Skessuhorn


Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 201714 „Ég tók við búinu af foreldrum mín- um um síðustu áramót. Þau búa hér enn í hinu íbúðarhúsinu og ætla að vera hér áfram,“ segir Eyjólfur Ingvi Bjarnason, bóndi, sauðfjárræktar- ráðunautur og formaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu. Hann býr í Ásgarði í Hvammssveit ásamt kærustu sinni Guðbjörtu Lóu Þor- grímsdóttur. Hún er leiðbeinandi í Auðarskóla í Búðardal og kennara- nemi við Háskólann á Akureyri. Í Ásgarði búa þau með um 400 fjár. Eyjólfur kveðst alltaf hafa stefnt að því að leggja sauðfjárbúskapinn fyr- ir sig. „Þetta hefur legið fyrir alveg síðan ég var sex ára,“ segir hann létt- ur í bragði. „Það var þó ekki þannig að ætlast væri til þess að ég tæki við búinu. Ekki síst lá þetta hjá sjálfum mér. Ég hef alltaf haft áhuga á sauð- fjárbúskap, þetta er það sem mig langar að gera. Ég vona bara að það ári betur til að vera bóndi síðar meir en gerir nú,“ segir hann. Hægt að breyta mannanna verkum Þar með leiðir Eyjólfur að næsta umræðuefni. Auk þess að sinna bú- skapnum starfar hann sem sauðfjár- ræktarráðunautur hjá Ráðgjafar- miðstöð landbúnaðarins og gegnir formennsku í Félagi sauðfjárbænda í Dalasýslu. Sauðfjárræktin er þann- ig yfir og fyrir og allt um kring hjá Eyjólfi og hann er vel inni í málefn- um sauðfjárbænda. Hann segir þann vanda sem steðjar að sauðfjárbænd- um nú þann mesta sem verið hefur í mörg ár. „Rót vandans að mínu viti er bæði ákveðinn forsendubrestur á útflutningi, til dæmis vegna lokun- ar Rússlandsmarkaðar og að sterkt gengi krónunnar gerir það að verk- um að minna er upp úr útflutningi að hafa. En ekki síður er það stór hluti vandans að okkur vantar ein- hver stjórntæki til að hafa stjórn á framleiðslunni. Það gilda í þessu lögmál markaðarins, ef framboðið er of mikið þá hrynur verðir og á því tapa allir sem koma að sölu á lamba- kjöti. Sauðfjárrækt er í grunninn ekki flóknari bissniss en hver ann- ar,“ segir hann. „En eins og allt kerf- ið hefur virkað síðustu tíu til fimm- tán árin hefur ekki verið nein fram- leiðslustýring. Þá er hvatinn einfald- lega að framleiða eins mörg kíló og hægt er. Afurðastöðvarnar hafa ekki verið að hvetja menn nógu mikið til að koma með gripi fyrr til slátrunar með því að greiða hærra verð. Þá aft- ur er hvatinn að framleiða eins mörg kíló og hægt er til að hafa sem mest upp úr þessu,“ bætir hann við. „En allt saman eru þetta mannanna verk og hægt að breyta ef vilji er til.“ Hryggjarstykki hinna dreifðu byggða Eyjólfur segir sína upplifun af vanda sauðfjárbænda undanfarin ár vera á þá leið að ráðamenn þjóðarinn- ar hafi alltaf ætlað að bíða og sjá til hvort staðan lagaðist ekki. Ekkert hafi hins vegar verið gert og því hafi auðvitað ekkert lagast. „Sú staða sem kom upp í haust er ekkert annað en uppsafnaður vandi síðustu þriggja ára,“ segir hann. Það telur hann hið alvarlegasta mál. „Sauðfjárrækt er lykilatvinnuvegur í dreifðum byggð- um landsins. Ég myndi telja hana al- gjört hryggjarstykki í samfélögum hér vestan Bröttubrekku, svo sem í Dalabyggð og Reykhólahreppi og síðan á Ströndum, Norðurlandi vestra, Norðausturlandi, stórum hluta Austurlands og víða á Suð- austurhluta landsins. Sauðfjárrækt er sterk á öðrum svæðum líka en þar eru aðrar greinar einnig sterk- ari,“ segir hann. „Hér