Skessuhorn


Skessuhorn - 11.10.2017, Side 10

Skessuhorn - 11.10.2017, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 201710 Síðastliðinn föstudagsmorgun hófu landeigendur að Hraunsási II í Hálsasveit innheimtu bílastæðagjalds við Hraunfossa. Eins og fram kom í fréttum Skessuhorns í sumar ætluðu landeigendur að hefja gjaldtökuna 1. júlí síðastliðinn en frá því var horf- ið enda var og er slík innheimta tal- in stangast á við náttúruverndarlög. Gjaldtaka inn á friðlýst svæði krefst leyfis hlutaðeigandi stofnunar, sem er Umhverfisstofnun. Á föstudags- morgun hafði verið sett upp skilti við afleggjarann inn á svæðið og erlend- ur starfsmaður frá landeigendum hóf að rukka ferðafólk um bílastæðagjald frá 1500 krónum fyrir fólksbíl og upp í 6000 krónur fyrir stærri hópferða- bíla. Þeir standa að baki innheimtunni Eins og kom fram í frétt Skessuhorns í lok júní í sumar, þegar upphaflega stóð til að hefja gjaldtökuna, er mark- mið eigenda landsins að bæta aðstöðu á bílastæðum. Fram til þessa hafa þeir þó ekkert fjármagn lagt í fram- kvæmdir við bílastæðin en þær alfarið verið kostaðar af Ríkissjóði í gegnum Vegagerðina og Umhverfisstofnun. Eigendur jarðarhlutans Hraunsáss II eru þrír þekktir fjárfestar sem víða hafa komið við í viðskiptalífinu á liðn- um árum. Þetta eru þeir Lárus Blön- dal hrl. og forseti ÍSÍ, Guðmundur A Birgisson sem kenndur er við Núpa í Ölfusi ásamt Aðalsteini Karlssyni. Þremenningarnir keyptu Hraunsás II fyrir nokkrum árum og liggur þessi hluti jarðarinnar að fossunum og nær m.a. yfir um 90% af núverandi bíla- stæðum. Fyrirtækið H-fossar ehf. leigir land Hraunfossa II af þeim Lár- usi, Guðmundi og Aðalsteini. H-foss- ar ehf. eru í eigu viðskiptafélaganna Guðlaugs Magnússonar og Kristjáns Guðlaugssonar og starfar Hödd Vil- hjálmsdóttir í umboði þeirra sem fjöl- miðlafulltrúi. Hödd staðhæfði í sam- tali við Skessuhorn síðastliðinn föstu- dag að nú verði innheimtu bílastæða- gjalds haldið til streitu við Hraun- fossa, enda túlki Eva B Helgadótt- ir lögmaður H-fossa að því sé ekk- ert til fyrirstöðu. Þeir Guðlaugur og Kristján voru staddir við Hraunfossa á föstudaginn en vildu ekki ræða við blaðamann Skessuhorns þegar eft- ir því var leitað. Þess má geta að þeir Guðlaugur og Kristján eru jafnframt nýir eigendur að veitingastaðnum og versluninni Baulunni í Stafholtstung- um, keyptu Langaholt ehf. rekstrar- félag staðarins, og hafa rekið frá 1. september síðastliðnum. Ekki í þökk heimamanna Nokkur bílastæðanna við Hraunfossa eru í eigu annarra en fyrrgreindra þremenninga og leigð af Snorra Jó- hannessyni og fjölskyldu hans sem reka m.a. veitingastað við fossana og sjá um hreinlætismál á salernum á svæðinu. Viðskipti á veitingastaðn- um snarminnkuðu strax á föstudag- inn enda sneru margir ferðamenn frá þegar þeim var gert að greiða fyr- ir bílastæði. Snorri vill að það komi skýrt fram að gjaldtaka þessi er ekki á hans vegum og þar að auki í algjörri óþökk hans og fjölskyldunnar. Hann segir lítinn vafa leika á að gjaldheimt- an standist ekki lög. Hann hafi því strax á föstudagsmorgun kært gjald- tökuna til lögreglu og haft samband við Vegagerðina, sem brást skjótt við, fór á staðinn og tók niður skilti sem upplýsti um að bílastæðin væru gjaldskyld. Vegagerðin og Umhverf- isstofnun fóru fram á að lögregla myndi bregðast við og stöðva gjald- heimtuna enda stæðist hún ekki lög. Erindi þar að lútandi var samdæg- urs sent ríkislögreglustjóra, sem brást ekki við. Gjaldheimtan hélt því áfram næstu fjóra daga eða þar til síðdegis á mánudag þegar þær aðstæður höfðu skapast á vettvangi að Lögreglan á Vesturlandi sá ástæðu til að bregð- ast við