Skessuhorn - 11.10.2017, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2017 27
Pennagrein Pennagrein
Ásmundur Einar, nýr oddviti fram-
sólnar í NV kjördæmi, ritaði grein í
síðasta Skessuhorn. Nú um leið og
hann er boðinn velkomin aftur í póli-
tík, þá er ástæða að nefna að fjarvera
hans frá henni var ekki svo löng að
hann geti ekki þurft að gera betur í
umræðu um þann alvarlega vanda
sem sauðfjárbændur glíma við.
Engar aðgerðir hafa verið
samþykktar
Það ætti okkur Ásmundi báðum að
vera umhugsunarefni að nokkrum
mánuðum eftir samþykkt á 10 ára
samningum við bændur – að þessi al-
varlega staða sé komin upp hjá sauð-
fjárbændum. Þá skulum við ekki
heldur gleyma áhrifum af tollasamn-
ingi sem ráðherrar Framsóknar gerðu
að eigin frumkvæði við ESB, íslensk-
an landbúnað í heild sinni og þær af-
leiðingar hafa stutt aðgerðir Evrópu-
sambandsins vegna Úkraníudeilunn-
ar. Allt undir forustu Framsóknar.
Það er samt óhjákvæmilegt að
nefna, vegna greinar Ásmundar, að
engar tillögur fráfarandi landbúnað-
arráðherra voru samþykktar. Hann
þekkti þær tillögur vel því sannar-
lega snertu þær verulega hans hag,
og okkar allra sem búa í sveitum. Ég
mótmælti strax hugmyndum sitjandi
landbúnaðarráðherra og setti fram
málefnaleg rök gegn þeim, sem ég
rek ekki frekar hér.
Höfum ekki langan tíma
Ég tel að við höfum aðeins þenn-
an vetur til að vinna þannig að mál-
um að sauðfjárbændum sé sköpuð
umgjörð til áframhaldandi búskapar.
Strax eftir kosningar mun Sjáflstæð-
isflokkurinn gera að forgangsmáli að
unnið verði með bændum að aðgerð-
um sem til lengri tíma bæta afkomu
þeirra og til skemmri tíma að takast á
við vanda dagsins í dag.
Forsætisráðherra og ráðherra
byggðmála hafa undanfarna daga
reynt að fá samþykki fyrir neyðarað-
gerð fyrir sauðfjárbændur. Sú aðgerð
er fyrst og fremst til að gera slátur-
húsum mögulegt að hækka aftur verð
til bænda. Það er eina aðgerðin sem
dugar, fyrir alla bændur. Þar reynir á
fjármálaráðherra Viðreisnar að styðja
þær tillögur, enda miða þær að því að
nota varasjóð ríkisins.
Sameinum hagsmuni
sauðfjárbænda,
sundrum þeim ekki
Það er ekki einfalt að bregðast við.
Forgangsmál er að sauðfjárbændur
hafi sameiginlega hagsmuni. Með nú-
verandi umhverfi eru sauðfjárbænd-
ur tvístraður og ósamstæður hópur.
Takist það ekki er ekki mögulegt að
endurreisa afkomu bænda í sauðfjár-
rækt. Til að þetta sé hægt þarf ekki
að ganga gegn hagsmunum einstakra
hópa – eins og núverandi samningar
snúast að einhverju leyti um. En það
þarf kjark til að stokka upp núverandi
umhverfi og leggja út í aðgerðir með
skýrum markmiðum.
Svarið er ekki að stefna að stór-
felldri fækkun fjár – en frekar að
stefna að meiri verðmætum, vöru-
þróun og hagkvæmari og heilbrigð-
ara umhverfi – í rekstri sláturhúsa,
verkaskiptingu þeirra og starfsum-
hverfi bænda. Ásamt fleiri stoðum
undir byggð og búskap. En um það
ræðum við Sjálfstæðismenn nú á vel
sóttum fundum um byggða- og land-
búnaðarmál.
Pólitík
Ásmundur verður líka að kannast við
eigin verk og ábyrgð á stöðu bænda.
Svo lengi var hann ekki fyrir utan
pólitík að hann geti sent allt á núver-
andi ríkisstjórnarflokka. Aðrir Fram-
sóknarmenn en hann hafa líka reynt
að halda því fram að Sjáflstæðis-
flokkurinn hafi afgreitt frumvarp um
breytingar á starfsumhverfi mjólkur-
iðnaðarins, það er ekki rétt og hrein
ósannindi. Gerum pólitíkina ekki
verri en hún þarf að vera.
