Skessuhorn


Skessuhorn - 09.05.2018, Síða 6

Skessuhorn - 09.05.2018, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 20186 Framhalds- skólakennar- ar samþykktu LANDIÐ: Félagsmenn í Félagi framhalds- skólakennara og Fé- lagi stjórnenda í fram- haldsskólum hafa sam- þykkt nýgerðan kjara- samning með yfirgnæf- andi meirihluta. Gildis- tími samningsins er út mars á næsta ári. Á kjör- skrá voru tæplega 1500 kennarar og stjórnend- ur og voru 69% þeirra fylgjandi en 29% and- vígir. Tæplega 2% skil- uðu auðum seðlum eða gerðu ógilt. -mm VR sendir Hörpu skýr skilaboð RVK: „Í ljósi yfirlýs- ingar forstjóra Hörpu í dag 8. maí, hefur VR ákveðið að hætta að nota Hörpu tónlist- arhús undir viðburði félagsins. Sóma síns vegna getur VR ekki átt í viðskiptatengslum við fyrirtæki sem hagar sér með svo lítilmann- legum hætti gagnvart launafólki,“ segir í til- kynningu frá VR í gær. „Lægst launuðu starfs- menn Hörpu tónlist- arhúss, sem einum var gert að taka á sig launa- lækkun á meðan for- stjórinn fékk ríflega launahækkun, sýndu það einstaka þor og áræði að segja nær öll upp störfum til þess að mótmæla hinu hróp- andi óréttlæti sem blasir við í þessu máli. Beðið var með eftirvæntingu eftir niðurstöðu fundar forstjóra og yfirstjórnar í morgun og blasti það við öllu réttsýnu fólki að hið augljósa órétt- læti yrði leiðrétt með einhverjum hætti og yf- irstjórn hússins myndi sjá að sér.“ Þá segir að yfirlýsing Svanhild- ar Konráðsdóttur, for- stjóra Hörpu tónlistar- húss, í dag þriðjudag- inn 8. maí 2018 komi sem blaut tuska í andlit félagsmanna VR. „Einu viðbrögðin eru þau að kveðja þessa dugmiklu starfsmenn og óska þeim velfarnaðar. VR sem stéttarfélag get- ur ekki annað en tek- ið sér stöðu með starfs- mönnum sem hafa ver- ið smánaðir með þess- um ótrúlega hætti og hætt öllum viðskiptum við Hörpu tónlistar- hús þar til þetta mál fær eðlilega afgreiðslu. -mm Búið að opna sundlaugina GRUNDARFJ: Skólasund hófst í Sundlaug Grundfirð- inga 30. apríl síðastliðinn og 2. maí var svo opnað takmark- að fyrir almenning. Núna er laugin opin frá 7-8 á morgn- ana og svo frá 17-21 seinni- partinn. Á laugardögum er svo opið frá 13-17 og lok- að á sunnudögum. Þann 19. maí næstkomandi tekur full sumaropnun gildi en þá verð- ur opið alla virka daga frá kl. 7-21 og laugardaga og sunnu- daga frá 10-18. Þetta er alltaf ákveðin vorboði fyrir Grund- firðinga þar sem sundlaugin er lokuð yfir vetrartímann. Nú í vetur var reyndar prófað að hafa opið í heitu pottana yfir vetrarmánuðina og gekk það ágætlega. -tfk Skipulagsvinna vegna rifs á strompinum AKRANES: Á fundi skipu- lags- og umhverfisráðs Akra- neskaupstaðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi á Sementsreit á Akranesi. Breytingin felst í að sementsstrompurinn verði rif- inn. Byggir sú ákvörðun á af- gerandi niðurstöðu sem fékkst úr skoðanakönnun sem Akra- neskaupstaður stóð fyrir. Þar vildu 94,25% bæjarbúa að strompurinn yrði felldur, en 5,75% að hann yrði látinn standa áfram um ókomin ár. -mm Fyrir rúmlega níu árum hóf Lík- amsræktin starfsemi sína í Grund- arfirði en samfélagið hafði þá kall- að eftir slíkri þjónustu. Það voru hjónin Ásgeir Ragnarsson og Þór- ey Jónsdóttir sem keyrðu þetta verkefni í gang og viðtökurnar voru góðar. Nú hálfu tíunda ári síðar var kominn tími á breytingar. Líkamsræktin var auglýst til sölu og hefur ungt og kraftmikið par fest kaup á ræktinni. Það eru þau Guðmundur Njáll Þórðarson og Sigurhanna Ágústa Einarsdóttir sem taka við keflinu. Líkamsrækt- in mun verða rekin í sömu mynd til að byrja með en svo er aldrei að vita nema eitthvað bætist við eða breytist eftir því sem á líður, að sögn þeirra. tfk Líkamsræktin í Grundarfirði skiptir um eigendur Þórey Jónsdóttir er hér að afhenda Ágústu og Guðmundi lyklana. Með þeim á myndinni er Hallberg Helgi sonur þeirra. Margt var um manninn við opn- un Smiðjuloftsins, nýs afþreying- arseturs við Smiðjuvelli á Akra- nesi, um liðna helgi. Það eru hjón- in Valgerður Jónsdóttir og Þórð- ur Sævarsson sem eiga og reka Smiðjuloftið en þar er að finna klifuraðstöðu og rými sem m.a. hentar undir ýmsa viðburði eða tónlistariðkun. „Nóg var um að vera á Smiðjuloftinu í tilefni af opnuninni og margt um mann- inn alla helgina. Á laugardegin- um var opið hús á efri hæðinni, lif- andi tónlist og léttar veitingar. Á sunnudeginum var svo fjölskyldu- klifur og söngstund, þar sem litlir söngfuglar létu ljós sitt skína. Mik- ill fjöldi fólks á öllum aldri mætti á Smiðjuloftið báða dagana til að prófa klifurveggina og voru gestir gífurlega ánægðir með þessa nýj- ung í íþrótta- og menningarlífinu á Akranesi,“ segja þau Valgerður og Þórður. Klifurfélag ÍA verður með æf- ingaaðstöðu sína í húsinu og spenningur var meðal iðkenda í félaginu að hefja æfingar. Leyndi sá áhugi sér ekki þegar ljósmynd- ari Skessuhorns leit við á laugar- daginn. Margir þeirra voru mætt- ir á Smiðjuloftið strax og tekið var úr lás á laugardagsmorguninn, að sögn þeirra Valgerðar og Þórðar. arg/ Ljósm. mm Smiðjuloftið opnað á Akranesi Klifurveggurinn var í stöðugri notkun alla helgina. Þórður og Valgerður ásamt Sylvíu dóttur sinni.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.