Skessuhorn - 11.10.2017, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 201720
KOSNIN
GAR
2017
Halldóra
Harðardóttir,
Borgarnesi
„Hei lbr igð i smá l
ættu að vera mjög
ofarlega á baugi
þeirra, að mínu
mati, og að gera
fólki kleift að lifa
sómasamlega í þessu
landi.“ Hún er ekki búin að taka ákvörðun
um hvað hún ætlar að kjósa.“
Davíð Sveins-
son, Stykkis-
hólmi
„Húsnæðismálin og
byggðamálin. Það
er löngu orðið tíma-
bært að stjórnmála-
menn komi með
raunhæfar tillög-
ur í byggðamálum
til eflingar byggð-
ar í landinu. Ég er nokkurn veginn búinn að
ákveða hvað ég mun kjósa.“
Ingunn
Jóhannesdóttir,
Borgarnesi
„Það ætti að vera
hvað flokkarnir ætli
að gera, í stað þess
að vera með skít-
kast. Ég vil sjá eitt-
hvað málefnalegt
um hvað þeir ætli að
gera, hvernig þeir
ætla að fara að því og hvaðan peningarnir
eiga að koma. Þá ætti að mínu mati að leggja
áherslu á heilbrigðismál og vegasamgöngur,
en þar þarf virkilega að bæta í.“ Hún bætir
við: „Áður en ég tek ákvörðun um hver fær
mitt atkvæði vil ég fyrst fá þessi svör.“
Freydís Bjarna-
dóttir, Grundar-
firði
„Heilbrigðismálin
ættu að vera efst á
baugi en ég hef ekki
ákveðið hvað ég ætla
að kjósa.“
Ólafur Tryggva-
son, Grundar-
firði
„Fyrst og fremst ætti
að reyna að ná nið-
ur þessum okurvöxt-
um svo börnin okkar
geti keypt húsnæði.
En ég er búinn að
ákveða hvað ég ætla
að kjósa.“
Björn Hilmars-
son, Ólafsvík
„Áherslurnar eru
svæðisbundnar. Hér
á Vesturlandi eru
húsnæðismálin mjög
aðkallandi og sam-
göngumálin einnig.
Svo eru málaflokkar
eins og heilbrigðis-
mál sem alltaf skipta
miklu máli.“ Björn
segist vera búinn að taka ákvörðun um hvað
hann ætlar að kjósa.
Eva Karen
Þórðardóttir,
Borgarfirði
„Stjórnmálamenn
þurfa að vera í
vinnunni, klára kjör-
tímabilið og hætta
að rífast! Það þarf að
klára þau mál sem
nú þegar eru í gangi
og þeir þurfa að vinna vinnuna sína. En ég er
ekki búin að ákveða hvað ég ætla að kjósa.“
Svanfríður
Þórðardóttir,
Ólafsvík
„Mér finnst til dæm-
is að mál öryrkja
verði að vera í lagi.
Fólk verður að eiga
möguleika á að lifa
og átt sómasamlegt
líf, þó það geti ekki unnið. Fyrir mig var ekki
erfitt að velja hvern ég mun kjósa.“
Jóhannes Sim-
onsen, Akranesi
„Mér finnst kvóta-
kerfið eitt af mikil-
vægustu málefnun-
um. Ég er formað-
ur smábátafélags-
ins á Akranesi, Sæ-
ljón heitir það, og
við erum hreinlega
að horfa á að smá-
bátafloti er að þurrkast út allt í kringum Ísland,
sem er mjög alvarlegt mál fyrir þorpin um land-
ið. Það eru fullt af fiskitegundum sem menn ná
ekki að veiða og eru því vannýttar og er þetta
ein afleiðing af kvótakerfinu. Mér finnst því að
það ætti að taka kvótakerfið alveg til endurskoð-
unar og ég er búinn að ákveða hvert mitt at-
kvæði fer.“
Sigrún Þor-
bergsdóttir,
Akranesi
„Menntamál og heil-
brigðismál ættu fyrst
og fremst að vera efst
á baugi. Það þyrfti
t.d. að flýta fyrir nýj-
um Landspítala. Þá
eru flóttamanna-
málin mér mjög hugleikin en þar þarf að vera
fljót, skilvirk og mannúðleg afgreiðsla. Ég tel
að við Íslendingar gætum tekið á móti fleira
kvótaflóttafólki.“ Sigrún segist ekki hafa tekið
ákvörðun um hvað hún ætli að kjósa.
Márus Líndal
Hjartarson,
Akranesi
„Efst á baugi ættu
að vera heilbrigðis-
mál og vertrygging-
in, en það þarf að af-
nema hana. Og ég er
búinn að ákveða hvað
ég ætla að kjósa.“
Sóley Sævars-
dóttir, Akranesi
„Heilbrigðismál ættu
að vera númer eitt,
tvö og þrjú,“ segir
Sóley en hefur ekki
tekið ákvörðun um
hvað hún ætlar að
kjósa.
