Skessuhorn


Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 201730 Keppnistímabilið í klifri hófst um liðna helgi með Haustfagnaði Klif- urhússins, en um tuttugu klifrarar frá ÍA tók þátt á mótinu. Í flokki krakka 11-12 ára sigraði Sylvía Þórðardóttir í stúlknaflokki og Hjalti Rafn Kristjánsson og Rún- ar Sigurðsson höfnuðu í öðru og þriðja sæti. Brimrún Eir Óðins- dóttir keppti í 16-19 ára flokki og hafnaði í öðru sæti. Aðrir ÍA klifr- arar stóðu sig með stakri prýði og ekki var annað að sjá en að þau hafi skemmt sér vel og notið þess að klifra þær leiðir sem leiðasmiðir Klifurhússins settu upp fyrir þau. Að sögn Þórðar Sævarssonar formanns Klifurfélags Akraness er framundan hjá félaginu hið ár- lega Hrekkjavökumót sem fram fer laugardaginn 28. október í aðstöðu félagsins á Vesturgötu. Fyrsta mót- ið í Íslandsmeistaramótaröðinni fer svo fram um miðjan nóvember og þar munu gulir og glaðir ÍA klifr- arar að sjálfsögðu mæta til leiks, að sögn Þórðar. mm Kolbeinn, Hjalti Rafn, Rúnar, Sylvía og Gyða. Keppnistímabilið í klifri hafið Boggu-Bresamótið í blaki var hald- ið laugardaginn 30. september á Akranesi. Um skemmtimót var að ræða og nýliðar boðnir velkomnir að mæta og spreyta sig. Mótið hófst að morgni og lauk keppni síðdegis. „Boggu-Bresamótið er orðið að ár- legum viðburði blakfélagsins. Það er haldið til heiðurs Guðbjargar Árna- dóttur sem eiginlega má kalla blak- drottninguna okkar,“ segir Sædís Alexía Sigurmundsdóttir, formað- ur Bresa, í samtali við Skessuhorn. „Bogga okkar er enn virkur félags- maður í blakinu og mætir á æfingu tvisvar í viku. Það er þvílíkur kraft- ur í henni og lítum við allar upp til hennar og vonum að við verðum á sama stað og hún þegar við verðum sjötugar.“ segir Sædís. Sigurvegarar á mótinu voru Aft- urelding C í 1. deild, Haukar A í 2. deild og Stjarnan ytri fegurð í 3. deild. kgk/ Ljósm. jho. Vel heppnað blakmót var haldið á Akranesi Svipmynd frá Boggu-Bresamótinu á Akranesi. Bogga fylgist með gangi mála. Snæfell lék fyrsta heimaleik vetrarins í 1. deild karla í körfuknattleik þeg- ar liðið mætti FSu í Stykkishólmi á mánudagskvöld. Eftir jafnan og spennandi leik kræktu Snæfellingar í fyrsta sigur vetrarins, 110-103. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiksins og liðin skiptust á að leiða. Varnarleikur liðanna sat aðeins á hakanum og fyrir vikið var mikið skorað í upphafsfjórðungnum. FSu leiddi með tveimur stigum að hon- um loknum, 26-28. Leikurinn var í járnum í öðrum fjórðungi. Staðan var jöfn þar til komið var fram yfir miðjan fjórðunginn. Þá náði Snæfell forystunni og leiddi með þremur stigum í hálfleik, 50-47. Svipað var uppi á teningnum í síðari hálfleik. Snæfellingar bættu varnarleikinn lítið eitt í þriðja leik- hluta og náðu að gera smá áhlaup. Gestirnir gáfu hins vegar ekkert eft- ir og aðeins munaði tveimur stigum fyrir lokaleikhlutann. Snæfell leiddi í lokafjórðungnum en liðsmenn FSu fylgdu þeim eins og skugginn. Gestirnir minnkuðu muninn í eitt stig um miðjan leikhlutann. Snæfell svaraði með góðum spretti og komst í 98-91 þegar þrjár mínútur lifðu leiks. Fsu minnkaði muninn í þrjú stig en nær komust þeir ekki. Snæ- fell kláraði leikinn á síðustu mínút- unum og sigraði með sjö stigum, 110-103. Christian Covile átti stórleik fyr- ir Snæfell, skoraði 37 stig og tók 13 fráköst. Viktor marinó Alexanders- son skoraði 18 stig, Geir Elías Úlf- ur Helgason skoraði 17, Jón Páll Gunnarsson 13 og Nökkvi Már Nökkvason 12 stig. Með sigrinum krækti Snæfell í fyrstu stig vetrarins. Fær liðið tæki- færi til að halda stigasöfnuninni áfram næstkomandi föstudag, 13. október, þegar liðið