Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 20172
Slökkvilið Borgarbyggðar var síð-
astliðinn laugardagsmorgun kall-
að út að bænum Laxárholti á Mýr-
um. Þar hafði hitabúnaður tengdur
þurrkun á korni bilað með þeim af-
leiðingum að glóð var komin í korn-
ið og talsverðan reyk lagð frá því. Að
sögn Jökuls Fannars Björnssonar va-
raslökkviliðsstjóra var brugðist hár-
rétt við. Hann segir að Unnsteinn
Jóhannsson bóndi hafi hringt út að-
stoð en lokað inn í þurrkunina þann-
ig að súrefni kæmist ekki að. Slökkvi-
liðsmenn hafi því þegar þeir mættu
á staðinn getað aðstoðað heimafólk
við að losa kornið úr sílóinu og eft-
ir það var hægt að smúla það síð-
asta út með vatni og hreinsa búnað-
inn. Tjón hafi því verið minniháttar
og jafnvel hægt að nýta kornið þótt
hitnað hafi fullvel í því. Í Laxárholti
er korn ræktað á um 30 hekturum
og er þreskingu af ökrunum nú lok-
ið. mm
Skessuhorn ræddi í vikunni við fjölda
Vestlendinga um komandi kosningar til
Alþingis 28. október nk. Lauslega áætlað
er ríflegur helmingur kjósenda óákveðinn.
Kjósendur eru því minntir á að gera upp
hug sinn í tæka tíð, hvort sem þeir ætla að
kjósa eða skila auðu. Það er ótrúlega stutt
í kosningar.
Norðaustan 10-15 m/s og rigning á Vest-
fjörðum á morgun, fimmtudag. Hæg-
ari breytileg átt og þurrt í öðrum lands-
hlutum. Gengur í austan og norðaustan
10-18 um kvöldið með rigningu um allt
land. Hiti 3 til 9 stig. Norðanátt 13-18 m/s
norðvestan til á landinu á föstudag, en
suðvestan 10-15 við suðausturströndina.
Annars staðar hægari vindur. Víða rigning,
en rofar til á Norðausturlandi, úrkomu-
lítið á suðvesturhorninu. Hiti 2 til 10 stig,
kaldast á Vestfjörðum. Norðvestan 10-15
m/s á laugardag. Rigning eða slydda um
landið norðanvert, en bjartviðri sunnan
heiða. Hægari vestlæg átt með kvöldinu
og úrkomulítið. Hiti á bilinu 1 til 10 stig. Á
sunnudag og mánudag er útlit fyrir frem-
ur hæga suðlæga átt. Víða léttskýjað, en
lítilsháttar skúrir eða slydduél við suður-
og vesturströndina. Hiti 2 til 7 stig yfir dag-
inn, en víða næturfrost inn til sveita.
Spurningin „Ætlar þú að fylgjast með
körfuboltanum í vetur?“ var borin upp á
vef Skessuhorns í liðinni viku. „Nei“ sögðu
flestir, eða 56% en næstflestir, 18%, sögðu
„já, eitthvað“. „Já, mjög mikið“ sögðu 13%,
„kannski“ 7% og „já, mikið“ 6%.
Í næstu viku er spurt:
Hve oft notar þú blýant eða penna?
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fæ
sæmdarnafnbótina Vestlendingar vikunn-
ar. Strákarnir tryggðu sér sem kunnugt
er á mánudag sæti í lokakeppni Heims-
meistaramótsins í Rússlandi næsta sumar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Næturlokanir
í næstu viku
HVALFJ.G: Hvalfjarðar-
göng verða lokuð fyrir um-
ferð í þrjár nætur í næstu
viku, viku 42, vegna við-
halds og hreingerningar.
Lokað verður aðfararnæt-
ur þriðjudags 17., miðviku-
dags 18. og fimmtudags 19.
október frá miðnætti til kl.
6 að morgni. Það er árleg-
ur viðburður í rekstri gang-
anna að loka þeim í nokkr-
ar nætur að vori og hausti
af þessu tilefni. „Lokun nú
er því hefðbundin ráðstöf-
un og beðist er velvirðingar
á óþægindum sem hún kann
að valda,“ segir í tilkynn-
ingu frá Speli. -mm
Nemendum
ofan grunnskóla
fækkar
LANDIÐ: Nemendur á
skólastigum ofan grunn-
skóla hér á landi voru 42.589
haustið 2015 og hafði fækk-
að um 1.346 nemendur
frá árinu á undan, eða um
3,1%. Aðallega er fækkunin
á framhaldsskólastigi. Hag-
stofa Íslands tók þetta sam-
an. Alls sóttu 19.086 karl-
ar nám haustið 2015 og
23.503 konur. Körlum við
nám hafði þá fækkað um
4,4% en konum um 2%. Á
framhaldsskólastigi stund-
uðu 23.085 nemendur nám
haustið 2015 og fækkaði um
4,4% frá fyrra ári. Á viðbót-
arstigi voru 866 nemendur
og var fjöldi nær óbreyttur.
