Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 20178
Ráðstefna um
málefni ferða-
þjónustu
LANDIÐ: Markaðsstofur
landshlutanna standa fyr-
ir árlegri ráðstefnu í sam-
starfi við Deloitte um mál-
efni ferðaþjónustunnar á
morgun, fimmtudaginn
12. október. Ráðstefnan
ber yfirskriftina „Ferða-
maðurinn eða fjárfestingin
- Hvort kemur á undan?“
og fer hún fram á Grand
hótel í Reykjavík milli kl.
13 og 16. Dagskráin sam-
anstendur af ávörpum um
ferðaþjónustu á Íslandi þar
sem margir ferðaþjónustu-
aðilar víðs vegar af land-
inu munu mæla af munni
fram. Einn þeirra er Unn-
ar Bergþórsosn, fram-
kvæmdastjóri Húsafells,
en hann mun flytja ávarp-
ið „Perla milli hrauns og
jökla“. Að lokinni saman-
tekt á framsögum fundar-
manna hefjast pallborðs-
umræður um ferðaþjón-
ustu á Íslandi. Ráðstefnan
er öllum opin og aðgangs-
eyrir er enginn en mælst
er til þess að fólk skrái sig
á vef markaðsstofanna:
www.markadsstofur.is/is/
ferdamadurinn-eda-fjar-
festingin. Þar er einnig að
finna ítarlega dagskrá ráð-
stefnunnar.
-kgk
Sinna fræðslu
um jafnfrétti
kynjanna
L A N D I Ð :
Ve l f e r ð a r -
ráðuneytið og
Kvenréttinda-
félag Íslands
hafa gert með sér samning um
að félagið sinni fræðslu og upp-
lýsingagjöf um jafnrétti kynjanna
á innlendum og erlendum vett-
vangi í samræmi við lög um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla. Þorsteinn Víglundsson, fé-
lags- og jafnréttismálaráðherra,
og Fríða Rós Valdimarsdóttir,
formaður stjórnar Kvenréttinda-
félagsins undirrituðu samning
þessa efnis nýverið. Meginmark-
miðið er að efla fræðslu um jafn-
rétti kynjanna, bæði gagnvart al-
menningi en einnig með sértækri
fræðslu fyrir tiltekna hópa. -mm
Skotfélag Snæ-
fellsness þrjátíu ára
GRUNDARFJ:
Í gær, þriðjudag-
inn 10. október,
fagnaði Skotfélag
Snæfellsness 30
ára starfsafmæli.
Félagið var stofnað af skotáhuga-
mönnum í Grundarfirði á haust-
dögum árið 1987 og hét í þá daga
Skotveiðifélag Grundarfjarð-
ar. Formlegur stofnfundur var
haldinn 10. október sama ár, að
undangengnum nokkrum undir-
búningsfundum. Nafni félagsins
var breytt í Skotfélag Snæfells-
ness 8. maí 2014 og hefur starf-
semi félagsins aldrei verið öflugri
en nú, að því er fram kemur í til-
kynningu frá félaginu. -mm
Í liðinni viku var skrifað undir
þjónustusamning milli Fræðslu-
miðstöðvar atvinnulífsins og at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytisins um 50 milljóna króna ár-
legan stuðning, í þrjú ár, við Hæfn-
isetur ferðaþjónustunnar. Mark-
mið verkefnisins er að auka gæði
og hæfni í ferðaþjónustu, einkum
framlínustarfsmanna og millistjór-
nenda. Í því samhengi verður sér-
staklega horft til fræðslu sem að-
löguð verður starfsmönnum fyrir-
tækja í ferðaþjónustu og fer fræðsl-
an fram inni í fyrirtækjunum eins
og kostur er.
Verkefnið mun m.a. miða að því
að hæfnigreina störf, þróa raun-
færnimat og námskeið, með þrepa-
skiptu starfsnámi, rafrænni fræðslu
ásamt fræðslu innan fyrirtækja.
Hæfnisetrið býður þessi verkfæri
til afnota fyrir fræðsluaðila og fyr-
irtæki og er markmiðið að ná til
sem flestra starfsmanna í ferða-
þjónustu. Jafnframt verður lögð
áhersla á að mæla árangur fræðslu í
t.d. starfsmannaveltu, framlegð og
fleiri rekstrarþáttum fyrirtækja.
mm
Messað var í Ingjaldshólskirkju síð-
astliðinn sunnudag. Þar var þess
minnst að fyrsta kirkjan á Ingjalds-
hóli, sem vitað er um vígsludag, var
vígð fyrir 700 árum, eða 13. október.
Það var Dóra Sólrún Kristinsdóttir,
djákni frá Rifi, sem predikaði í mess-
unni og þjónaði fyrir altari ásamt
sóknarprestinum séra Óskari Inga
Ingasyni. Við athöfnina á sunnudag
lásu fermingarbörn ritningarlestra
og nemendur tónlistarskólans fluttu
tónlist. Að messu lokinni var afmæl-
iskaffi í safnaðarheimilinu. Þar var
Sæmundur Kristjánsson með sögu-
kynningu eins og honum einum er
lagið.
Á vef kirkjunnar má finna ítarlegar
upplýsingar um kirkjuna á Ingjalds-
hóli. Þar stendur meðal annars að
Gunnar Hauksson bjó á Ingjaldshóli
og átti jörðina. Lét hann gera kirkju
á staðnum, en áður hafði þar staðið
bænahús. Víglsumáldagi kirkjunnar
er frá 13. október 1317, en kirkjan
var vígð af Árna Helgasyni Skálholts-
biskupi.
þa/ Ljósm. kj.
Sjö hundruð ár frá vígslu fyrstu
kirkjunnar á Ingjaldshóli
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar fest í sessi
Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins,
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamál, og María Guðmunds-
dóttir fræðslustjóri SAF og formaður stýrihóps Hæfnisetursins við undirskrift
samningsins.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi bjóða til
opins fundar mánudaginn 16. október kl. 20:00 í Klifi, Snæfellsbæ.
Sérstakur gestur fundarins er
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Frambjóðendur munu ræða um
málefni kjördæmisins og gefst
gestum tækifæri til að ræða um
komandi alþingiskosningar og
önnur mál.
Boðið verður upp
á kaffi og veitingar.
Verið öll hjartanlega velkomin,
Sjálfstæðisflokkurinn
Fundur með frambjóðendum og
formanni Sjálfstæðisflokksins