Skessuhorn


Skessuhorn - 11.10.2017, Síða 26

Skessuhorn - 11.10.2017, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 201726 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Auk þess birtum við lausn á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessuhorni. Alls bárust 65 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Mannfólk.“ Vinningshafi er Birgir Óskarsson, Asparfelli 6, 111 Reykjavík. Á útlim Tannar Fjári Skjóla Næði Ágjöf Kvakar Álegg Skinn Brakaði Stífur Bunga Mjöður Hellti Glóra Eyða Korn Rimi Áhald Frelsi Gruna 4 Snudd Mælir Tengi Rótar Tíndi Góður Skel Spann Kanna Pota Angaði Neita Hælir Bið Leikni Afl Bætir Eyja Litur Hvíli 2 7 Kúgun Gumi For Far- angur Tók Sam- þykkir Fák Málmur Sefar Ójafna Viðmót Egna An Spil Hreyf- ing Líka Akkur Þjálfa Ósvikið Tölur Frá Leik- fang Álit Stallur Hár Ellegar Merki Fugl Temur Amboð 1 Dýpi Napur 5 Vantrú 8 Ryk Hvílum Til Rödd Fyrir stundu 3 Ís Féll Niður Hæla Fyrr Kerra Svertir Gestur Svalla Áa Góðar 6 Reim Gól Á fæti Skipar Flan Kaðal Sk.st. Nuddar Dropi Óreiða Bardagi 1 2 3 4 5 6 7 8 F J Ö L S K Y L D A Ö G U N O L Í A N F U N I N A T N I U R T L A G A S T M R E I L L I N D I E F A L A U S T D A L U R L Ð F A R P U N T D R Ó G Á M U H A L A U N T Ó E T R Ú K L Ó D U L A A A R V A Ð A L Ó U M D O R Ð O K U L L L Á R R O F I K R Í A R V A R Ó N N U S A V A L A K A F E I R A M A N A R A T A R Ð K A N N S K Ö R U N G J Ó K M E I N Á F E N G R A Ð A M I N N I R U N N A R A K A R N M A G N A R T M A N N F Ó L K L A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I Vísnahorn Nú eru víst að nálgast kosningar og trúlega rétt að tala varlega um póli- tíkina. Maður veit aldrei hvenær ógætileg orð koma manni í koll. Trúlega réttast að halla sér að klerkastéttinni núna. Það ætti aldrei að gera manni annað en gott en Jón Rafnsson orti eftir einn fróman klerk: Dyggðir flestar flýði hann - fáir prestinn grétu - alls kyns lesti iðka vann eftir bestu getu. Kirkjan okkar ræður til sín þjóna að undan- genginni menntun í mannkærleika og öðrum nauðsynlegum fræðum. Að sjálfsögðu getur þó orðið skoðanaágreiningur við sóknarbörn- in séu þau ekki svo kærleiksrík sem himnalóðs- arnir en þá getur verið þörf á sáttaumleitunum að ofan eða semsagt frá biskupnum blessuðum eða blessaðri eins og á stendur nú til dags. Með- an stóð á einhverjum tjáskiptum milli klerks og sóknarbarna kom upp sú hugmynd að klerkur yrði sendur sem farandprestur til Evrópu. Þá orti séra Hjálmar Jónsson: Ég hef á prenti pottþétt gögn að prestum sé aldrei sparkað en séu þeir fúlir má salta þá ögn og senda á Evrópumarkað. Kannske mætti koma megininntaki trúarinn- ar fyrir í þessari vísu Hjörleifs Jónssonar á Gils- bakka: Banni mæðu- og tregatár töpuð gæði að finna. Reyndu að græða særðra sár svo þau blæði minna. Þiðrik Þorsteinsson fyrrum bóndi að Háafelli var um margt merkilegur maður og umtalaður á sinni tíð. Átti oft í útistöðum við yfirvöld bæði veraldleg og kirkjunnar. Afburða sláttumaður og göngumaður með eindæmum. Fór líklega seinnihluta vetrar, trúlega á hjarni, gangandi frá Háafelli vestur í Stykkishólm eftir meðulum og til baka aftur á 25 tímum en þá var þó það nærri honum gengið að hann sendi strák með með- ulin nokkrar bæjarleiðir sem eftir voru og hafði hægt um sig næstu tvo daga. Að Þiðrik látn- um orti Guðjón á Hermundarstöðum og óvíst hvort líkræðan hefur verið betri: Nú er Þiðrik fallinn frá, fjöldans umtalaður, af því hann var aldrei sá undansláttarmaður. Hirti ekki um þó hærri spil hrykkju