Skessuhorn - 11.10.2017, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2017 7
STEFNUMÓT
matarframleiðenda & veitingasala
Þér er boðið á stefnumót matvælaframleiðenda og
veitingahúsa á Vesturlandi 19. október frá kl. 13—16
í Hjálmakletti í Borgarnesi.
upplifun á Vesturlandi.
svo eitthvað sé nefnt. Einnig fáum við góða gesti sem
19. OKTÓBER 2017
skráning & upplýsingar hjá signy@creatrix.is
SÓKNARÁÆTLUN
VESTURLANDS
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu
stendur fyrir sínum árlega Haust-
fagnaði dagana 20. og 21. október
næstkomandi. Verður dagskráin með
nokkuð hefðbundnu sniði, að sögn
Eyjólfs Ingva Bjarnasonar, formanns
FSD. „Samkvæmt venju verður
sviðaveisla á Laugum í Sælingsdal á
föstudagskvöldið, með hagyrðinga-
kvöldi og dansleik með hljómsveit-
inni Bland á eftir,“ segir Eyjólfur og
bætir því við að dúettinn Vandræða-
skáld frá Akureyri muni skemmta
gestum sviðaveislunnar.
„Á laugardeginum verður tíunda
Íslandsmeistaramótið í rúningi í
Reiðhöllinni í Búðdardal. Þar ætlum
við aðeins að bregða út af vananum.
Um miðbik keppninnar verður gert
hlé þar sem Sirkus Íslands mun koma
fram og skemmta gestum og gang-
andi. Samhliða rúningskeppninni
verða fyrirtæki á svæðinu sem munu
kynna sína þjónustu, vera með ýmis
tæki og tól til sýnis og fleira slíkt,“
segir hann. Dagskrá Haustfagnaðar
lýkur svo með stórdansleik í Dala-
búð að kvöldi laugardagsins þar sem
hljómsveitin Sóldögg mun leika fyr-
ir dansi. „Það er mikil eftirvænting
fyrir þessum hátíðarhöldum. Haust-
fagnaður er orðinn stórviðuburður
á svæðinu, þetta er nokkurs konar
árshátíð og uppskeruhátíð sauðfjár-
bænda í Dölum og nágrenni. Menn
láta ekki deigan síga þó móti blási á
öðrum vettvangi og alveg ástæða til
þess að lyfta sér upp eina kvöldstund
eða tvær,“ segir Eyjólfur að endingu.
Auk sviðaveislu, Íslandsmótsins í
rúningi og dansleikja eru á dagskrá
Haustfagnaðar bæði hrútasýning-
ar og grillveisla. Ítarlega dagskrá og
upplýsingar um miðapantanir má sjá
í auglýsingu hér í Skessuhorni vik-
unnar. kgk/ Ljósm. úr safni/sm
Haustfagnaður framundan í Dölum
„Árshátíð sauðfjárbænda
í Dölum og nágrenni“
Íslandsmeistaramótið í rúningi verður haldið í tíunda sinni á Haustfagnaði. Hér
má sjá tvo rúningsmenn reyna fyrir sér í keppninni á síðasta ári.
Fundur í kjördæmisráði VG í
Norðvesturkjördæmi fór fram á
Hótel Bjarkalundi í Reykhólasveit
á þriðjudag í liðinni viku. Þar var
samþykkt tillaga kjörnefndar um
framboðslista vegna komandi al-
þingiskosninga. Sömu tvö leiða
listann; Lilja Rafney Magnúsdótt-
ir alþingismaður og Bjarni Jónsson
fiskifræðingur, en sú breyting verð-
ur frá listanum fyrir ári að Rúnar
Gíslason í Borgarnesi færist upp í
þriðja sæti og Dagrún Ósk Jóns-
dóttir þjóðfræðingur á Hólmavík
er í fjórða sæti.
mm
Lilja Rafney og Bjarni leiða lista VG
„Til alls líkleg.“ Brugðið á leik eftir að listinn hafði verið kynntur. F.v. Bjarni, Lilja
Rafney, Rúnar og Dagrún Ósk.
Framsóknarflokkurinn í Norð-
vesturkjördæmi hélt á sunnudag-
inn tvöfalt kjördæmisþing á Bif-
röst í Borgarfirði. Þar var kosið
um hverjir skipa fimm efstu sæti á
framboðslista fyrir kosningarnar
28. október nk. Raðað var í önnur
sæti listans. Ásmundur Einar Daða-
son fv. alþingismaður í Borgarnesi
bauð sig einn fram í forystusætið og
var kjörinn á fundinum. Í öðru sæti
á listanum er Halla Signý Kristjáns-
dóttir fjármálastjóri í Bolungarvík, í
þriðja sæti Stefán Vagn Stefánsson
yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki,
í fjórða sæti Lilja Rannveig Sigur-
geirsdóttir háskólanemi í Bakka-
koti og fimmta sæti Guðveig Anna
Eyglóardóttir hótelstjóri í Borg-
arbyggð. Raðað var í önnur sæti
listans.
Mikil endurnýjun er því á fram-
boðslista flokksins frá síðustu kosn-
ingum. Flokkurinn átti á liðnu
kjörtímabili tvo þingmenn og
höfðu þeir báðir tilkynnt að þeir
gæfu ekki kost á sér til endurkjörs.
Elsa Lára Arnardóttir tilkynnti það
23. september á kjördæmisþingi en
Gunnar Bragi Sveinsson fv. odd-
viti flokksins í kjördæminu til átta
ára tilkynnti nýverið úrsögn sína úr
flokknum og hefur gengið til liðs
við Miðflokkinn. mm
Ásmundur og Halla Signý leiða
lista Framsóknarflokks í NV
Fimm efstu á lista Framsóknar í NV kjördæmi. F.v. Guðveig Anna, Ásmundur Einar,
Halla Signý, Lilja Rannveig og Stefán Vagn.