Ásmundur gerir því skóna í grein
sinni að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
samið um að fórna landbúnaðinum.
Ekki frekar en við bárum ábyrgð á
vali Framsóknarflokksins á vali ráð-
herra í ríkisstjórn 2013, þá ber Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki ábyrgð á vali
Viðreisnar á ráðherrum sínum. Auð-
vitað var ekki samið um að fórna
landbúnaði líkt og Ásmundur reynir
að halda fram, það veit hann vel.
Ég er hef aldrei dulið þá skoðun
mína hve ósáttur ég var að láta svo
mikilvægt ráðuneyti til Viðreisnar
sem sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneytið er. En engin varanlegur
skaði var unninn á þessum 8 mánuð-
um. Reyndar hafa sjaldan verið meiri
fjárfestingar í landbúnaði en sl. mán-
uði.
En það ætti okkur öllum að vera
umhugsunarefni hvers vegna hægt er
að nota fjöregg atvinnugreina eins og
sjávarútveg og landbúnað til að afla
sér pólitískra stundar vinsælda. Það
gerði sitjandi sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra og reyndi að klæða
það í hagsmunagæslu fyrir neytendur
– þegar allt eins mætti segja að ver-
ið var að verja hagsmuni þeirra sem
fjárfest höfðu í stórum verslanasam-
steypum.
Stjórnarmyndunin í jan síðast-
liðnum var eftir lagnvarandi stjórn-
arkreppu. Veruleikinn var að eng-
in vildi vinna með Framsókn vegna
innanbúðarvanda, nema Sjálfstæðis-
flokkurinn.
VG og aðrir flokkar höfðu ekki
kjark og getu til að setjast í ríkis-
stjórn. Já ég finn vel fyrir því að Við-
reisn var falið sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytið. Það reyna póli-
tískir andstæðingar okkar að nota
sér núna. Sjálfstæðisflokkurinn hefði
aldrei samþykkt að veikja íslenskan
landbúnað.
Framsóknaflokkurinn mætti fá gott
frí frá því að leiða mál landbúnaðar-
ins, atvinnugreinin þolir varla meira
af svo góðu í nánustu framtíð.
Framtíðin
Til lengri tíma er nauðsynlegt að
vinna í samstarfi við bændur að lang-
tíma aðgerðum. Við Óli Björn Kára-
son alþingismaður, leggjum einmitt
fram á fundum okkar um byggða- og
landbúnaðarmál hugmyndir að efl-
ingu sveitanna. En frá vanda sauð-
fjárbænda hleypur Sjálfstæðisflokk-
urinn ekki. Þau er forgangsmál – fyr-
ir og eftir kosningar.
Haraldur Benediktsson
Höf. er oddviti Sjálfstæðisflokksins í
NV kjördæmi.
Það er forgangsmál fyrir og eftir kosningar
að bæta hag sauðfjárbænda
Pennagrein
Bændum er nóg boðið. Þeir eru ugg-
andi um framtíð greinarinnar. Bænd-
ur gera sér grein fyrir að lengra verð-
ur ekki haldið á sömu braut, átak og
breytingar séu nauðsynlegar. Þetta
kom m.a. berlega fram á gríðarlega
fjölmennum fundi á Blönduósi fyrir
nokkrum vikum. Þangað flykktust
bændur, nánast af öllu landinu.
Ábyrgð á byggðaþróun
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins nefndi
þar í ræðu sinni að það væri bara
hreinlega hluti af byggðastefnu að
koma nú til liðs við bændur, rétta
þeim hjálparhönd þannig að þeir
gætu enn hjarað við störf sín und-
ir eða við fátækramörk eins og fyr-
ir liggur. Framangreindu sjónarmiði
er ég algjörlega ósammála. Það er
í hæsta máta ósanngjarnt að nefna
bændur og byggðaþróun í þessu
samhengi. Staðreyndin er auðvi-
tað sú að engin raunveruleg byggða-
stefna er til í landinu hvað sem yfir-
lýsingum líður, stjórnvöld láta reka á
reiðanum.