í Dölum er til dæmis ekki margt annað að hafa að atvinnu í raun og veru. Sauðfjárrækt er hryggjarsúla byggðarinnar. Búð- ardalur er þjónustukjarni sem bygg- ist upp og byggir enn á þjónustu við landbúnaðinn,“ bætir hann við. „Ef það færu þrjú sauðfjárbú í þrot hér í Dölum á næstunni þá væru kannski tíu börn farin úr grunnskólanum. Þá þyrfti að fækka um eina kenn- arastöðu og þá þyrfti ein fjölskylda til viðbótar að hverfa á braut. Þegar þar er komið sögu er bara spurning hvenær fimmta fjölskyldan færi og síðan sú sjötta. Ef við teiknum upp allra verstu mynd sem af stöðu sauð- fjárbænda gæti hlotist þá gæti farið af stað alvarlegur byggðaspírall sem erfitt gæti reynst að stöðva,“ segir Eyjólfur. „Síðan ef við horfum vestur til nágranna okkar í Reykhólahreppi þá er staðan að sumu leyti kannski enn brothættari, því þar spila aðrir þættir inn í eins og að samgöngur eru ekki í lagi þegar komið er vestur fyrir Þorskafjörð.“ Þarf að fækka fé En hvað teljur Eyjólfur vera til ráða til að taka á vanda sauðfjárbænda? „Ég leyni ekki þeirri skoðun minni að við þurfum með einhverju móti að fækka sauðfé í landinu. Ég er hins vegar ekki á því að það skuli ger- ast með því að fjöldinn allur af fólki bregði búi og hætti. Við þurfum bara að skapa tímabundinn hvata til að bændur fækki fé,“ segir hann. „Sömuleiðis væri hægt að liðka fyrir því að fólk geti fært sig yfir í aðra at- vinnustarfsemi ef það vill ekki stunda sauðfjárrækt. Til dæmis væri hægt að skilgreina verkefnasvið skógrækt- arinnar við kolefnisbindingu öðru- vísi, á þá leið að fólk gæti setið áfram á jörðum sínum án þess að halda sauðfé,“ segir hann. „Ég hef ekki trú á að sauðfjárræktin verði í fram- tíðinni útflutningsgrein sem flytur út sauðfjárafurðir í stórum stíl. Það er allt í lagi að reyna að flytja kjöt á nýja vel borgandi markaði svo sem Kína og Japan. Ég er nú ekki búinn að vera lengi við búskap en bændur eru búnir að heyra svo árum skiptir að þarna leynist mikil tækifæri. Ég trúi því hins vegar ekki fyrr en það gerist að við verðum stórtæk á þess- um mörkuðum,“ segir hann. Undirboð í versluninni Í síðustu viku ræddi Skessuhorn við formenn félaga sauðfjárbænda á Snæfellsnesi og í Borgarfirði; Þóru Sif Kópsdóttur og Davíð Sig- urðsson. Þau voru sammála um að fækka þyrfti afurðastöðvum. Eyj- ólfur kveðst ekki vera þeirrar skoð- unar. „Ég er ekki endilega á því að fækka þurfi afurðastöðvum. Hins vegar þarf kannski að fækka þeim kennitölum sem eru að selja kjöt í landinu. Það eru of margir að selja kjöt til neytenda og þar eru menn að undirbjóða hvern annan. Það skemmir fyrir öllum og keyr- ir verðið niður,“ segir hann. „Síð- an ætla ég ekki að leyna þeirri skoð- un minni að ég tel verslunina bera ábyrgð á þessu líka. Ég fagna því að menn geti keypt lambakjöt en finnst ekki heiðarleg kaupmennska að bjóða alltaf lambakjöt undir framleiðslukostnaði og hala síðan inn með álagningu á öðrum vörum. Framleiðslukostnaður á hvert kíló af dilkakjöti er á bilinu 1.000 til 1.200 krónur, miðað við að bóndi hafi 160 þúsund krónur í mánaðar- laun. Ef við viljum að bóndinn hafi 300 þúsund í mánaðarlaun er fram- leiðslukostnaður 1500 kr. á hvert kíló. Þegar maður sér læri úti í búð á allt niður í 750 kr. kílóið þá er um algjör undirboð að ræða,“ seg- ir Eyjólfur og tekur dæmi. „Það er hægt að kaupa