Skessuhorn


Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 201712 Krakkarnir á Leikskólanum Sólvöll- um í Grundarfirði voru úti í góða veðrinu síðasta þriðjudag þar sem þeir nutu veðurblíðunnar. Haustlit- irnir skörtuðu sínu fegursta í garð- inum fyrir aftan Heilsugæslustöð- ina og var margt að skoða. Hvort sem það var að grandskoða steinana í garðinum, laufblöðin sem féllu til jarðar eða sólina sem gægðist yfir fjallgarðinn, þá áttu þessir krakkar ekki í vandræðum með að njóta sín í blíðunni. tfk Að njóta haustsins Síðastliðinn laugardag var veg- leg afmælishátíð haldin í Stykk- ishólmi þegar því var fagnað að leikskóli staðarins er 60 ára. Það var St.Franciskusreglan sem fyrst stofnaði leikskóla í bænum og rak með rausnarbrag í fjölmörg ár. Þannig var reglan frumkvöðull í rekstri leikskóla en slík starfsemi hófst fyrr í Stykkishólmi en í ná- grannabyggðarlögum. Í tilefni af- mælisins heiðruðu forsetahjónin, Guðni Th Jóhannesson og Eliza Reid ásamt börnum sínum, íbúa með heimsókn og þátttöku í af- mælisfagnaðinum. Hátíðin hófst klukkan 13 og stóð fram eftir degi. Sigrún Þórsteinsdóttir leikskóla- stjóri segir að frá upphafi hafi ver- ið ákveðið að hátíðin snerist um börnin, þeirra menningu og sköp- un og telur hún það hafa heppn- ast vel. Aðallega snerist hátíðin því um þau börn sem nú eru í leikskól- anum en einnig var gaumur gefinn að öllum þeim börnum sem hafa verið nemendur í leikskólanum í gegnum tíðina. Afmælisfagnaðurinn stóð yfir alla vikuna og lauk á sjálfan af- mælisdaginn. Elstu börn leikskól- ans, ásamt 1. bekk í grunnskólan- um, unnu saman að listasmiðjum í umsjón kennara og listamanna í Stykkishólmi. Í leikskólanum var unnið að skapandi verkefnum með öllum börnunum og var afrakst- urinn sýndur á afmælishátíðinni. Unnið var með fjölmenningu í tengslum við hátíðina og var m.a. haldið menningarmót með börn- unum í samvinnu við foreldra á þriðjudaginn í liðinni viku. Menn- ingarmótið var unnið með þrem- ur elstu árgöngunum í leikskól- anum og hugsað til að varpa ljósi á fjölbreytta menningarheima í samfélaginu. „Við eigum öll okk- ar persónulegu menningu sem endurspeglast í því hver við erum, hvað við viljum kynna fyrir öðr- um og styrkja með því móti sjálfs- mynd okkar. Ekki er endilega um að ræða þjóðarmenningu eða upp- runamenningu heldur það sem skiptir hvern og einn mestu máli og vekur áhuga viðkomandi,“ segir Sigrún. Þess má geta að á næstu dög- um verður ný kennslustofa tekin í notkun við leikskólann til að hægt verði með góðu móti að rúma öll leikskólabörn í þessu vaxandi bæj- arfélagi. Keypt var færanleg 60 fm kennslustofa sem áður stóð við Listaháskóla Íslands, en flutt í Stykkishólm eins og sagt var frá fyrir stuttu í Skessuhorni. Leikskólanum bárust á föstudag- inn góðar gjafir í tilefni 60 ára af- mælisins. Ragnheiður Axelsdóttir formaður Lionsklúbbsins Hörpu og Sesselja Sveinsdóttir gjaldkeri komu og afhentu Sigrúnu leik- skólastjóra hundrað þúsund krón- ur að gjöf til kaupa á námsgögnum og búnaði. Foreldrafélag leikskól- ans, með þær Dóru Lind og Önnu Margréti í fararbroddi, komu sama dag með afmælisgjafir, tvö hljóm- flutningstæki, tvær Ipad spjald- tölvur og tvo bluetooth hátalara. mm Hátíðarhöld í tilefni 60 ára afmælis Leikskólans í Stykkishólmi Þessi skemmtilega mynd var tekin og raðað eins upp og á annarri mynd sem tekin var fyrir nokkrum árum! Ljósm. leikskólinn á Facebook. Þétt setinn salurinn á hátíðar- dagskránni. Ljósm. Haukur Páll Kristinsson. Þessi mynd var tekin á menningarmóti og sýnir þegar börnin voru að segja frá hlutunum sem þau komu með til að sýna í afmælinu. Ljósm. Leikskólinn á Facebook. Forseti Íslands ávarpaði hátíðargesti. Ljósm. Haukur Páll Kristinsson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.