Það er nauðsynlegt að búa þann-
ig um hnútana að bændur geti með
sóma stundað sín mikilvægu störf
sem helstu matvælaframleiðendur
landsins um leið og þeir eru varð-
menn náttúrunnar, oft útverðir á sín-
um svæðum.
Tengsl við
framleiðendur
Bændur eru furðu lostnir yfir litlum
árangri afurðafyrirtækja í markaðs-
málum og telja að þar ríki algjör
stöðnun gagnvart þörfum neytenda,
bæði nýrrar íslenskrar kynslóðar og
ríflega milljón ferðamönnum sem
skolað hefur hér á land undanfar-
in ár. Undir þetta tek ég og tel að
markaðsfólk landbúnaðarins ætti að
líta til annarra útflutningsaðila á Ís-
landi og draga af því lærdóm, t.d.
sjávarútvegsins. Það vekur jafnframt
furðu hversu langt bil er á milli fram-
leiðenda, þ.e. bænda og þeirra sem
sjá um sölu- og markaðsmál þeirra.
Þessir aðilar virðast hreinlega ekki
tala sama mál.
Eflum frumkvæði og
þekkingu
Ungir bændur hugsa með upplýst-
um hætti enda eru þeir almennt vel
menntaðir og víðsýnir. Í ljósi þess að
Samfylkingin talar mjög fyrir meira
frelsi til handa bændum í markaðs-
og sölumálum, þá er það heillandi
tilhugsun að menntastofnanir taki
saman höndum og liðsinni bændum í
þessu efni. Ein hugmyndin væri sú að
Háskólarnir á Bifröst með styrkleika
á viðskiptasviði, Landbúnaðarhá-
skólinn á Hvanneyri með gæðamál
sem áhersluþátt og Háskólinn á Hól-
um með sjónarhorn ferðaþjónustu
tækju sameiginlega á þessu og stór-
efldu sérnám fyrir bændur í sölu-,
gæða- og markaðsmálum.
Framsóknarflokkarnir
þrír
Viðreisn hefur boðað áherslubreyt-
ingar í landbúnaði og lýst því yfir að
nú standi til átak til framtíðar og að
hagur bænda muni vænkast til muna.
Það er holur hljómur í þeirri orð-
ræðu og ekki traustvekjandi gagnvart
stéttinni. Flokkurinn var enda í vond-
um félagsskap í ríkisstjórn með höf-
uðflokki sem ber höfuðábyrgð á nú-
verandi ástandi og það eru öfl í land-
inu sem hagnast á óbreyttu prangi í
ónýtu gjaldmiðilsumhverfi. Kerfis-
flokkarnir þrír munu því miður litlu
breyta og á meðan horfum við upp á
merka atvinnustétt bænda búa áfram
við ósæmandi kjör. Flokkur fólksins
ætlar síðan að gera allt fyrir alla, eins
trúðverðugt og það
er. Sama á líklega
við um Miðflokk-
inn sem sjálfsagt
leitar fanga með-
al bænda. Ætlar
bændastéttin virkilega aftur og enn
að veðja á rangan hest og viðhalda
með því ómögulegu hlutskipti sínu?
Sýn jafnaðarmanna
Jafnaðarmenn hafa áratugum sam-
an talað fyrir breytingum í íslenskum
landbúnaði með það að markmiði
að efla hag bændastéttarinnar. Þær
umræður má rekja allt aftur til daga
þess merka stjórnmálamanns, Gylfa
Þ. Gíslasonar. Ef við hefðum stigið
gæfuspor á þeim tíma, þá væri staðan
önnur en í dag.
Samfylkingin með
bændum
Samfylkingin styður vitaskuld ís-
lenska bændur og talar fyrir auknu
frelsi þeirra til framleiðsla á vand-
aðri matvöru. Ljóst er að til fram-
tíðar er nauðsynlegt að líta yfir þetta
framleiðslusvið með þarfir hins ís-
lenska markaðar fyrst og fremst í
huga. Möguleikar til útflutnings eru
fyrir hendi en sjálfbærni er mark-
mið sem nauðsynlegt er að vinna að
og það er ekki óraunhæft. Þetta vita
bændur og eru í hjarta sínu sammála.
Samfylkingin – jafnaðarmannaflokk-
ur Íslands skilur viðfangsefnið og er
reiðubúin til samstarfs við bænd-
ur um traustari og betri hag í þágu
stéttarinnar í heild og fyrir almenn-
ing í landinu.