gott læri sem er þrjú kíló á þrjú þúsund krónur úti í búð. Það dugar í matinn fyrir tíu manns en vissulega þarf að elda það og út- búa meðlæti. Það er ódýrari mál- tíð en að fara á Domino‘s og kaupa tvær pitsur og gos. Lambakjöt er ekki dýr vara í verslunum landsins,“ segir hann. Eyjólfur segir að vissulega megi gagnrýna afurðastöðvar fyrir fram- setningu vörunnar og skammta- stærðir. „Lambakjöt þarf að vera fáanlegt í minni einingum, þannig að þar sem eru tveir til þrír í heim- ili þurfi ekki að kaupa risabita og sitja síðan uppi með afganga. Þá má framsetningin einnig vera betri,“ segir hann tekur fram að hann telji hana vera að færast til betri vegar. „Þar er það Costco sem stjórnar stefnunni, ég held að aðrar versl- anir séu farnar að horfa til þeirra hvað varðar framsetningu á íslensku lambakjöti og það er jákvætt.“ Stjórnvöld myndi framtíðarsýn Í gegnum starf sitt sem sauðfjár- ræktarráðunautur hittir Eyjólf- ur fyrir fjölda bænda um allt land. Hann kveðst ekki hafa heyrt á nein- um sem ætli að bregða búi núna í haust. „Staðan er sú að menn eru búnir að leggja út fyrir kostnaði næsta árs. Einhverjir koma til með að fækka fé og í vetur þarf að liggja fyrir um það bil hvert afurðaverðið verður næsta haust. Menn verða að vita það í desember eða janúar, alls ekki seinna. Þá geta menn gert upp við sig hvort þeir ætla að halda áfram eða hætta. Ég hef nefnilega grun um að býsna margir séu að velta því fyr- ir sér að bregða búi næsta haust,“ segir Eyjólfur; „og það er einfald- lega þannig að ef ekki verður hækk- un afurðaverðs á næsta ári þá er bara sjálfhætt, þá er enginn grundvöll- ur fyrir þessu lengur. Það þarf að vera hægt að hafa einhverjar tekjur af þessu,“ segir hann og kallar eft- ir aðgerðum stjórnvalda. „Það er ákall sauðfjárbænda til þeirra 63 sem veljast inn á Alþingi í kom- andi kosningum að vinna vinnuna sína og gera eitthvað. Það er ekki hægt að halda að hlutirnir ger- ist af sjálfu sér. Þessi vandi leys- ist ekki að sjálfu sér,“ segir Eyjólf- ur en tekur fram að hann sé ekki að kalla eftir auknum framlögum í formi styrkja. „Ég er ekki að kalla eftir meiri peningum. Ég vil að liðkað verði fyrir í kerfinu og hlut- irnir útfærðir þannig að hægt verði að stunda sauðfjárrækt og hafa af því einhverjar tekjur. Ég kalla eft- ir því að stjórnvöld myndi sér ein- hverja framtíðarsýn sem liggur þá fyrir, það verði forgangsverkefni svo menn viti að hverju þeir ganga á næsta ári,“ segir Eyjólfur Ingvi Bjarnason að endingu. kgk/ Ljósm. úr safni. „Ef ekki verður hækkun afurðaverðs á næsta ári þá er bara sjálfhætt“ - segir Eyjólfur Ingi Bjarnason, bóndi og formaður FSD Eyjólfur Ingvi Bjarnason, bóndi, sauðfjárræktarráðunautur og formaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu. Eyjólfur hefur haft í nógu að snúast við að dæma lömb þessa dagana og fleira sem fylgir haustinu. Stundum er hann kallaður til þegar haldnar eru sýningar. Hér dæmir hann væna hrúta á Snæfellsnesi. Rekið inn í Ljárskógarrétt í Dölum nú í haust. Dalabyggð er mikið landbúnaðar- hérað og á mikið undir sauðfjárrækt komið, sem og fleiri dreifðar byggðir lands- ins. „Ég myndi telja sauðfjárrækt algjört hryggjarstykki í samfélögum hér vestan Bröttubrekku, s.s. Dalabyggð og Reykhólahreppi,“ segir Eyjólfur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.