Á viðbótarstigi er nám sem
bætist ofan á nám á fram-
haldsskólastigi en er ekki á
háskólastigi. Á háskólastigi í
heild voru 18.638 nemend-
ur og fækkaði um 1,5% frá
haustinu 2014. Nemend-
um í námi til doktorsgráðu
fækkaði um 10,4% og voru
465, en þeim hafði fjölgað
ár frá ári frá 2011. Tæpur
þriðjungur, eða 31,6% dokt-
orsnema, eru erlendir ríkis-
borgarar og hefur þeim far-
ið fjölgandi. Um helming-
ur þeirra kemur frá öðrum
Evrópulöndum. Nemend-
um í námi til fyrstu háskóla-
gráðu fækkaði einnig.
-mm
1 2 3Kíktu inná SANSA.IS
VIÐ ÞÖKKUM
FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR
Síðasti pöntunardagur er til miðnættis á miðvikudögum.
Afhending er á þriðjudegi í komandi viku.
GSM: 865-2580
SMIÐJUVÖLLUM 17
300 AKRANES
SÍMI: 431-2580
Slökkvilið kallað út vegna
ofhitnunar í kornþurrkun
Í gær hófst gangsetning Veitna á
nýrri skólphreinsistöð í Borgar-
nesi, en unnið hefur verið við bygg-
ingu stöðvarhúss, lagna og ann-
arra mannvirkja í um áratug. Stöð-
in verður bylting í fráveitumálum í
bænum en hún mun taka við öllu
skólpi, sem hingað til hefur runn-
ið óhreinsað í sjó í gegnum nokkrar
útrásir, hreinsa það og dæla um 600
metra út í Borgarfjörð. Í tilkynn-
ingu frá fyrirtækinu segir að áður
en hægt verði að setja hreinsistöð-
ina í gang þarf að ganga úr skugga
um að yfirfall hennar virki sem
skildi. Því mun óhreinsað skólp fara
í sjó við hreinsistöðina í Brákarey í
stuttan tíma.
Gangsetning og prófanir á bún-
aðinum fer þannig fram að sjö nýir
dælubrunnar verða ræstir einn af
öðrum og svo hreinsistöðin sjálf þeg-
ar skólp tekur að streyma inn í hana.
Þegar dælubrunnar verða komnir
í gang hættir skólp að streyma út
um gömlu útrásirnar. Þær halda þó
áfram að þjóna sem yfirföll sem geta
orðið virk þegar rignir mikið eða ef
dælustöð bilar eða sinna þarf við-
haldi í henni. „Gert er ráð fyrir að
prófanir taki tvær vikur og að þeim
loknum verði stöðin komin í fullan
rekstur til framtíðar. Taki þær lengri
tíma verður íbúum gert viðvart,“
segir í tilkynningu frá Veitum.
mm
Gangsetning nýrrar skólphreinsistöðvar að hefjast
Skólphreinsistöð Veitna er í Brákarey. Ljósm. Veitur.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís-
lands hefur ákveðið að lækka vexti
bankans um 0,25 prósentustig.
Meginvextir bankans, vextir á sjö
daga bundnum innlánum sem oft-
ast eru kallaðir stýrivextir, verða því
4,25%. Í yfirlýsingu Peningastefnu-
nefndar frá því á miðvikudagsmorg-
un segir að horfur séu á minni hag-
vexti í ár en í fyrra, meðal annars
vegna þess að hægt hefur á vexti
ferðaþjónustu. Hagvöxtur verði þó
áfram töluvert mikill en vísbend-
ingar séu um að farið sé að draga úr
spennu í þjóðarbúskapnum.
„Verðbólga hefur hjaðnað nok-
kuð síðastliðna tvo mánuði og í sep-
tember mældist hún 1,4%. Mælik-
varðar á undirliggjandi verðbólgu
eru enn lægri og hjaðnandi. Gen-
gi krónunnar hefur lítið breyst frá
síðasta fundi nefndarinnar, eftir
lækkun sl. sumar, og er 4,5% hær-
ra en á sama tíma í fyrra. Mælik-
varðar á verðbólguvæntingar eru í
nokkuð góðu samræmi við verðból-
gumarkmiðið. Gengissveiflur un-
danfarinna mánaða hafa haft tiltö-
lulega lítil áhrif á verðbólgu og
skammvinn áhrif á verðbólgu-
væntingar,“ segir í yfirlýsingunni.
„Spenna í þjóðarbúskapnum kallar
á peningalegt aðhald svo að tryg-
gja megi verðstöðugleika til meðal-
langs tíma. Þróun verðbólgu og
verðbólguvæntinga auk minnkandi
spennu benda þó til þess að raun-
vextir bankans nægi við núverandi
aðstæður til þess að verðbólga verði
að jafnaði við markmið. Aðhaldsstig
peningastefnunnar á komandi mis-
serum mun ráðast af framvindu ef-
nahagsmála og annarri hagstjórn.“
kgk
Stýrivextir lækkaðir um kvartprósentustig