Guðjón S Brjánsson
Höf. skipar efsta sæti á lista Sam-
fylkingarinnar í NV kjördæmi.
Kjöt á beinin
Ungar konur eru lykillinn að blóm-
legri byggð, það er náttúrulög-
mál. Þar sem ungar konur velja sér
að búa og eiga börnin sín, þar dafn-
ar lífið, svo einfalt er það. Því ætti að
vera kappsmál að hvetja ungar kon-
ur til þess að gefa sig að stefnumótun
vítt og breitt í samfélaginu. Enda vita
ungar konur manna best hvað þarf til
að skapa frjósaman jarðveg fyrir ungt
fólk og skapandi framtíð á landinu
okkar góða.
Grunnþarfirnar
Frumskilyrði á borð við mæðravernd,
fæðingarhjálp og umönnun barna er
augljós byrjun. Í því felst grundvall-
aröryggi og þó svo foreldrar í dag
hjálpist að heima fyrir og vinni báðir
úti, þá munu konur alltaf leita þangað
sem þær finna til öryggis með eigið líf
og barna sinna.
Fjölbreytt framboð starfa til að
afla sér lífsviðurværis og um leið
njóta starfsævinnar á eigin forsend-
um og í takt við eigin löngun og
áhuga, er annað meginverkefni. Hér
þarf að gera meira en bara „skaffa
kvennastörf“, enda afleitt að fram-
tíðaruppbygging atvinnulífs sé gerð
á forsendum kynjaskipts vinnumark-
aðar. Konur eru duglegar við að afla
sér menntunar og verðmætasköp-
un framtíðarinnar mun í síauknum
mæli byggja á sterkum innviðum til
að styðja við eigið frumkvæði. Fram-
tíðin mun síður þurfa að reiða sig á
staðbundin náttúrugæði, en þeim
mun frekar á góðar tengingar við
umheiminn. Hugvit er nefnilega
hreyfanleg auðlind sem nýta má
hvar og hvenær sem er og ólíkt öðr-
um náttúruauðlindum þá vex það
þegar af er tekið. Aðstæður til að
nýta eigin þekkingu og hugvit eru
þannig leiðin að skapandi framtíð.
Búsetukostir
Húsnæði er frumþörf sem þarf að
vera til staðar til að ungt fólk sjái sér
framtíð í að stofna heimili. Við ætt-
um að horfa til nágrannalandanna,
t.d. Noregs, varðandi húsnæðisupp-
byggingu í vaxandi byggðum. Það er
vissulega gott að ríki og sveitarfélög
skuli nú leggja til stofnframlög til ný-
bygginga og uppbyggingar á leigu-
húsnæði, en því miður skilar það sér
ekki með nógu öflugum hætti út fyr-
ir höfuðborgarsvæðið. Nægir þar að
nefna að Bjarg íbúðafélag ASÍ kem-
ur ekki að verkefnum á landsbyggð-
inni. Bein ívilnun þolinmóðra fjár-
festa til svæða sem þurfa mjög á hús-
næði að halda til að styðja við at-
vinnuuppbyggingu ætti að vera al-
gjört forgangsmál. Það húsnæði má
ekki kalla á þunga fjárfestingu af hálfu
unga fólksins, eða langtímabindingu
á formi húsnæðiseignar, enda getur
söluvænleiki húseigna sett stórt strik
í reikninginn þegar ungt fólk velt-
ir því fyrir sér að freista gæfunnar
úti á landi. Hér þarf sértæka nálgun
sem byggir undir vöxt bæjarfélaga og
uppbyggingu sem helst í hendur við
breytingar í atvinnulífinu.
Ungar konur eiga og þurfa að
koma að ákvarðanatöku á öllum stig-
um þjóðlífsins. Þær eru lykillinn að
framtíð lands og bæja. Hlustum á
þær og kjósum þær á þing, við mun-
um ekki sjá eftir því.
Guðlaug Kristjánsdóttir, Kristín Sig-
urgeirsdóttir, Elín Matthildur
Kristinsdóttir
Höf. skipa þrjú efstu sæti Bjartrar
framtíðar í Norðvesturkjördæmi í
Alþingiskosningunum 2017
Ungar konur
ráða byggð
KOSNINGAR2017