Skessuhorn


Skessuhorn - 11.10.2017, Síða 17

Skessuhorn - 11.10.2017, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2017 17 Sauðamessa var haldin fjórtánda sinni í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Það var haustlegt og fallegt um að lit- ast í bænum. Ekki skemmti fyrir að veður var milt og hékk hann þurr þar til dagskránni í Skallagrímsgarði var um það bil að ljúka. Dagskráin hófst með sauðaspinning með Gunnu Dan í íþróttahúsinu að morgni dags, en síð- an tók við markaðsstemning í Hjálm- akletti. Klukkan 14 hófst síðan dagskrá í Skallagrímsgarði með fjölmörgum skemmtiatriðum. Tónlistarskóli Borg- arfjarðar flutti tvö atriði úr söngleikn- um Móglí, sem skólinn færir á fjalirnar í vetur. Hrönn Jónsdóttir frá Lundi og Sigursteinn Sigurðsson Mýramaður fluttu hátíðarræður og Heimir Klem- enzson lék nokkur ljúfa tóna á píanó- ið. Blásið var til keppni í lærakapp- áti þar sem fjórir vaskir íbúar Borgar- ness spreyttu sig. Fengu keppendur þrjár mínútur til að borða eins mikið lambakjöt og þeir gátu. Fór svo að lok- um að Halldór Óli Gunnarsson reynd- ist hlutskarpastur. Hámaði hann í sig tæplega hálft kíló af kjöti, enda kvaðst hann hvorki hafa fengið vott né þurrt síðan í hádeginu. Veittar voru viðurkenningar, lög spiluð og sungin. Hljómsveitin Stuðla- bandið sló upp fjölskyldudansleik í Hjálmakletti síðdegis og sló síðan botninn í dagskrána með Sauðamessu- balli fyrir foreldrana að kvöldi. kgk Sauðamessa sveipuð haustsins blæ Gestir Sauðamessu fylgjast ánægðir með dagskránni í Skallagríms- garði. Það er hvergi betra að vera en í fanginu á afa.Spilað og sungið í Skallagrímsgarði. Strákar úr 4. flokki Skallagríms í fótbolta seldu vöfflur til styrktar flokknum. Ísgerðarmenn frá Ísleifi heppna bjuggu til ís með fljótandi köfnunarefni á markaðnum í Hjálmakletti. Krakkar úr Tónlistarskóla Borgarfjarðar flytja atriði úr söng- leiknum Móglí. Börnin fylgjast hugfangin með Móglí. Það var hart barist í lærakappátinu. Að lokum fór svo að Halldór Óli Gunnarsson, sem er næst í mynd til vinstri, bar sigur úr býtum. Hann hafði fastað frá því á hádegi. Atriði tónlistarskólans mæltist afar vel fyrir meðal barnanna. Þessi ungi maður fékk verðlaun fyrir fallegustu lopaflíkina. Heimir Klemenzson lék nokkur ljúf lög á píanóið. Kosningar eru í nánd og frambjóð- endur sýndu sig og sáu aðra. Hér eru Sjálfstæðis- mennirnir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Kristján Þór Júlí- usson og Haraldur Benediktsson.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.