mætir Fjölni á útivelli. kgk Christian Covile átti stórleik í sigri Snæfells. Ljósm. úr safni/ sá. Snæfell sigraði FSu í spennandi leik Grundfirðingar hefja leik í 3. deild karla í körfuknattleik næstkom- andi laugardag, 14. október. Fyrsti leikurinn er heimaleikur á móti Stál-úlfi og hefst hann kl. 14:00 í íþróttahúsinu í Grundarfirði. Að- alsteinn Jósepsson, eða Steini Jobba, er potturinn og pannan í körfuknattleiksliði Grundfirðinga. Hann kveðst bíða komandi vet- urs með eftirvæntingu, þó á tíma- bili hafi verið tvísýnt með þátttöku Grundfirðinga í Íslandsmótinu þetta skiptið. „Það leit út fyrir það á tímabili að við myndum ekki ná í lið. Vegna aldurs og meiðsla eru þrír leik- menn úr sjö manna kjarna frá því í fyrra sem geta ekki verið með í ár,“ segir Steini í samtali við Skessu- horn. „En sem betur fer eigum við góða að í Snæfelli og Ingi Þór þjálfari bjargaði okkur alveg. Verið er að undirbúa venslasamning og félagaskipti milli liðanna þannig að við fáum sex unga og efnilega leikmenn úr röðum Snæfells,“ seg- ir hann ánægður. „Þannig að við verðum með í mótinu í ár og ég er hæstánægður með það. Strákarnir frá Snæfelli munu spila með okk- ur í vetur og það sem er ekki síð- ur mikilvægt, þeir munu æfa með okkur tvisvar í viku. Það er alveg nauðsynlegt að vera með öflug- ar æfingar, geta haldið uppi góðu tempói og góðri samkeppni á æf- ingunum. Þá eru þær sem líkastar því sem verður í leikjum,“ bætir hann við. Leikmaður, fram- kvæmdastjóri og þjálfari „Að öðru leyti er sami kjarni á bak- við liðið og verið hefur. Það er að segja ég sjálfur og allir sem ég get platað til að vera með,“ segir Steini og hlær við. En gamninu fylgir al- vara. Körfuknattleiksliði Grund- firðinga er fyrst og fremst haldið úti fyrir tilstuðlan örfárra manna, jafnvel bara eins einstaklings. Slíkt er algengt er með íþróttalið í litlum bæjarfélögum. Steini er þannig allt í senn leikmaður, þjálfari og framkvæmdastjóri liðsins. „Ég hef óskaplega gaman að körfunni, ann- ars væri ég löngu hættur að standa í þessu,“ segir hann. „Þegar einhver sem er eldri en svona 32 ára er að keppa í íþróttum þá er það bara af því honum finnst það skemmtilegt. Það er ekkert gott við það daginn eftir. Ég er 39 ára og ég get varla gengið daginn eftir æfingar og leiki nema ég komist í heita pottinn og kalda karið,“ segir Steini og blaða- maður heyrir hann hrista hausinn í gegnum símtólið. „En þetta er bara svo gaman að maður leggur það á sig,“ bætir hann við. Stefnir á topp 4 Grundfirðingar höfnuðu í 4. sæti deildarinnar í fyrra og komust því í úrslitakeppnina um laust sæti í 2. deild. Þar sigruðu þeir fyrsta leik- inn og komust áfram en féllu úr leik í undanúrslitum á móti B liði Þórs Þorlákshafnar. Steini vonast til að ná einu af fjórum efstu sæt- unum eins og í fyrra. „Liðið verður náttúrulega öðruvísi í ár og þann- ig séð lítið hægt að byggja á síðasta vetri. Við fáum núna inn stráka sem kunna körfubolta og eru í góðu formi. Við fáum líka sex í staðinn fyrir þá þrjá sem við missum. Það munar helling um bara fjöldann, að geta skipt oftar og haldið uppi tempói,“ segir hann. „Þannig að ég held það sé vel raunhæft að setja markið á eitt af fjórum efstu sæt- unum eins og í fyrra,“ segir Steini Jobba að endingu. kgk/ Ljósm. tfk. Setja markið á eitt af fjórum efstu sætunum Aðalsteinn Jósepsson, eða Steini Jobba, fer yfir málin með sínum mönnum síðasta vetur. Hér hefur hann brugðið sér í hlutverk þjálfara, en hann er jafnframt framkvæmdastjóri og leikmaður Grundarfjarðarliðsins. Grundfirðingar fagna skoruðum stigum í leik síðasta vetur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.