgar Davíðsdóttur
Karlalið Íslands í knattspyrnu náði á mánudagskvöldið besta árangri sínum frá upphafi þegar það vann sér keppnisrétt á HM 2018, en mótið verður spilað í Rússlandi
næsta sumar. Með 2:0 sigri gegn Kósóvó á Laugardalsvelli í lokaleik undanriðilsins endaði Ísland í efsta sæti hans. Mótið sjálft hefst í Rússlandi 14. júní og stendur í einn
mánuð. Það verður þó ekki fyrr en 1. desember næstkomandi sem dregið verður í riðla á mótinu þar sem 32 þjóðir taka þátt, þar af 14 frá Evrópu. Fram að því ríkir óvissa
um í hvaða borgum liðið spilar og við hvaða þjóðir. Árangur íslenska landsliðsins hefur vakið verðskuldaða athygli um gjörvallan knattspyrnuheiminn en Ísland er
langfámennasta ríki heims til að öðlast keppnisrétt á þessu stærsta móti í knattspyrnuheiminum. Til hamingju Ísland með frábæran árangur. HÚH!
mm/ Ljósm. Þorsteinn Eyþórsson.
Kosið verður til Alþingis laugardag-
inn 28. október. Búið er að ákveða
framboðslista nokkurra flokka sem
bjóða fram í Norðvesturkjördæmi
en síðustu forvöð til að skila inn
framboðum er næstkomandi föstu-
dag. Skessuhorn tók af handahófi
tali tæplega fjörutíu kjósendur í NV
kjördæmi og spurði þá hver þeir
teldu brýnustu mál stjórnmálamanna
sem kjörnir verða til forystu í lands-
málunum. Svörin eru býsna ólík, en
flestir nefna heilbrigðisimál, málefni
barnafólks, aldraðra og öryrkja, hús-
næðismál, vexti og verðtryggingu og
menntamál. Nokkrir nefndu bága
stöðu sauðfjárbænda og enn aðrir sjá
ástæðu til að brýna stjórnmálamenn
framtíðarinnar til dáða og minna þá
á að þeir eru í vinnu fyrir umbjóð-
endur sína, ekki sérhagsmunaöfl. At-
hygli vekur að 55% þeirra sem svör-
uðu spurningu blaðsins hafa enn
ekki ákveðið hvað þeir ætla að kjósa,
nú þegar 18 dagar eru til kosninga.
Sjá bls. 20-21. mm
Meirihluti kjósenda enn óákveðinn
Síðastliðinn föstu-
dagsmorgun hófu
fulltrúar landeig-
enda að Hrauns-
ási II innheimtu
bílastæðagjalds við
Hraunfossa í Borg-
arfirði. Eins og
fram kom í frétt-
um Skessuhorns í
júní síðastliðnum
ætluðu sömu aðilar
að hefja gjaldtök-
una 1. júlí en frá því
var horfið enda var
og er slík innheimta talin stangast á
við náttúruverndarlög. Þeirri túlk-
un er lögmaður þeirra ósammála.
Í lögum um náttúruvernd krefst
gjaldtaka inn á friðlýst svæði leyf-
is hlutaðeigandi stofnunar, sem er
Umhverfisstofnun, sem alfarið er
á móti henni. Á föstudagsmorg-
un hafði verið sett upp skilti við
afleggjarann inn á svæðið og er-
lendur starfsmaður frá landeig-
endum hóf að rukka ferðafólk um
bílastæðagjald. Sú gjaldheimta stóð
fram á mánudag þegar Lögreglu-
stjórinn á Vesturlandi lét stöðva
hana.
Meðfylgjandi ljósmynd tók Þór-
unn Reykdal af gljúfrinu þar sem
Barnafoss er. Veðrið var þungbúið
eins og stemningin öll á svæðinu
um helgina. Haustlitirnir ljómuðu
engu að síður.
Ítarlega er fjallað um málið á
bls. 10-11 í Skessuhorni í dag.
Hófu meintar ólöglegar
innheimtuaðgerðir