Karvel Lindberg
Karvelsson,
Akranesi
„Það eru mörg mál-
efni sem koma til
greina. Samgöngu-
mál finnst mér þurfa
að stórbæta og svo
þyrfti að auka fjár-
magn í þau og virkja
lífeyrissjóðina í að
fjármagna samgöngukerfið. Landbúnaðarkerf-
ið er líka málefni sem ætti að leggja áherslu á
og taka þarf afstöðu til landbúnaðarmála og
matvælaframleiðslu. Þessir hlutir munu hafa
áhrif á hvað ég mun kjósa, sem ég ef ekki tekið
endanlega ákvörðun um.“
Hafsteinn
Kjartansson,
Akranesi
„Ég myndi segja að
heilbrigðismál ættu
að vera í forgrunni
en efnahagsmál-
in líka, þau eru jú
grundvöllur fyrir að
hægt sé að taka til í
heilbrigðismálum. En ég er enn óákveðinn
með mitt atkvæði.“
Sædís Þórhalls-
dóttir, Akranesi
„Það sem snýr að
mér persónulega
eru málefni barna-
fjölskyldna. Allt sem
tengist börnum er
orðið svo dýrt; frí-
stundir, fatnaður og
annað slíkt. Fólk
hefur orðið ekki efni
á þessu öllu og það þarf að breytast, en ég er
ekki búin að ákveða hver fær mitt atkvæði.“
Guðmundur
Pálsson,
Akranesi
„Ég myndi segja að
verðtryggingin og
okurvextir ættu að
vera efst á baugi og
svo líka húsnæðis-
málin. Ég á eftir að
ákveða hvað ég mun
kjósa.“
Lilja Magnús-
dóttir, Grundar-
firði.
„Núna þurfa stjórn-
málamenn að leggj-
ast undir feld og
fara í róttæka nafla-
skoðun. Hver einn
og einasti stjórn-
álamaður þarf að
lesa sig til um sið-
ferði og heiðarleika og spyrja sjálfa sig að
því af hverju þeir eru stjórnmálamenn og
svara því heiðarlega. Stjórnmálamenn
þurfa að lesa sér til um hvað felst í því að
sinna þessu starfi, hver þeirra ábyrgð sé og
gagnvart hverjum. Þannig að núna, akkúr-
at núna, í október 2017, þurfa stjórnmála-
menn að slíta öll hagsmunatengsl, virða þá
sem borga þeim laun, sem er almenningur í
þessu landi, og fara að vinna í þágu heildar-
innar en ekki sérhagsmuna. Ég veit að þetta
er langsótt og óraunhæf krafa. En á meðan
stjórnmálamenn stunda spillingu og á með-
an við kjósendur kjósum spillingu, þá ger-
ist ekki neitt. Þess vegna væri líka gaman að
svara þeirri spurning.“ Lilja kveðst búin að
taka ákvörðun um hvað hún ætlar að kjósa
að þessu sinni.
Kristín Releena
Jónsdóttir,
Akranesi
„Menntamál og
heilbrigðismálefni
ættu að vera efst á
baugi. Ég er komin
með hugmynd um
hvað ég mun kjósa
en er samt ekki al-
veg ákveðin.“
Sólveig Harðar-
dóttir, Borgar-
nesi
„Heilbrigðismálin
ættu að vera núm-
er eitt, tvö og þrjú
og svo eru málefni
ellilífeyrisþega og
öryrkja mjög brýn
málefni. Ég er búin
að ákveða hvað ég
ætla að kjósa en vil ekki gefa það neitt upp.“
Pálmi Blængs-
son, Borgarnesi
„Ég myndi segja að
efling lýðheilsu ætti
að vera ofarlega á
baugi. Það þarf að
leggja áherslu á að
bæta íþróttaaðstöðu
sem er partur af
því að bæta heilsu
og vellíðan.“ Pálmi
hefur ekki tekið ákvörðun um hvað hann ætl-
ar að kjósa.“
Snorri Kristleifs-
son, Akranesi
Efnahagsmál al-
mennt ættu að vera
ofarlega á baugi.
Það þarf að halda
áfram að greiða nið-
ur skuldir og vera
með aðhald í ríkis-
rekstri. Ég er ekki
búinn að ákveða hvað ég ætla að kjósa.“
María Kúld
Heimisdóttir,
Stykkishólmi
H e i l b r i g ð i s m á l
og menntamál, en
kennarinn í mér
verður að segja það.
Mér finnst brýnt
að auka fjárveit-
ingar í báða þessa
málaflokka. Ég hef
þó enga hugmynd
um hvað ég ætla að
kjósa.“
Pétur Krist-
insson, Stykkis-
hólmi
„Húsnæðismál fyrir
yngra og eldra fólk-
ið ætti að vera efst á
baugi og ég er bú-
inn að ákvaða hvað
ég mun kjósa.“
Stærstu áherslumálin fyrir kosningar, að mati Vestlendinga
Íslendingar ganga til alþingiskosninga laugardaginn 28. október, í annað sinn á réttu ári. Skessuhorni lék forvitni á að vita hvaða málefni ættu að vera efst á baugi
stjórnmálamanna á næstunni, að mati Vestlendinga. Hringt var í íbúa af handahófi, búsetta víðsvegar um Vesturland, og þeir beðnir að svara hvað þeir telji for-
gangsmálin. Einnig voru viðmælendur blaðsins spurðir hvort þeir væru búnir að ákveða hvað þeir ætli að kjósa eftir 18 daga.