og stöðva innheimtuaðgerðir í þágu almannaheillar. Mikil slysahætta skapaðist „Það er ákvörðun lögreglustjórans á Vesturlandi að verða við beiðni Vega- gerðarinnar,“ sagði í tilkynningu frá embættinu síðastliðinn mánudag. „Þá telur lögreglustjóri að aðstæður séu til þess fallnar að skapa verulega hættu við þjóðveginn svo ekki verði við unað,“ en þar er vísað til þess að byrjað var að stöðva bíla á þjóðveg- inum, jafnvel hópferðabíla, og gest- ir látnir ganga þaðan yfir veginn og að fossunum til að ekki þyrfti að greiða í bílastæði. Ein af meðfylgj- andi myndum sýnir einmitt hvar búið var að stöðva hópferðabíl í vegkanti þjóðvegarins og hleypa tugum ferða- manna út. Blindhæðir eru til beggja átta og því mat lögregla aðstæður þannig að slysahætta væri mikil. Friðlýst svæði og óleyfileg hindrun Í tilkynningu sem lögreglan sendi frá sér síðdegis á mánudaginn segir að gjaldtaka á vegum einkaaðila hafi farið fram á vegi að Hraunfossum og Barnafossi í Hvíta í Borgarfirði en fossarnir eru friðlýstir sem náttúru- vætti, sbr. auglýsingu nr. 410/1987 sem gefin var út í menntamálaráðu- neytinu 2. september 1987 og birt í B deild Stjórnartíðinda. „Vegagerðin hefur komið því á framfæri við lög- reglu, að vegur innan friðlýsta svæð- isins sé skráður í vegaskrá skv. 1. mgr. 7. gr. vegalaga nr. 80/2007, beri núm- erið 522-01 og sé tengivegur skv. b- lið 2. mgr. 8. gr. vegalaga. Vegagerð- in vísar til þess að þjóðvegir séu opn- ir almennri umferð skv. 1. mgr. 8. gr. vegalaga og að Vegagerðin, sem veghaldari umrædds vegar skv. 13. gr. vegalaga, hafi ekki veitt heimild til gjaldtöku fyrir notkun á þessum vegi.“ Í tilkynningu lögreglu sagði jafn- framt að Vegagerðin vísi til þess að gjaldtaka, án heimildar skv. 17. gr. vegalaga, fyrir notkun vegarins feli í sér óleyfilega hindrun á umferð um þjóðveg. „Vegagerðin hefur far- ið þess á leit að lögreglan gefi þeim sem standa fyrir slíkri gjaldtöku af vegfarendum fyrirmæli um að láta af þeirri háttsemi og framfylgi þeim fyrirmælum. Samkvæmt 1. mgr. 59. gr. vegalaga varða brot á lögunum og reglugerðum, sem settar verða samkvæmt þeim, sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.“ Endurtekinn skaði Þetta er í annað skipti á árinu sem umræða um meinta ólöglega inn- heimtu bílastæðagjalds við Hraun- fossa kemst í hámæli. Ljóst er að slíkar aðgerðir valda miklum bein- um og óbeinum skaða fyrir orðspor ferðaþjónustu. Ekki einvörðungu að um skaða sé að ræða fyrir starfsemi við fossana, heldur um allt héraðið. Undir þetta taka fjölmargir starfs- menn í ferðaþjónustufyrirtækjum í héraði sem Skessuhorn hefur rætt við á liðnum dögum. mm Fjögurra daga meintri ólögmætri gjaldtöku lauk á mánudaginn Orðspor ferðaþjónustu í héraðinu laskað eftir atvik síðustu daga Gljúfrið við Barnafoss og umhverfi þess í haustlitunum um helgina. Ljósm. Þórunn Reykdal. Margir kenndu í brjósti um unga manninn frá Litháen sem fékk það starf hjá H-Fossum ehf. að innheimta bílastæðagjaldið. Samkvæmt heimildum Skessuhorns varð hann sjálfur manna fegnastur síðastliðinn mánudag þegar lögregla stöðvaði innheimtuna. Lögregla ræðir hér við starfsmann H-Fossa á bílastæðunum við Hraunfossa. Lögregla taldi á mánudaginn að augljós slysahætta hefði skapast þar sem bílum var lagt utan bílastæðanna, á þjóðveginn. Lögreglustjóri lét síðdegis þann dag stöðva innheimtu á bílastæðin í þágu almannaheilla. Þetta skilti fjarlægði Vegagerðin strax á föstudagsmorgun, eftir að það hafði um morguninn verið setta á vegvísi. Gjaldskrá H-Fossa ehf. Starfsmaður H-Fossa ehf. hóf inn- heimtu bílastæðagjalds á föstudags- morgun.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.