af orðaglettum, samborgurum sagði til syndanna á blettum. Sumra margt í fari fann fjarri lofi þráðu; flesta meðalmennsku hann mældi á lægstu gráðu. Átök skildi ungur tvenn, afreks gönguhraður, vitra orð þar vitna enn: víkings sláttumaður. Unni frelsi, engra þræll, efna varðist sköðum, einn á meðal sigursæll i sauðabænda röðum. Gæðing mörgum skellti á skeið, skeytti lítt um fetið, eftir flugtaks ævireið er hans víða getið. Væri Þiðrik við vín sem stundum bar við á mannfundum réðst hann gjarnan á heldri menn, sem töldust vera, með óbótaskömmum. Eitt sinn kvað svo rammt að látum hans í Þver- árrétt að til orða kom að binda hann en þá segir Daníel nágranni hans á Fróðastöðum: ,,Ég vil ekki að einn af betri bændum minnar sveitar sé bundinn“. Ekki dugði það alveg til að drepa hugmyndina en þá tók Daníel upp vasahníf og segir: ,,Ef þið bindið Þiðrik fer þessi á bönd- in“. Var málið þar með úr sögunni. Hvort sem það var nú í þetta skipti eða annað réðst Þiðrik líka á Daníel með óbótaskömmum. Þegar hann þurfti andhlé segir Daníel sem var manna ró- legastur; „Ef þú værir ekki gestrisinn Þiðrik og góður sláttumaður veit ég ekki hvað væri hægt að segja gott um þig“. Allavega virðist Þiðrik hafa verið áhugamaður og hefði vafalaust get- að tekið sér í munn vísu Aðalbjörns Péturssonar frá Hafnardal: Að vilja er vissasta leiðin. Að vona er starfsorkan hálf. Að efast er hörmungaheiðin. Að hopa er glötunin sjálf. Löngum verður það svo að eitthvað verður okkur mótdrægt í lífinu öðru hvoru enda mynd- um við annars ekki kunna að meta hið jákvæða. Einar Andrésson í Bólu lýsti þessu svo: Hörð þó smíði höldum gjöld harma stríði sægur öll um síðir kvölda köld krapahríðardægur. Jón Mýrdal orti alllangt kvæði um prestinn, gestinn, óskírða barnið og hvalrekann en þar er sagt frá presti sem neitaði að fara og skíra nýfætt barn en varð svo æstur til farar þegar hann frétti af hvalreka þar sem kirkja hans átti ítak. Hér er aðeins gripið ofaní þar sem bóndi er að reyna að koma presti af stað með þeim orðum að barn- ið sé veikburða og kona hans óski þess að það verði skírt en prestur svarar: Verður ill. Þess von til er. Veika barnið ef að fer herrans til i himininn. Hún er skárri gikkurinn. Ykkur hef ég einatt bent, uppi i stólnum sveittur kennt marga ljósa lærdómsgrein: likt er það og berja i stein. Glæpaveginn gangið þið, gleymið öllum kristnum sið, Að helgum dómum gerið gys, gangið svo til helvítis. Já það er greinilega ekki átakalaust að vera prestur og hefur trúlega aldrei verið. Einhvern tímann var ort um prest á Skógarströndinni: Skógstrendingum fénast flest Fer það eftir vonum. Gaf oss Drottinn Guðmund prest -en gjalda verður honum. Vigfús Runólfsson sem kallaður var læknir þó ómenntaður væri, enda fékkst hann nokkuð við lækningar og þótti takast vel, var einnig ágætur hagyrðingur og orti um Ara á Sýruparti: Flóðakisu fram togar, forðast slysahnikki, og við bisar ýsurnar Ari á Mysustykki. Gerðist ys hjá gikkjunum, þeir góluðu af slysahnykkjunum, þar var ris á þykkjunum þeirra á Mysustykkjunum. Þessi blessuð auðssöfnun hefur nú geng- ið mönnum misjafnlega enda fáum við víst öll álíka langa gröf að lokum og gott að hafa í huga vísur Einars Árnasonar frá Finnsstöðum föður Höskuldar í Vatnshorni: Mörgum gerist lífið leitt þótt lánist auð sér skapa. Best er að eiga ekki neitt svo engu sé að tapa. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Best er að eiga ekki neitt - svo engu sé að tapa

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.